Bændablaðið - 27.04.2023, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
LÍF&STARF
Miðskógur í Dölum:
Fyrsta kjúklingabú Dalamanna
„Þetta kom þannig til að í
haust auglýsti Reykjagarður eftir
samstarfsaðila á Suðurlandi, til að
koma inn í greinina,“ útskýrir Skúli
Hreinn Guðbjörnsson, tilvonandi
kjúklingabóndi á Miðskógi, sem
hefur rekið þar kúabú og nautaeldi
ásamt konu sinni, Guðrúnu Esther
Jónsdóttur, frá 2015.
„Forsendurnar sem Reykjagarður
gaf upp fyrir slíkt eldi voru þær að
þar þyrfti að vera hitaveita, þriggja
fasa rafmagn, hreint drykkjarvatn,
vegtenging og ljósleiðari.
Ég hugsaði með mér að hér væri
allt til staðar; af hverju væri ekki
hægt að hafa þetta í Dölunum eins
og á Suðurlandi? Ég sendi þeim bara
póst og þeir bitu á agnið,“ bætir
Skúli við.
Búið í haginn fyrir heimkomu
dóttur og tengdasonar
Spurður um ástæður þess að
nautgripabændur gefi þessum
möguleika gaum, segir Skúli að það
hafi í raun verið spurningin hjá þeim
hjónum hvernig þau gætu breikkað
rekstrargrundvöll búsins og þannig
opnað leið fyrir dóttur þeirra og
tengdason, Sunnevu Hlín Skúladóttur
og Jóhannes Örn Pálmason, til
að flytja til þeirra í Dalina frá
Dýrastöðum í Norður árdal. „Þau
voru með bæinn á leigu og samningur
þeirra er að renna út núna í maí. Þau
langar til að halda búskap áfram og
við buðum þeim þennan valkost; að
kaupa sig inn í búreksturinn okkar og
reka með okkur bæði kjúklingaeldið
og kúabúið. Þau flytja til okkar núna
um miðjan maí með krakkana sína
sem ná þá í lok skólaársins.“
Skúli segir að engin skýr
verkaskipting verði í rekstri búanna,
en unga fólkið muni byrja á því
að reisa íbúðarhúsnæði við hlið
þeirra Skúla og Guðrúnar. „Síðan
ætlum við bara að byrja sem fyrst á
framkvæmdum við eldishúsið. Það er
verið að teikna það núna en við þurfum
að fara í jarðvegsskipti á þeim stað þar
sem það mun rísa. Við erum að skoða
hvaða leiðir við munum fara í að
byggja það; hvort það verði staðsteypt
eða hvort við kaupum einingar. Við
sjáum um byggingaframkvæmdina
en Reykjagarður sér alveg um allan
eldisbúnað, eins og fyrir fóður og
vatn. Við sjáum svo um allan daglegan
rekstur,“ útskýrir Skúli.
Þetta sé fyrirkomulag sem henti
vel fyrir báða aðila og Reykjagarður
viðhafi á öðrum bæjum.
Stefnt er að því að framleiðsla
verði hafin á kjúklingabúinu fyrir
næstu áramót en Skúli segist horfa
dálítið til októbermánaðar í þeim
efnum.
Ekki svo ólíkar búgreinar
Guðrún segir að þótt kúabúskapur
og kjúklingaeldi kunni að virðast
ólíkar búgreinar, séu þær þó í raun
ekki svo ólíkar. „Við erum að vísu
að annast ólíkar dýrategundir en
grunnreglurnar eru þær sömu; það
þarf að fylgjast vel með skepnunum,
að aðbúnaður sé góður og heilbrigði.
Það er mikil binding sem felst í því
að ala bæði kjúklinga og nautgripi,
mikil nákvæmisvinna hvort tveggja.“
Kjúklingabúið á Miðskógi
verður 13. búið sem framleiðir fyrir
Reykjagarð og með smærri búum.
