Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023 „hat-trick“ í úrslitaleiknum, og Martin Peters, sem skoraði fjórða markið í 4-2 sigri á V-Þjóðverjum. Ég taldi því að West Ham hlyti að vera langbesta liðið í Englandi, þó annað hafi svo komið á daginn, og hef haldið með þeim allar götur síðan.“ Gott að vinna fyrir bændur Gylfi segir að þegar litið sé yfir farinn veg telji hann sig hafa notið mikillar gæfu að fá að vinna fyrir bændur og eiga samstarf við allt það góða fólk sem hann hafi kynnst í tengslum við starfið. Eðli málsins samkvæmt hefur hann einnig upplifað miklar breytingar í starfsemi samtakanna. Skipulag félagskerfisins hefur alltaf verið bændum mjög hugleikið og ávallt hefur þar verið mikil barátta um völd og deilur um skiptingu fulltrúa á milli hinna ýmsu hagsmunaaðila eftir landshlutum, búgreinum og jafnvel stjórnmálaflokkum. „Þegar ég hóf störf hjá SB þá voru allir fulltrúar inn á aðalfundina kosnir af búnaðarsamböndunum, en með tilkomu búgreinafélaganna fengu þau jafnframt beina aðild að sambandinu og síðan eftir stofnun BÍ þá skiptist fulltrúavalið á Búnaðarþing í fyrstu nokkuð jafnt á milli þeirra og búnaðarsambandanna. Með nýjustu breytingunum á samþykktum BÍ fer fulltrúavalið á Búnaðarþing nú hins vegar að mestu leyti fram í gegnum búgreinadeildirnar. Í áranna rás hef ég þannig kynnst ótal bændum alls staðar af á landinu sem voru fulltrúar á fundum SB og síðan Búnaðarþingi, einkum þó þeim sem tóku síðan sæti í stjórnum, nefndum og ráðum á starfstíma mínum hjá SB og BÍ. Minnisstæðir eru aðalfundir SB, en sú hefð komst á að þeir voru haldnir til skiptis annað hvert ár á Hvanneyri á móti öðrum stöðum á landinu eins og til dæmis Laugarvatni, Reykjaskóla í Hrútafirði, Laugum í Reykjadal, Eiðum, Akureyri og Flúðum. Makar margra fulltrúanna fylgdu þeim gjarnan á fundina þannig að þetta voru jafnan yfir eitt hundrað manna samkomur og í lok þeirra var síðan efnt til hátíðardag- skrár þar sem árangur fundarstarfanna var meðal annars iðulega yfirfarinn og metinn í bundnu máli.“ Nýtt upphafa Bændasamtakanna „Óumflýjanleg sala á Bændahöllinni í kjölfar gjaldþrots Hótel Sögu ehf. var þungbær öllum bændum jafnt sem starfsfólki samtaka þeirra. Árin fyrir Covid var lagt í metnaðarfullar og kostnaðarsamar breytingar á hótelinu, en í kjölfarið fylgdi síðan algjört tekjuhrun í tvö ár og því reyndist það einfaldlega óvinnandi vegur að halda rekstrinum áfram. Flutningur starfseminnar í Borgartún 25 markar hins vegar vonandi nýtt upphaf hjá sterkari og samstilltari Bændasamtökum.“ Gylfi segir að til allrar hamingju virðast bændur hafa áttað sig á því að hjaðningavíg og flokkadrættir gera ekkert annað en að skemma fyrir heildinni í stéttarbaráttunni og telur hann það hafa vera mikið gæfuspor þegar samstaða náðist loks um það á árinu 2021 að sameina kraftana á ný með því að búgreinafélögin gengju inn í Bændasamtökin sem sérstakar búgreinadeildir. Þetta samrunaferli hefur Vigdís, framkvæmdastjóri BÍ, leitt af mikilli elju og dugnaði og niðurstaðan verður án alls vafa sterkari og samstilltari Bændasamtök í bráð og lengd.