Bændablaðið - 27.04.2023, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Humarveiðar hafa verið stundaðar
við Ísland frá 1950, fyrst eingöngu
af erlendum skipum en rétt
fyrir 1960 hófust humarveiðar
Íslendinga við suðurströndina.
Mest fór aflinn í 6.000 tonn,
eins og sést á meðfylgjandi mynd,
en sveiflaðist í kringum 2.000
tonnin þar til hrun varð á veiðunum
fyrir nokkrum árum og nú hafa
humarveiðar verið bannaðar í tvö
ár. En hvað er að gerast?
Við fengum Jónas Pál Jónasson,
fiskifræðing hjá Hafrannsókna-
stofnun og sérfræðing í humri, til að
segja okkur frá humrinum, veiðum,
lífsferli og fleiru áhugaverðu um
humarinn.
Útbreiðsla og lífsferill humars
Leturhumarinn er eina humar-
tegundin við Ísland. Leturhumar
heitir ekki humar á erlendum
tungumálum (enska: lobster), heldur
ýmsum öðrum nöfnum.
Leturhumarinn er útbreiddur,
allt frá Miðjarðarhafi, norður með
ströndum V-Evrópu og Noregs,
inn í Norðursjó og norðvestur um
Færeyjar og alla leið til Íslands.
Heildarveiði leturhumars er um
80–100.000 tonn, mest við Skotland
og Írland en einnig í öðrum löndum
V-Evrópu. Humarveiðarnar hafa
nánast eingöngu verið trollveiðar
við Ísland. Þannig er einnig farið
með humarveiðar við Skotland og
Írland þar sem langmest er veitt af
honum en á einstaka afmörkuðum
svæðum er hann veiddur í gildrur.
Kjörhiti humars er 5–15 gráður.
Af þeim sökum velur hann sér
dýpi sem hæfir og er því á miklu
dýpi í Miðjarðarhafinu en grynnra
við Skotland. Humarinn er langlíf
tegund, verður líklega allt að 20–25
ára, þótt það sé ekki vitað með
fullri vissu því það er mjög erfitt að
aldursgreina hann. Einkenni íslenska
humarsins er að hann er að jafnaði
stærri en humar veiddur við strendur
Evrópu.
Erfðafræðilega lítill munur
Humarinn lifir í leirkenndum
botni, einkum í jökulleirnum við
suðurströndina, þar sem hann
getur grafið sér holur í leirinn.
Hann hrygnir annað hvert ár á
vormánuðum, líklega í apríl–maí.
Fyrstu 6–8 vikurnar eru lirfurnar
sviflægar, þ.e.a.s. þær synda en
taka síðan botn og umbreytast.
En þegar upp er staðið eru það
hafstraumar sem ráða mestu um hvar
humarlirfurnar taka botn. Eftir að
humarinn hefur grafið sér holu þá
ferðast hann lítið eftir það.
,,Við tókum þátt í rannsókn á
erfðafræðilegum mun á humri við
Ísland og Skotland. Það sem kom í
ljós þar var að það var nánast enginn
erfðafræðilegur munur milli humars
í Breiðamerkurdýpi og í djúpunum
vestur af Írlandi.
Það er þekkt að skötuselur syndir
í yfirborðinu austur úr og hrygnir
á Hatton-Rockall svæðinu. Það er
einnig þekkt að hrognastrengir þeirra
reka að hluta til Íslands og klekjast
út þar. Skötuselsstofninn við Ísland
stækkaði mikið upp úr árinu 2000,
á svipuðum tíma og nýliðun í humri
var mikil við Ísland. Það er því ekki
útilokað að svipað mynstur gæti hafa
átt sér stað með lirfur humarsins,“
segir Jónas.
Veiðanleiki humars
Humarveiðin byggist aðallega á
karldýrum en um eða yfir 90% í
veiði er karldýr. Kvendýrið heldur
sig að mestu í holum sínum og
fer afar sjaldan út en karldýrið er
meira á ferðinni og því veiðanlegra.
Kvendýrið er oft með græna slikju
undir höfuðbolnum og skelin linari.
Hrognin eru fagurgræn.
Mælingar á stofnstærð humars
hafa verið erfiðleikum háðar segir
Jónas. ,,Humarinn er mjög háður
hitastigi. Þannig er því farið hér við
land að ef hitastig sjávar er lágt, þá
fer hann ekki út úr holum sínum. Það
er því mjög erfitt að meta stofnstærð
humars út frá veiði með trolli, þar
sem hitastig eða aðrar aðstæður
ráða mestu um hvort hann veiðist
eða ekki. Því hefur Hafró snúið sér
frá stofnstærðarmælingu með trolli
yfir í talningar á holum.
Eins og sjómenn þekkja þá
er veiðanleiki hans meiri þegar
smástreymt er fremur en stórstreymt.
