Bændablaðið - 27.04.2023, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Nýjasta viðbótin við félagskerfi
Bændasamtaka Íslands (BÍ) er
fiskeldisfyrirtækið GeoSalmo, sem
nýverið gekk inn í búgreinadeild
landeldis. Fyrirtækið hyggur á
uppbyggingu sinnar landeldis-
stöðvar í vor á Laxabraut við
Þorlákshöfn og kemur sér þar fyrir
við hlið fyrirtækisins Landeldis,
sem var stofnaðili búgreinarinnar
innan BÍ.
Bjarki Már Jóhannesson var
búgreinarfulltrúi GeoSalmo á
Búgreinaþingi BÍ sem haldið var
í febrúar. Hann segir að stöðin
þeirra verði í grundvallaratriðum
með þeim hætti, að þar verður
laxeldi í lokuðum landeldiskerjum
þar sem fiskur sé alinn frá hrogni í
sláturstærð. „Tæknin sem fyrirtækið
stefnir á að nota er svokölluð
„Hybrid flow-through“-tækni, eða
gegnumstreymi með endurnýtingu.
Það þýðir einfaldlega að vatn flæðir
í gegnum stöðina, en í stað þess að
fara beint í affall eftir að fiskurinn
hefur nýtt það er það endurnýtt að
stórum hluta, eða um 70 prósent,“
segir Bjarki.
Byggt upp í tveimur fösum
Bjarki segir að áætlunin sé að hefja
uppbyggingu núna á vordögum.
„Hafist verður handa við að grófjafna
lóðina og áætlað er að afhenda
lóðina í lok sumars til verktaka.
Planið er að reisa 24 þúsund tonna
landeldisstöð. Uppbyggingin verður
fasaskipt þar sem byrjað er á að reisa
eina línu af fiskeldiskerjum ásamt
fiskvinnslu og öðrum nauðsynlegum
innviðum. Eftir að fyrsta fasa er
lokið getur stöðin framleitt um
átta þúsund tonn á ári af laxi.
Seiðin fyrir þennan fyrsta fasa
munu koma úr seiðaeldisstöðinni
á Laugum í Landsveit sem félagið
hefur keypt og er verið að taka í
gegn og nútímavæða. Í seinni fasa
framkvæmdarinnar er svo tveimur
línum af fiskeldiskerjum bætt við og
framleiðslugetan fer upp í 24 þúsund
tonn á ári. Þá verður einnig reist
endurnýtingarkerfi, seiðaeldisstöð
og gróðurhús sem nýtir affallsvatn
frá seiðaeldinu.
Við stefnum á að byrja að
slátra úr fyrsta fasanum á fyrsta
ársfjórðungi ársins 2026 og full
afköst ættu að nást í kringum 2029-
2030,“ útskýrir Bjarki.
Sérfræðingar ráðnir
til verkefnisins
Fyrirtækið GeoSalmo er að stærstum
hluta í eigu Aðalsteins Jóhannssonar
sem var fjárfestir í gagnavera-
geiranum, hjá Advania og fjár-
festingabankanum Beringer Finance.
Aðalsteinn hefur, að sögn Bjarka,
ekki áður komið að fiskeldi en
fyrirtækið hefur ráðið til sín hóp
sérfræðinga sem kemur að hönnun
og skipulagningu á stöðinni í
Þorlákshöfn. „Við höfum til að
mynda fengið norska fyrirtækið
Artec Aqua til að hanna og byggja
fiskeldisstöðina en þeir hafa reynslu
af uppbyggingu sambærilegra
verkefna í Noregi, sem hafa gefið
góða raun,“ segir Bjarki.
Hann segir að áhugi sé á að byggja
upp stöðvar í fleiri sveitarfélögum.
„Fyrirtækið er komið í viðræður
á fleiri stöðum um mögulegar
staðsetningar. Þar ber helst að nefna
land í sveitarfélaginu Vogum þar
sem aðstæður fyrir landeldi eru mjög
ákjósanlegar og hefur fyrirtækið
þegar hafið formlegar viðræður við
sveitarfélagið.“
Vatn, raforka og fóður
Helstu hráefni fyrir rekstur
landeldisstöðvar eins og GeoSalmo
ætlar að reisa í Þorlákshöfn, eru
ferskt vatn, sjór, heitt vatn, raforka
og fóður.
Bjarki segir að á fullum afköstum
sé áætlað að hámarks vatnsþörf sé
750 lítrar á sekúndu af fersku vatni,
18.500 lítrar á sekúndu af sjó og átta
lítrar á sekúndu af heitu vatni.
„Í fullbyggðri stöð þarf um 28.800
tonn af fóðri á ári. Við leggjum
áherslu á innlent hráefni. GeoSalmo
stefnir að því að versla fóður frá
íslenska framleiðandanum Laxá. Enn
fremur hefur fyrirtækið lagt áherslu á
það við fóðurframleiðendur að beina
markaðssetningu sinni að Íslandi,
þar sem íslenskt afgangshráefni
sem flutt eru út í dag getur nýst
í laxafóður.
BioMar, sem er einn af þremur
stærstu fóðurframleiðendum heims,
hefur ásamt Síldarvinnslunni
tilkynnt um áform sín í þessa veru og
fleiri eru að kanna möguleikana. Að
því marki sem erlend plöntuhráefni
væru nýtt til þeirrar fóðurframleiðslu
væri skilyrði um að þau væru
upprunavottuð.