“ Mannauðurinn Að mínu mati hafa samtök bænda notið þess að hafa gott starfsfólk innan sinna vébanda, en á sama hátt er ljóst að starfsfólkinu hefur þótt gott að vinna hjá bændum, enda hafa margir fleiri en ég náð þar löbgum starfsaldri. Það væri til að æra óstöðugan að ætla sér hér að nefna alla þá fjölmörgu samstarfsmen sem ég hef borið gæfu til að vinna með hjá samtökum bænda í gegnum tíðina. Slík upptalning býður jafnframt þeirri hættu heim að einhver nöfn gleymist þar óverðskuldað. Ég get hins vegar ekki látið hjá líða að minnast hér á nokkra starfsmenn sem voru mínir nánustu samstarfsmenn á skrifstofusviðinu í gegnum tíðina. Yfirmenn mínir á starfsferlinum, formennirnir og fram- kvæmdastjórarnir, eru tilgreindir í sér dálki hér til hliðar, en samstarf mitt við þá alla og gagnkvæmt traust var ávallt nær hnökralaust svo aldrei bar þar á nokkurn skugga. Halldóra Ólafsdóttir kom til starfa sem ritari hjá SB og Framleiðsluráði landbúnaðarins árið 1979 eins og ég, en við áttum síðan nána samleið hjá SB og BÍ næstu 40 árin. Þeir sem eldri eru í bændastétt í dag litu gjarnan á hana sem andlit samtakanna út á við og húsmóðurina í Bændahöll. Var hún jafnframt lífið og sálin í félagslífi starfsfólksins á þriðju hæðinni um áratuga skeið. Auk Halldóru og Hákonar starfaði Guðmundur Stefánsson þá hjá SB sem hagfræðingur og var hann afburða fagmaður, en umfram allt einstaklega skemmtilegur vinnufélagi. Eftir stofnun Bænda- samtaka Íslands 1995 bættist síðan starfsfólk Búnaðarfélagsins í hóp náinna samstarfsmanna minna á skrifstofunni, þær Þorbjörg Oddgeirsdóttir gjaldkeri og síðar systir hennar, Auður, sem sá um símsvörun og gestamóttöku, Ásdís Kristinsdóttir, ritari og fulltrúi, og síðast en ekki síst Sigríður Þorkelsdóttir, bókari BÍ, og Jóhanna Lúðvíksdóttir, „reikningastjóri“ BÍ með meiru, en báðar eru þær enn við störf hjá samtökunum. Frá Búnaðarfélaginu urðu líka nánir sam- starfsmenn mínir þeir Matthías Eggertsson, ritstjóri Freys, og Eiríkur Helgason, sem tók við sem fyrsti auglýsingastjóri Bænda- blaðsins, en samstarf okkar tveggja náði reyndar út fyrir veggi Bændahallarinnar því við vorum líka samherjar hjá Fram og í fótbolta dómgæslunni. Þá er mér bæði ljúft og skylt að nefna hér ræstitæknana, þær Sigríði Sigurðardóttur og Ingibjörgu Jónsdóttur, en báðar slógu þær mér við í starfsaldri hjá samtökum bænda. Er FL var síðan innlimað í Bændasamtökin árið 2000 bættust síðan í góðan hópinn á skrifstofunni þau Erna Bjarnadóttir, Ómar S. Jónsson og Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir. Öllu þessu fólki, sem og öllum öðrum vinnufélögum á ferli mínum hjá samtökum bænda, vil ég færa mínar bestu þakkir fyrir frábært samstarf og einstaklega skemmtileg kynni. Sama gildir um þá sem nýrri eru í starfsmannahópi Bændasamtakanna og eru þar enn við störf.“ Gylfi Þór alvarlegur á svip fyrir Evrópuleik Hollands og Möltu 2004. Við hlið hans á myndinni standa aðstoðardómararnir Pjetur Sigurðsson og Egill Már Markússon. Í sumarferð Bændasamtakanna á Jaðri í Borgarfirði Mynd / Eiríkur Blöndal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.