Bændablaðið - 27.04.2023, Page 29

Bændablaðið - 27.04.2023, Page 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023 Skógræktarfélag Suður-Þingeyinga mun blása til afmælishátíðar í Fossselsskógi þann 24. júní nk. af tilefni þess að 80 ár eru síðan félagið var stofnað. Skógræktarfélagið var stofnað 19. apríl 1943 og er sambandsfélag deilda sem stofnaðar voru í hreppum Þingeyjarsýslu. Fossselsskógur hefur verið helsta skógræktarsvæði félagsins. „Fyrstu áratugina var aðalstarf félagsins að hvetja til og styrkja skógrækt á sem flestum jörðum í sýslunni og skógarreitirnir urðu liðlega eitt hundrað. Árið 1960 tók félagið á leigu helming af Fossselsskógi og 1966 fékk félagið leigusamning um allan skóginn. Næstu áratugi varð skógurinn aðalræktunarsvæði félagsins. Auk Fossselsskógar hefur félagið gróðursett umtalsvert svæði í Hjallaheiði í Reykjadal. Hin síðari ár hefur umhirða og nýting skóganna orðið aðalverkefni félagsins. Félagið hefur tekjur af höggi jólatrjáa og trén í Fossselsskógi hafa nú náð nýtingarstærð og munu næstu áratugi skila umtalsverðum viðarafla,“ segir í tilkynningu frá Agnesi Þ. Guðbergsdóttur, formanni Skógræktarfélags Suður-Þingeyinga. Nú verði grisjun og nýting skógarins mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins. „Gömlu heimilisskógarnir eru yndisreitir á fjölmörgum bæjum í sýslunni og skógar félagsins í Fossseli og á Hjallaheiði eru fögur útivistarsvæði. Kolefnisbinding úr andrúmslofti er orðin mikilvægur hluti skógræktar á Íslandi og skógar félagsins binda árlega mikið kolefni og munu gera um langa framtíð.“ Nánari upplýsingar um dagskrá afmælis- hátíðarinnar verða auglýstar þegar nær dregur. Hvað er ... PFAS? PFAS er skammstöfun á per- and polyfluorinated alkyl substances sem er flokkur manngerðra fjölliða, nytsamlegra til margra hluta. PFAS efni brotna seint eða aldrei niður í umhverfinu og færast upp fæðu- keðjuna. Aukin meðvitund er um skaðsemi efnanna á heilsu fólks og annarra lífvera. Helst ætti fólk að þekkja PFAS efni í Teflon steikingarpönnum og Gore- Tex útivistarfatnaði. Framleiðsla PFAS hófst á sjötta áratugnum og eru efnin eftirsótt í fjölmargar vörur vegna eiginleika þeirra til að hrinda frá sér vatni og fitu. PFAS byggja á sterku efnasambandi kolefna og flúors. Fyrirtækjum ber ekki skylda að taka fram hvort vörur þeirra innihaldi PFAS. Neytendur sem vilja sneyða hjá PFAS geta valið verslunarvörur með Svansmerki, öðrum umhverfismerkjum eða sem eru sérstaklega merktar PFAS- eða flúorfríar, eins og kemur fram á heimasíðu Umhverfis- stofnunar. Vatnsheldur útivistar- fatnaður með vaxhúð í stað Gore-Tex er umhverfisvænni lausn. Fjällräven var meðal fyrstu vöru- merkjanna til að fasa út allt PFAS í sínum útivistarvörum. Evrópska lífvöktunarverkefnið HBM4EU tekur fram í upplýsingabæklingum að 4.700 mismunandi efni teljast til PFAS efnahópsins. Það gerir vísindasamfélaginu erfitt að skil- greina hver skaðsemi hvers og eins er og koma með ráðleggingar hver skuli leyfð og hver ekki. Sum þeirra sem hafa verið rannsökuð eru grunaðir krabbameinsvaldar, talin hafa eituráhrif á æxlun, valda skjaldkirtilssjúkdómum, hækka kóle- strol, valda lifrarskaða, hafa neikvæð áhrif á ónæmiskerfið ásamt mörgum öðrum kvillum. ESB hefur til skoðunar að banna öll PFAS efni sem ekki hafa fengið staðfestingu á skaðleysi. Vegna mikillar notkunar PFAS undanfarna áratugi má gera ráð fyrir að líkamar flestra einstaklinga innihaldi efnin í einhverju magni. Efnin komast í líkamann ýmist í gegnum öndun, meltingarveg eða húð. Í gegnum lungun berst PFAS með ryki sem losnar frá hinum og þessum vörum. Í gegnum meltingarveginn berst PFAS með fjölmörgum fæðutegundum eins og fiski, kjöti, ávöxtum og eggjum. Einnig frá matvælum sem geymd eru í PFAS umbúðum eða elduð á PFAS pönnum. Slökkviliðsmenn eru í helstri hættu við að fá PFAS í gegnum húðina þar sem það er notað í eldvarnarefni og froður. Almenningur er minna útsettur fyrir PFAS í gegnum húð en getur fengið efnin í sig í gegnum notkun á málningu, vatnsfráhrindandi húð o.fl. PFAS dreifist auðveldlega um umhverfið, en efnin hafa fundist á heimskautunum og í óbyggðum um heim allan. Þau magnast á leið sinni upp fæðukeðjuna, en nýlega greindist mikið magn PFAS í lífrænum dönskum eggjum sem rakið var til fóðrunar varphænanna á fiskimjöli, en höfin eru menguð PFAS. Evrópska lífvöktunarverkefnið telur upp algenga hluti sem innihalda PFAS og er þar fyrst að nefna áðurnefndar viðloðunarfríar pönnur. Einnig eru listaðar upp umbúðir skyndibita eins og örbylgjupoppspokar, fitufrá- hrindandi pappír, pitsukassar og nammiumbúðir. Þá eru efnavörur eins og ofnahreinsir, fituhreinsir, blettaeyðir, stíflueyðir, málning, lakk, þéttiefni, blettaþolin húð notuð á teppi, klæðningu og annan textíl oft með PFAS. Algengar neysluvörur eins og vatnsfráhrindandi og efnaþolinn fatnaður, snyrtivörur eins og sjampó, tannþráður, naglalakk og farði innihalda oft PFAS. Sérhæfðari hlutir eins og eldvarnarfroður, smurefni og skíðavax byggja eiginleika sína gjarnan á PFAS. /ÁL Afmælisár Skógræktarfélags Suður-Þingeyinga Fyrstu áratugina var aðalstarf félagsins að styrkja skógrækt á sem flestum jörðum sýslunnar.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.