Sjálfbært hráefni til fóðurgerðar
Bjarki segir mikla þróun vera í gangi
í framleiðslu á sjálfbærum hráefnum
fyrir laxafóður – og GeoSalmo
fylgist vel með henni. „Með fóðri frá
Laxá eða nýrri verksmiðju BioMar
verður kolefnisspor þess fóðurs sem
GeoSalmo nýtir með því allra lægsta
sem um getur í nokkru dýrafóðri,
enda ekki um að ræða flutninga
á hráefnum eða fullunnu fóðri
milli landa.
Vatn kemur úr grunnvatnsauðlind
á svæðinu sem mun verða borað eftir
– bæði jarðsjó sem og fersku vatni
en mikill meirihluti vatns sem nýttur
verður í stöðinni verður sjór.
Stefnt er á samning við Lands-
virkjun til kaupa á rafmagni en
reiknað er með að eldið þurfi um
25 megavött á ári.“
Rask á hrauni helstu neikvæðu
umhverfisáhrifin
GeoSalmo hefur markað sér þá
umhverfisstefnu að lágmarka
neikvæð áhrif á umhverfið frá
sinni starfsemi, nýta auðlindir á
ábyrgan hátt og endurnýta úrgang
eins og hægt er. Fyrirtækið aðhyllist
hugmyndir um hringrásarhagkerfið.
Bjarki segir að helstu neikvæðu
umhverfisáhrif af GeoSalmo
stöðinni verði landnýtingin og raskið
á hrauninu á svæðinu þar sem
stöðin verður byggð. „Svæðið er
þó skipulagt sem iðnaðarsvæði
á deiluskipulagi sveitarfélagsins
og því áætlanir um að nýta það
hvort sem það er GeoSalmo eða
eitthvað annað. Töluvert þarf af
vatni í svona starfsemi og mun það
koma úr grunnvatni, bæði jarðsjór
og ferskvatn. Samlegðaráhrif
vatnsvinnslu á svæðinu getur skapað
niðurdrátt í grunnvatnsgeyminum
sem gæti verið „óæskilegt“ en þess
vegna hefur verið komið á samvinnu
milli hagaðila á svæðinu um að vakta
þessa mikilvægu auðlind.
Þá liggur stærsti hluti kolefnis-
fótspors fiskeldis í fóðrinu og
með því að versla innanlands frá
fóðurframleiðanda sem nýtir innlent
hráefni eins og hægt er má minnka
það mjög mikið.“
Kostir og gallar landeldis
og sjóeldis
Þegar Bjarki er spurður um muninn
á landeldi og sjóeldi, segir hann
að báðar aðferðirnar hafi kosti og
galla – önnur komi ekki endilega
í stað hinnar. „Fiskeldi á landi
veitir augljóslega möguleikann
á að stýra umhverfisaðstæðum
nær fullkomlega þar sem sjóeldið
stjórnast mikið af duttlungum
náttúrunnar. Þar á móti þarf að
kosta til miklu landrými og öðrum
auðlindum, ásamt fjármagni, til þess
að öðlast þessa stjórn.
Sjóeldi býr að því að þurfa ekki
land en kvíar í sjó rúma töluvert fleiri
rúmmetra en ker á landi og vegna
takmarkana á stjórn umhverfisins
er nauðsynlegt í sjóeldi að velja
staði þar sem straumar og súrefni
eru náttúrulega fyrir hendi en þar
sparast orka. Óneitanlega er einnig
mun minni líkur á og auðveldara
að sporna við slysasleppingum úr
landeldi en úr sjóeldi eins og staðan
er í dag.
Það er auðveldara líka að hafa
stjórn á sjúkdómavaldandi veirum
og bakteríum í landeldi. Það er til
dæmis hægt að meðhöndla vatn áður
en það nær til fiskanna í landeldi og
fiskurinn er yfirleitt bólusettur við
helstu sjúkdómavaldandi bakteríum
sem bóluefni er til við.
Það er líka hægara að meðhöndla
sjúkdóma sem koma upp í landeldi
og varna útbreiðslu úr einu kari til
annars. Í sjóeldi er mun erfiðara að
eiga við slíkt en þar er nokkuð opið
á milli kvía.“
Bjartsýnn á framtíðina innan BÍ
Bjarka líst gífurlega vel á að vera
komin í BÍ, enda séu GeoSalmo og
aðrir í fiskeldi vissulega bændur.
„Hjá okkur verður alinn fiskur
á landi sem gerir okkur kleift að
safna skít og fóðurleifum sem til
verður í framleiðslunni. Slíkt hráefni
getur síðan nýst í áburð í öðrum
landbúnaði.
Við sjáum því fyrir okkur að
til framtíðar séum við og önnur
eldisfyrirtæki góð viðbót í BÍ og
matvælaframleiðslu á Íslandi og
þegar fram líða stundir órjúfanleg
frá heildinni.“
LÍF&STARF
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Fiskeldi í Þorlákshöfn
– GeoSalmo hefur uppbyggingu nú í vor á 24 þúsund tonna landeldisstöð
Tölvuteikning af landeldisstöð GeoSalmo í Þorlákshöfn.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Bjarki Már Jóhannesson er yfir
viðskiptaþróun GeoSalmo.