Það verður eina búið með eingöngu
eitt eldishús.
„Reykjagarður lagði reyndar til
við okkur að við reistum strax tvö
hús – af því að það er mikil og aukin
eftirspurn eftir íslenskum kjúklingi,“
segir Skúli. Alifuglakjöt er enda
komið með mjög sterka stöðu á
íslenska kjötafurðamarkaðnum, með
um þriðjung markaðshlutdeildar á
síðasta ári, en um 9.500 tonn af
kjúklingakjöti var framleitt hér á
landi á síðasta ári.
Skúli telur ýmsa möguleika vera
til staðar varðandi blöndun búgreina
líkt og þau gera. „Ég held að það
sé eitthvað sem bændur þurfi að
skoða í meira mæli til að auka sína
afkomumöguleika. Ég er ekki hrifinn
af verksmiðjubúskap – vil hafa þetta í
fjölskylduvænum einingum. Það geta
líka verið alls konar samlegðaráhrif
– við munum til dæmis geta nýtt
hænsnaskítinn okkar sem áburð
á okkar tún,“ segir hann og segist
aðspurður ekki vilja útiloka aðrar
aukabúgreinar eins og garðyrkju. Ef
um vandaðan búrekstur sé að ræða
geti þetta allt unnið vel saman.
Fyrri ábúandi
náfrændi Guðrúnar
Ábúðarsaga þeirra Skúla og
Guðrúnar er fremur stutt á Mið
skógi. „Esther er fædd og uppalin á
Saurbæ í Dölum, en ég er uppalinn
á Vatnsnesinu í Húnavatnssýslu.
Við hittumst á Hvammstanga og
bjuggum þar alveg til 2004. Þá
fluttum við á Akranes og þar var ég
verslunarstjóri í Húsasmiðjunni í 11
ár. Ég frétti svo af því að þessi jörð
væri hugsanlega til sölu þótt hún
væri það ekki formlega. Ég hafði
sambandi við bóndann sem vildi í
fyrstu ekki selja mér af því að hann
væri ekkert að hætta. Síðan fórum
við að ræða ættfræði og komumst
að því að hann er náskyldur Guðrúnu
og það kann að hafa ráðið úrslitum
um að hann ákvað að selja okkur
loksins. Og þetta var 1. maí 2015,“
segir Skúli.
Hann segist hafa verið uppalinn
í sveit til rúmlega tvítugs þar sem
blandaður búskapur var með kindur,
kýr og hross. „Búskapurinn var
í blóðinu okkar og við kunnum
afskaplega vel við þetta líf og kýrnar.
En kýrnar hafa alltaf kunnað mun
betur við Guðrúnu en mig. Hún er
svo natin við þær, enda horfa þær
alltaf til hennar,“ segir Skúli.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Skúli Hreinn Guðbjörnsson og Guðrún Esther Jónsdóttir í fjósinu á Miðskógi. Mynd /smh
Guðrún Esther Jónsdóttir, Skúli Hreinn Guðbjörnsson, Guðmundur Svavarsson
frá Reykjagarði, Jóhannes Örn Pálmason og Sunneva Hlín Skúladóttir.
ÞÓR HF
thor.is
Fyrir
kröfuharða
Skúli með hamborgara beint frá Miðskógi í Dölum. Mynd /smh
Nautgripabændurnir á Miðskógi í Dölum hafa gert samning við
Reykjagarð um uppbyggingu á kjúklingaeldi á bænum. Í samningnum er
gert ráð fyrir að bændur nir reisi eldis hús fyrir um 13 þúsund kjúklinga
til að byrja með, sem geti skilað um 180 tonna ársframleiðslu af
kjúklingakjöti. Reykjagarður mun leigja af þeim húsið, kaupa þjónustu
við eldið og afurðirnar af bændunum. Verður Miðskógur þar með fyrsta
kjúklingabúið í Dölum.