Bændablaðið - 23.03.2023, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Tekinn var til kostanna nýr bíll frá
rúmenska bílaframleiðandanum
Dacia, sem er frægur fyrir að
framleiða ódýra bíla. Þrátt fyrir
að vera á mjög góðum kjörum
hefur það ekki komið niður á
hönnun og nytsemi.
Þessi bíll er með mikla sérstöðu,
enda skilja nokkrar milljónir
króna Jogger frá öðrum sjö sæta
strumpastrætóum. Bifreiðin í
þessum prufuakstri er af Expression
útgáfu (dýrari týpan), sem kostar
5.090.000 krónur hjá BL.
Um leið og gengið er að bílnum
sést að enginn afsláttur hefur verið
gefinn á hönnun. Ytra útlit Jogger
er allt hið smekklegasta og myndi sá
sem ekki veit betur ei átta sig á að
hér sé um billegan bíl að ræða. LED
framljósin minna um margt á dýrari
bíla, eins og Volvo eða Volkswagen.
Grillið er með nýju og fersku
merki Dacia.
Expression útgáfan kemur með
álfelgum og skyggðum rúðum sem
felur enn betur hversu hagstæður
bíllinn er. Mosagrænt lakkið kemur
vel út á bílnum sem Bændablaðið
fékk til prufu.
Jogger er mikið til byggður á
Dacia Sandero, sem aftur er byggður
á Renault Clio. Báðir þeir bílar eru í
sama stærðarflokki og Volkswagen
Polo og Toyota Yaris og má því
segja að þetta sé borgarbíll sem
hefur verið teygður út að aftan og
fengið auka sætaröð. Framhlutinn er
nákvæmlega eins og á áðurnefndum
Sandero og eru helstu breytingarnar
að finna aftan við framdyrnar. Þessi
skil sjást greinilega þegar horft er á
hlið bílsins, en rúðan á afturhurðinni
er nokkrum sentímetrum hærri en sú
sem er fyrir framan hana. Þrátt fyrir
að samskeytin séu vel greinileg, eru
þau ekki fráhrindandi og vönduð
hönnunarvinna að baki.
Innrétting fríð en hörð
Þegar sest er í bílinn tekur á móti
manni vel útfærð innrétting sem
enn og aftur sýnir að hvergi hefur
verið slakað á hönnunarkröfunum.
Um leið og fingurnir leika um
mælaborðið, finnst hins vegar að allt
plastið er grjóthart og ódýrt. Hluti
innréttingarinnar er klæddur gráum
textíl sem gefur vott af íburði, þó
auðvitað sé þar á ferðinni polyester
sem hylur hart undirlag.
Framsætin sjálf eru mjúk og
smekkleg í útliti, en engum dylst
sem í þeim situr að þau eru af
ódýrustu gerð. Þeir sem eru hávaxnir
munu finna sérstaklega fyrir því
að sætið færist ekki fyllilega langt
aftur og hvíla því lærin illa á stuttri
sessunni. Lítill stuðningur við
mjóbak og undir lærin skilar sér í
því að þreyta sækir að ökumönnum
á löngum akstri.
Lítil en öflug vél
Létt kúpling og stýri ásamt þýðum
gírkassa gera Jogger prýðilegan í
innanbæjarsnatt og styttri ferðir.
999 rúmsentímetra þriggja strokka
bensínvél dregur bílinn áfram og
skilar hún 110 hestöflum, sem er
býsna vel gert miðað við svona
lítinn mótor. Vélin nær nokkuð
góðu togi á lágum snúningum,
en er fljót að missa afl þegar hún
er þanin. Uppgefin eyðsla er 5,7
lítrar á hundrað kílómetra, en sú
tala var nær átta lítrum í höndum
blaðamanns. Taka skal fram að
frost var mikið og bensínfóturinn
stundum þungur. Í lausagangi berst
greinilegur titringur frá vélinni til
farþeganna. Hljóðeinangrun frá
vél og umhverfi er til fyrirmyndar
miðað við svona ódýran bíl.
Jogger Expression kemur með
snertiskjá í mælaborðinu þar
sem útvarpi og tónlist í gegnum
Bluetooth er stjórnað. Skjárinn
sýnir einnig vel nothæfa mynd frá
bakkmyndavélinni, sem í bland við
nálægðarskynjara að framan og
aftan gera bílastæðalagnir að leik
einum. Enn fremur er boðið upp á
GPS leiðsagnarbúnað sem er sérlega
erfiður í notkun.
Rétt er að nefna sérstaklega
lyklalaust aðgengið sem er alveg
snertilaust og virkar án allra hnökra.
Bíllinn skynjar nálægð lyklanna
og fer sjálfkrafa úr eða í lás og
ökumaðurinn þarf ekki að ýta á
neinn takka.
Öll sæti nothæf
Öll sjö sæti bílsins rúma fullorðið
fólk, þó þau öftustu séu ólíkleg til
að vera eftirsótt í lengstu ferðirnar.
Miðjusætaröðin er líklega sú
besta í bílnum, en þrátt fyrir að
ökumannssætið sé í öftustu stöðu
er auðvelt að komast inn.
Hátt loftið skilar sér í góðu
höfuðplássi í fremri tveimur
sætaröðunum, en aftast þrengist að
höfði þeirra hæstu. Séu farþegarnir
fimm er hægt að leggja öftustu
sætaröðina niður og velta fram.
Þá er Jogger kominn með
risastórt skott sem auðvelt er að
fylla með farangri. Sé þörf á rými
sendibíls er ýmist hægt að leggja öll
sætin niður eða fjarlægja.
Þó þetta sé fólksbíll er Jogger
með nokkuð mikla veghæð. Því er
lítið mál að taka stutta túra út fyrir
malbikið, að því gefnu að bifreiðin
sé ólestuð. Þegar ökumaðurinn
er einn á ferð gerir Jogger lítið
úr hraðahindrunum. Ef fjórum
farþegum og þeirra farangri er bætt
við finnst að bíllinn lækkar nokkuð
og misfellur í veginum krefjast
meiri varúðar.
Í stuttu máli
Dacia Jogger er ódýr, en vandaður
bíll. Framleiðendur bifreiðarinnar
hafa lagt mikinn metnað í alla
hönnunarvinnu. Lágt verðið finnst
hvergi hvað varðar útlit eða nytsemi,
heldur hafa ódýrari efni og eldri
tækni verið notuð þar sem hægt er.
Sjö sæta bíll á lægra verði sem er
nýr úr kassanum er vandfundinn.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Sjö sæta Dacia Jogger á verði smábíls
Dacia Jogger er mikill bíll fyrir lítinn pening. Þrátt fyrir að hagsýni ráði för við smíði bifreiðarinnar hefur það ekki komið niður á hönnun og nytsemi. Hér
er á ferðinni ökutæki með karakter. Myndir / ÁL
Fremri helmingurinn er sá sami og á Dacia Sandero. Aftan við framdyr hefur öllu verið breytt
til að útbúa strumpastrætó úr smábílnum. Samskeytin eru greinileg, en vel útfærð.
Tveir fullorðnir komast í öftustu sætin. Óljóst
er hvar geyma skuli skottyfirbreiðsluna. Með öftustu sætin samanbrotin er mikið pláss í skottinu.
Innréttingin fer vel í augu, en er hörð undir fingrum.
Besti staður bílsins er miðjusætaröðin. Hátt
er til lofts og rétt nóg pláss fyrir langa leggi.
Prufuakstur: