Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023 Midea Varmadæla Arctic Series - Loft í vatn - Nýtt útlit - tekur lítið gólfpláss Innbyggður neystluvatnstankur Wifi tenging - hægt að stjórna og fylgjast með úr snjalltæki Hafðu samband við okkur og við finnum réttu dæluna fyrir þig Frábær verð Umhverfisvænn kælimiðill Allt að 80% orkusparnaður www.kaelitaekni.is „Samúð með bændum áþreifanleg í salnum“ – Upplýsingafundur um riðu í sauðfé á Laugarbakka Um 300 manns sótti fundinn á Hótel Laugarbakka í Miðfirði. Mynd / Guðfinna Lára Hávarðardóttir Opinn upplýsingafundur var haldinn á Hótel Laugarbakka þriðjudaginn 18. apríl vegna riðutilfella í Miðfjarðarhólfi sem þar voru nýlega staðfest í fyrsta skipti. Talið er að um 300 manns hafi sótt fundinn, en að sögn Sigríðar Ólafsdóttur, sauðfjárbónda í Víðidalstungu, sem stýrði fundi, komu fundargestir frá öllu Norðurlandi vestra, Ströndum, Borgarfirði og alveg vestan af Snæfellsnesi. Fyrst og fremst hafi verið um samstöðu- og upplýsingafund að ræða en engar eiginlegar niðurstöður komið fram. Á dagskrá fundarins voru framsögur þeirra Gunnars Þorgeirssonar, formanns Bænda- samtaka Íslands, Sigurborgar Daða- dóttur yfirdýralæknis og Sigur- bjargar Bergsdóttur, sérdýralæknis sauðfjársjúkdóma hjá Matvæla- stofnun, Karólínu Elísabetardóttur, bónda í Hvammshlíð, og Jóhönnu Bergsdóttur sálfræðings. Eftir framsögur voru almennar umræður. Vilja þátttöku ríkisins í kostnaði „Það kom ekki neitt loforð um framlag frá ríkinu á þessum fundi enda bjuggumst við í sjálfu sér ekkert við að það kæmi slíkt loforð alveg á stundinni,“ segir Sigríður, sem er varamaður í stjórn deildar sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands. „Hins vegar kom fram sá skýri vilji okkar að að ríkið taki þátt með okkur í að greina allar kindur á landinu, útrýma áhættuarfgerðum og innleiða verndandi eins fljótt og hægt er – enda sparar það peninga fyrir ríkið til framtíðar. Allir þingmenn sem voru á svæðinu tóku mjög jákvætt í þessa beiðni okkar og vonumst við þar með til að það skili sér inn í störf Alþingis. Við ætlum raunar ekki að hætta fyrr en þessi beiðni okkar verður tekin til raunverulegrar skoðunar.“ Handapat í stjórnsýslunni Sigríður segir að fram hafi komið óánægja hjá fundargestum með að ekkert varaplan sé til staðar varðandi förgun á þessum skrokkum sem búið var lóga. „Það er algerlega óásættanlegt þetta handapat sem er búið að vera í þeim málum af hálfu Umhverfisstofnunar, matvæla- ráðuneytisins og umhverfisráðu- neytisins og er ekki bjóðandi þeim bændum sem um ræðir að þurfa að hafa áhyggjur af því hvað verður gert við kindurnar þeirra eftir förgun, ofan á allt annað álag sem er á þeim á sama tíma. Sömuleiðis kom fram gagnrýni bænda í hólfinu um skort á upplýsingagjöf frá Matvælastofnun. Samstaðan var í fyrsta, öðru og þriðja sæti á þessum fundi. Samúð með þeim bændum sem lentu í þessu núna var allt að því áþreifanleg í salnum, sem og baráttuvilji allra til að kveða þennan vágest niður í eitt skipti fyrir öll.“ Hvatningarræða formanns Að sögn Sigríðar voru fundarmenn ánægðir með erindin á fundinum. „Umræður voru góðar og mál- efnalegar þrátt fyrir allar þær tilfinningar sem hafa ólgað í samfélaginu undanfarna daga. Trausti Hjálmarsson, formaður deildar sauðfjárbænda hjá Bænda- samtökum Íslands, flutti svo hvatningarræðu í lok fundar.“ Guðfinna Lára Hávarðardóttir, Stóra-Fjarðarhorni var Sigríði til aðstoðar við fundarstjórn og Guðrún Eik Skúladóttir, Tannstaðabakka var fundarritari. /smh Stjórn Félags sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu lýsa yfir stuðningi við ályktun fundar sauðfjárbænda í Miðfirði um innleiðingu viðauka VII í reglugerð um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar, að því er fram kemur í tilkynningu. „Upp er komin alvarleg staða hjá sauðfjárbændum í Miðfjarðarhólfi þar sem riða greindist á tveimur bæjum nú á vordögum 2023. Félag sauðfjárbænda í Rangár- vallasýslu sendir félögum sínum fyrir norðan og sauðfjárbændum öllum hlýjar kveðjur og vonar að ekki greinist fleira fé með þennan hræðilega sjúkdóm. Það er á allan hátt ömurlegt að standa frammi fyrir niðurskurði á þessum árstíma þegar ær eru komnar að burði. Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu lýsir yfir stuðningi við ályktun sem fundur sauðfjárbænda í Miðfirði sendi frá sér þann 16. apríl síðastliðinn og hvetjum við einnig matvælaráðherra til að innleiða nú þegar viðauka VII í heild við ESB-reglugerð nr 999/2001 sem tók gildi á Íslandi 2012 (reglugerð 41/2012), en sá kafli var undanskilinn við innleiðingu reglugerðarinnar. Verndandi arfgerðir fyrir riðu hafa fundist á Íslandi og skorum við á stjórnvöld að leggja meiri áherslu og fjármagn á allar mögulegar leiðir til að flýta dreifingu þeirra um landið til að koma megi í veg fyrir kostnaðarsaman og sársaukafullan niðurskurð í náinni framtíð,“ segir í tilkynningu frá stjórn Félags sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu. /ghp Stuðningsyfirlýsing FRÉTTASKÝRING Til dæmis vegna kostnaðar við greiningarnar. „Á meðan við verðum núna fyrstu árin að mestu með arfblendna gripi þá er algjört lykilatriði að þessu sé fylgt vel eftir. Það er augljóst að það þarf að koma miklu meiri peningur inn í þetta – heildarkostnaðurinn við þetta getur numið yfir 100 milljónum á ári,“ segir hann og leggur áherslu á að það sé ekki gott að ætla sér að rækta upp riðuþolinn stofn á Íslandi með of miklum hraða sem kæmi þá mjög niður á ræktunarstarfinu.“ Fyrir ræktunarstarfið fram undan væri best ef aðkoma stjórnvalda fælist í beinum stuðningi við þau verkefni sem eru þegar í gangi, en vissulega yrði þátttöku Íslenskrar erfðagreiningar í arfgerðagreiningum tekið fagnandi – en hugmyndir hafa verið uppi um slíka aðkomu. Stjórnvöld geti flýtt verulega fyrir þróuninni að því að gera allan íslenska stofninn riðuþolinn, en núverandi áætlanir ganga út frá því að á næstu tíu árum verði verndandi arfgerðir orðnar verulegar útbreiddar í landinu. Lykilatriði að yfirdýralækni verði veittar heimildir Eyþór tekur vel í hugmyndir yfirdýralæknis um breytt fyrirkomulag í riðuvörnum. „Jú, það er lykilatriði að yfirdýralækni séu veittar heimildir til að ákveða eitthvað annað en heildarniðurskurð og að hægt sé að taka tillit til verndandi arfgerða. Samkvæmt Evrópureglugerðinni, sem mér skilst að tillögurnar taki mið af, þá hafa yfirvöld tækifæri til að velja mismunandi leiðir þegar upp koma riðutilfelli; í fyrsta lagi að skera allt niður eins og hér er gert, skera allt niður nema verndandi arfgerðir eða bara jafnvel að skera sýkta gripi þó það séu ekki mikið af verndandi arfgerðum í hjörðinni. Þá eru bændur bara skikkaðir til að innleiða verndandi arfgerðir mjög hratt. Ég tel að það væri æskilegt að yfirdýralæknir hafi slík verkfæri til að geta beitt eftir því sem við á. Í öllu falli þarf að klára breytingar á núgildandi reglugerðum þannig að þær taki mið af því að hér er gjörbreytt staða. Ég held að allir séu sammála um það að lykillinn að sigrinum felst í markvissum kynbótum fyrir þolnum arfgerðum.“ Eyþór Einarsson, ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, segir lykilatriði að yfirdýralækni verði veittar auknar heimildir. Mynd / RML Yfirlýsing frá Félagi sauðfjárbænda í Borgarfjarðarhéraði Félag sauðfjárbænda i Borgar­ fjarðarhéraði sendir nágrönnum sínum í Miðfjarðarhólfi hlýjar kveðjur með von um að ekki greinist fleira fé með þennan hræðilega sjúkdóm sem riðuveiki er. Jafnframt skorar félagið á matvælaráðuneytið, Mast og sveitarstjórnir Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar að þær hlutist til um stóraukið viðhald og eftirlit sauðfjárveikivarnargirðinga, einkanlega á milli Borgarfjarðar og Húnavatnssýslna, í ljósi nýlegra riðusmita í Miðfjarðarhólfi. Stjórn FSB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.