Eins kemur hann meira úr holum
sínum þegar mikill blómi er
í hafinu.“
Nýliðunarbrestur
Veiðibannið er afleiðing nýliðunar-
brests. Á árunum 1990–1997 og síðan
árið 2000 komu inn stórir árgangar
sem voru undirstaða veiðanna árin á
eftir. Síðan 2005 hefur ekki komið
inn stór árgangur sem er ástæða
minnkandi veiði og nú banns við
humarveiði. En hver er ástæða þessa
nýliðunarbrests?
,,Það er ekki að fullu þekkt. Það
sem er merkilegt er að við sjáum
svipað mynstur hjá öðrum suðlægum
tegundum s.s. blálöngu, skötusel,
keilu og sandsíli. Afleiðing hruns á
sandsíli um 2006 var nýliðunarbrestur
hjá lunda við suðurströndina frá 2006
til 2017 þegar rofa tók til í kjölfar
þess að stofn sandsílis náði sér á
strik,“ segir Jónas. Þess ber að geta að
engar veiðar eru stundaðar á sandsíli
og sveiflur á stofnstærð sandsílis eru
því eingöngu náttúrulegar.
Breytingar á sjávarhita
og straumum
Færeyingar hafa bent á að næringar-
snauður suðlægur sjór hefur verið
að berast sunnar út Atlantshafi inn á
Norður Atlantshafið. Fyrst varð hans
vart við Færeyjar en síðar kom hann
að suðurströnd Íslands. Framleiðni
sjávarins við Ísland hefur verið mikil
sem er undirstaða lífríkis sjávar við
landið. Gætu þessar breytingar
verið að hafa áhrif? ,,Við vitum að
þörungablómi er undirstöðufæða
sviflægra lirfa eins og humarlirfa,“
segir Jónas.
,,Ef hrygning hittir ekki á
blómann þá komast lirfurnar ekki
af. Við vitum af gervihnattagögnum
að hámark þörungablóma við Ísland
hefur verið seinni en oft áður. Við
vitum af öðrum tegundum sem
eru með sviflæg egg, og í kjölfarið
lirfur, hafa átt í basli með nýliðun
af sömu ástæðu. Ofan á allt þetta er
næringasnauðari sjór að koma inn á
uppvaxtarsvæðin. Þetta tel ég helstu
ástæðu nýliðunarbrests á humri á
,undanförnum árum. Þegar maður
sér öll sömu ljós kvikna hjá mörgum
tegundum þá er langlíklegast að
eitthvað sem er að gerast í náttúrunni
sé aðalskýringin,“ bætir Jónas við.
Er makríllinn að éta humarlirfurnar?
Nú hafa margir bent á að makríllinn
hafi komið inn á Íslandsmið árið
2006 og spurt sig, étur hann ekki
allar lirfur og þar með humarlirfur?
Þá hafa aðrir bent á að gríðarlega
stór hrygningarstofn þorsks við
suðurströndina þyki humar líka
góður og éti hann. Hvað segir Jónas
um þessar kenningar? ,,Þær eru
áhugaverðar og hafa allar einhvern
vinkil. Við vitum að þorskurinn
étur humar og makríllinn líka. En
þorskurinn er að éta fullorðinn humar
en ekki lirfur og það er nýliðun sem
vantar. En svo er það makríllinn.
Hann kemur inn á slóðina þegar
humarlirfur hafa að mestu tekið
botn svo okkur finnst það ekki líkleg
skýring.“
Von um bætta tíð?
En hvað með humarinn, eru engar
vísbendingar um betri tíð hjá
humrinum? ,,Við höfum ekki séð
nein merki nýliðunar hjá humri
enn þá enda er humarinn seinvaxið
dýr. Hann kemur ekki inn í veiðina
fyrr en 5–6 ára. Við höfum séð
breytingu hjá nokkrum tegundum,
t.d. í mælingum á sandsíli síðastliðin
ár og sérstaklega frá 2020, sem gefur
von en enn höfum við ekki séð nein
merki nýliðunar í humri,“ segir Jónas
og bætir við:
,,Það hefur verið skortur á grunn-
rannsóknum í hafinu við Ísland og
við skiljum lífríkið ekki nægjanlega
vel. Samspil náttúrulegra þátta skipta
máli og við verðum að skilja þá líka.
Það er vandinn og því höfum við
ekki afdráttarlaus svör.“
Sigurgeir B. Kristgeirsson
binni@vsv.is
NYTJAR HAFSINS
VEIÐISVÆÐI ÓSKAST
Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru
félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði
á afskektum stöðum.
Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri
samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á
netfangið kristjan@fishpartner.com.
0
2000
4000
6000
1960 1980 2000 2020
H
um
ar
af
li
Erlendur afli
Íslenskur afli
Humarveiðibann
– „Náttúrulegar sveiflur langlíklegasta skýringin, “ segir Jónas Páll Jónasson humarsérfræðingur
Jónas Páll Jónasson, fiskifræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun og sér-
fræðingur í humri.
Útbreiðsla humars.
Afli 1950-2021.
Leturhumar, Nephrops norvegicus, er sú humartegund sem veiðist við Ísland.