Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Garn: Scheepjes Our Tribe (100g/420m), fæst hjá
Handverkskúnst.
100g litur 970, Cypress Textiles
100g litur 967, Simy
100g litur 964, New Leaf
100g litur 963, Haak Maar Raak
200g litur 881, Blackberry Black
Úr einni dokku af Scheepjes Our Tribe nást um 20
ferningar, jafnvel fleiri. Ein dokka af svörtu dugði í
kant á um 55 dúllur.
Heklunál: 3 mm
Teppastærð: 115 x 80 cm eftir þvott
Skammstafanir:
L – lykkja, LL – loftlykkja, KL – keðjulykkja, HST –
hálfstuðull, ST – stuðull, TBST - tvíbrugðinn stuðull
(tvöfaldur stuðull), OTBST - opinn tvíbrugðinn
stuðull, 3 OTBST - þrír opnir tvíbrugðnir stuðlar
heklaðir saman
Uppskriftin:
Heklið 4 LL, tengið saman í hring með KL.
1. umf: Heklið 3 LL (telst sem 1 ST), 15 ST inn í
hringinn, lokið umf með KL í þriðju LL af þeim þrem
sem heklaðar voru í byrjun umf. (16 ST)
2. umf: Heklið 4 LL (telst sem 1 ST + 1 LL), *1 ST í
næstu L, 1 LL*, endurtakið frá * að * 14 sinnum til
viðbótar, lokið umf með KL í þriðju LL af þeim fjórum
sem heklaðar voru í byrjun umf. (16 ST + 16 LL-bil)
3. umf: Heklið KL í næsta LL-bil, 3 LL, 2 OTBST í sama
LL-bil (telst sem fyrsti 3 OTBST), 3 LL, *3 OTBST í
næsta LL-bil, 3 LL*, endurtakið frá * að * 14 sinnum
til viðbótar, lokið umf með KL í fyrsta 3 OTBST umf.
4. umf: Heklið KL yfir í næsta LL-bil, 4 LL (telst sem 1
TBST), [2 TBST, 3 LL, 3 TBST] í sama LL-bil, 3 ST í næsta
LL-bil, 3 HST í næsta LL-bil, 3 ST í næsta LL-bil, *[3 TBST
+ 3 LL + 3 TBST] í næsta LL-bil, 3 ST í næsta LL-bil, 3
HST í næsta LL-bil, 3 ST í næsta LL-bil*, endurtakið frá
* til * 2 sinnum til viðbótar, lokið umf með KL í fjórðu
LL af þeim fjórum sem heklaðar voru í byrjun umf.
5. umf: Heklið 3 LL (telst sem 1 ST), 1 ST í næstu 2 L,
[2 ST + 3 LL + 2 ST] í hornið, *1 ST í næstu 15 L, [2
ST + 3 LL + 2 ST] í hornið*, endurtakið frá * að * 2
sinnum til viðbótar, 1 ST í næstu 12 L, lokið umf með
KL í þriðju LL af þeim þrem sem heklaðar voru í byrjun
umf EÐA slítið frá og gerið ósýnilegan frágang. Skiptið
um lit, byrjið næstu umferð hvar sem er á dúllunni.
6 umf: Tengið með KL í einhverja L, heklið 3 LL (telst
sem 1 ST), heklið *1 ST í hverja L fram að horni, [2
ST + 3 LL + 2 ST] í hornið*, endurtakið frá * að * 3
sinnum til viðbótar, 1 ST í hverja L út umf, lokið umf
með KL í þriðju LL af þeim þrem sem heklaðar voru í
byrjun umf EÐA slítið frá og gerið ósýnilegan frágang.
Ferningar tengdir saman: Ég vildi einfalda leið til
að tengja saman ferningana og valdi því að hekla
þá saman með keðjulykkjum að framan. Ég legg
tvo ferninga saman og læt röngurnar snúa saman.
Byrja á hornunum í miðju lykkjunni af þeim þremur
loftlykkjum sem eru í horninu, sting nálinni í
fremri lykkjuna á ferningnum sem snýr að mér og
aftari lykkjuna á hinum ferningnum, svo hekla ég
keðjulykkjur.
Kantur:
1. umf: Tengið með KL í hvaða L sem er, heklið 2 LL
(telst ekki með), heklið 1 ST í sömu L og KL var gerð í,
*heklið 1 ST í hverja L að samskeytum ferninganna, 2
ST í LL-bil á fyrri ferning, 2 ST í LL-bil á seinni ferning*,
endurtakið frá * að * að næsta horni, [2 ST + 3 LL +
2 ST] í hornið**, endurtakið frá * að ** 3 sinnum til
viðbótar, 1 ST í hverja L að samskeytum ferninganna,
2 ST í LL-bil á fyrri ferning, 2 ST í LL-bil á seinni ferning
út umf, lokið umf með KL í fyrsta ST.
2. umf: Heklið 2 LL (telst ekki með), heklið 1 ST í
sömu L og KL var gerð í, *heklið 1 ST í hverja L fram
að horni, [2 ST + 3 LL + 2 ST] í hornið* endurtakið
frá * að * 3 sinnum til viðbótar, 1 ST í hverja L út umf,
lokið umf með KL í fyrsta ST.
Endurtakið 2. umf þar til kanturinn er orðinn eins stór
og þú vilt hafa hann eða bara þar til garnið er búið.
Heklkveðjur frá píunum í Handverkskúnst
Elín, Guðrún & Henný.
Pönnukökur & beikon best!
Hún Katrín Eva er hress og
lífsglöð stelpa sem býr með
fjölskyldunni sinni í Svíþjóð.
Nafn: Katrín Eva Pétursdóttir.
Aldur: 9 ára, alveg að verða
10 ára.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Bý í Stokkhólmi,
höfuðborg Svíþjóðar.
Skóli: Örbyskolan.
Skemmtilegast að gera:
Sauma og leika með dúkkur
og hestadót.
Uppáhaldsdýr: Hestar.
Uppáhaldsmatur: Pönnukökur
og beikon.
Uppáhaldslag: „Shallow“ úr
myndinni „Star is Born“.
Uppáhalds bíómynd/sjónvarpsefni:
Sænska fjölskyldan og Home Alone.
Æfirðu íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri: Æfi dans og er í skátunum.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór: Íslenskukennari
fyrir íslensk börn í útlöndum,
leikskólakennari eða
grunnskólakennari.
Mest spennandi sem þú hefur gert:
Útilega á Íslandi.
Minnisstæðast frá liðnu sumri:
Húsbílaferðalag um Svíþjóð,
Danmörku og Þýskaland.
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
ERFINGJAR LANDSINS
HANNYRÐAHORNIÐ
Hádegisblóm
Þetta dúlluteppi er heklað úr Scheepjes Our Tribe sem er nýlegt garn hjá okkur í Handverkskúnst.
Það er sjálfmynstrandi og því tilvalið í svona klassísk dúlluteppi. Garnið er merino ullarblanda
sem gerir það mýkra en annað sambærilegt garn en samt má skella því í þvottavél. Uppskriftina
er einnig hægt nálgast rafrænt á www.GARN.is með fleiri myndum og útskýringum.
Við hvetjum sem flesta til að hafa samband ef ykkur langar að vera með!
Hafið samband: sigrunpeturs@bondi.is
Hluthafafundur Ferðaþjónustu bænda hf.
30. mars 2023
Stjórn Ferðaþjónustu bænda hf. boðar til hluthafafundar
fimmtudaginn 30. mars. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum
fyrirtækisins í Síðumúla 2 kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Tillaga um breytingu á samþykktum varðandi
niðurfellingu á forkaupsrétti hluthafa.
Lagt er til að 8. gr. falli niður og forkaupsréttur hluthafa felldur
niður í 9. gr. og breytast númer greina því til samræmis þannig að
9. gr. verður 8. gr. og númer annarra greina lækka um 1.
Reykjavík, 22. mars 2023
Stjórn Ferðaþjónustu bænda hf.