Bændablaðið - 27.04.2023, Side 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Í lok árs 1953 hófst smíði á nýjum
dráttarbát fyrir Reykjavíkurhöfn í
Stálsmiðjunni í Reykjavík. Með því
hófst nýr kafli í íslenskri iðnaðar-
sögu, en fram að því hafði ekkert
stálskip verið smíðað hérlendis.
Magni II var í fullri notkun frá
1955 til 1987, þegar vélin skemmdist.
Hollvinasamtök hafa tekið uppgerð
skipsins að sér.
„Okkur ber að varðveita þetta
skip, sem er fyrsta stálskip smíðað á
Íslandi,“ segir Axel Orri Sigurðsson,
formaður Hollvinasamtaka Magna
II, sem vinna nú í sjálfboðavinnu að
því að reisa skipið til fyrri dýrðar.
Hann hefur sökkt sér í sögu þessa
skips og fræddi Bændablaðið um
málið. Á sjötta áratugnum var ljóst
að þörf væri á öflugum dráttarbát í
Reykjavíkurhöfn, þar sem skip sem
hingað komu voru sífellt stækkandi.
Þá var í notkun gufuknúinn
dráttarbátur, sem var keyptur átta ára
gamall frá Hamborg árið 1928, og bar
nafnið Magni.
Hjálmar R. Bárðarson, fyrsti
skipaverkfræðingur Íslendinga, var
einn helsti hvatamaðurinn að smíði
nýs Magna. Hann var jafnframt
þekktur sem mikilvirkur ljósmyndari
og gaf út bækur, eins og Fuglar
Íslands; og Ísland – svipur lands og
þjóðar; og Fyrsta stálskip smíðað á
Íslandi. Sú síðastnefnda fjallar um
Magna II.
Fjölnotaskip
Hjálmar hannaði Magna II sem
fjölnotaskip og var hann því útbúinn
bómu, til að geta þjónustað baujur.
Jafnframt var hann með stóra
vatnstanka til að flytja neysluvatn í skip
og útbúinn öflugum slökkvidælum.
Enn fremur var skrokkurinn á Magna
II úr þykku stáli og nýttist hann sem
ísbrjótur. Aðstaðan til að smíða skip
hérlendis var fábrotin og segir Axel
Orri að Hjálmar hafi hannað vél til
að beygja stálplötur. Eini kraninn
sem Stálsmiðjan hafði aðgang
að til að koma 22 tonna þungum
mótornum fyrir var þungalyftibóma
í flutningaskipinu Tröllafossi.
Magni II var fullsmíðaður árið
1955. Stálsmiðja Reykjavíkur hóf
þegar framleiðslu á öðru skipi, sem
var varðskipið Albert og var smíði
hans lokið árið 1956. Sama teikning
var notuð við smíði brúarinnar á
báðum þessum skipum.
Bræddi úr sér
Vélin í Magna II var 1.000 hestafla,
átta strokka dísilmótor frá Deutz.
Hún gekk á föstum snúningum og var
hraða skipsins stjórnað með að breyta
halla skiptiskrúfunnar. Togkraftur
Magna var tólf tonn. Til samanburðar
er öflugasti dráttarbáturinn hjá
Faxaflóahöfnum í dag með 85 tonna
togkraft. Þessi tala segir þó ekki allt,
því með tólf tonna togkrafti er hægt
að draga skip sem er hundruð tonna.
Eitt af helstu verkefnum Magna
var að fylgja Gullfossi inn og út úr
höfninni. Hann var þó ekki einungis
notaður í Reykjavík, heldur fór hann
í fjölmörg verkefni í Faxaflóanum
og víðar. Þegar Magni var í siglingu
árið 1987 varð áhöfninni á þau mistök
að gleyma að opna fyrir kælinguna á
smurolíunni, sem varð til þess að vélin
bræddi úr sér.
Fljótlega varð ljóst að ekki væri
hægt að gera við mótorinn og þar með
var Magna II lagt.
Ætla að koma í gott stand
Axel Orri segir að eftir það hafi Magni
II legið í reiðileysi við bryggju og
ástand skipsins komið á viðkvæman
stað. Faxaflóahafnir afhentu Magna
II til eignar árið 2013 og árið 2017
voru Hollvinasamtök Magna stofnuð.
Þau samtök hafa það að markmiði
að koma skipinu í eins upprunalegt
horf og hægt er, í samstarfi við
Borgarsögusafnið.
Fyrstu verkin voru að þurrka
skipið að innan með því að þétta
leka og kynda. Einnig þurfti að losa
út mikið magn af ryðdrullu og öðrum
óhreinindum. Borgarsögusafnið
hafði þegar fjarlægt talsvert af
innanstokksmunum og varðveitt
í geymslu. Aðspurður um ástand
bátsins í dag segir Axel að enn sé
mikið sem þurfi að gera. Árið 2018
fór Magni II í slipp þar sem hann
var málaður og var skrokkurinn
þykktarmældur, sem kom heilt yfir vel
út. Þó segir Axel Orri nauðsynlegt að
skipta út plötum á nokkrum stöðum í
sjólínu fyrr en síðar. „Með tíð og tíma
þarf að taka skipið í gegn frá A til Ö.“
Ný vél frá Danmörku
Hollvinasamtök Magna fundu vél í
Danmörku, sem er nánast alveg eins
og sú upprunalega, nema tíu árum
yngri og í góðu ástandi. Þau fóru í átak
til að fjármagna kaupin og flutninginn
til landsins. Eftir að hafa verið í
geymslu síðan 2019 er nýlega búið
að koma henni í vélarrúm bátsins.
Gamla vélin var útbúin túrbínu, en
nýi mótorinn er að auki útbúinn
skolloftskæli (e. intercooler) og er
þar af leiðandi nokkuð aflmeiri.
Núna á eftir að ganga frá
vélinni þannig að hún sitji rétt í
vélarrúminu. Síðan þarf að yfirfara
hana alla áður en hægt er að setja
hana í gang. Jafnframt þarf að koma
sjólögnum og rafmagnskerfi í lag
áður en hægt er að sigla Magna á ný.
Á Facebook-síðu hollvinasamtakanna
er hægt að fylgjast með framgangi
uppgerðarinnar.
Lán í óláni
Andrés Hafberg vélfræðingur vann í
íhlaupum á Magna II á árunum 1983
til 1984. Hann segir að ef ekki hefði
brætt úr vélinni hefði skipið líklegast
verið selt fyrr en síðar og væri núna
orðið að brotajárni. „Það má kannski
segja að þetta hafi verið lán í óláni.“
Sjálfur hefur hann ekki tekið þátt í
starfi hollvinasamtakanna, en segir
þau vinna mjög lofsvert verk.
Andrés segir að í áhöfn hafi
verið fjórir menn, eða skipstjóri,
stýrimaður, vélstjóri og háseti. Hann
segir að heilt yfir hafi verið gott að
vinna á bátnum, en þó hafi Magni
II verið kominn til ára sinna. Hann
nefnir í því samhengi rafkerfið, sem
upphaflega var með jafnstraumi, en
eftir að varahlutir hættu að fást varð
það að samblandi jafnstraums og
riðstraums.
Selfluttu neysluvatn
Yfirleitt voru verkefnin stutt og hægt
að klára á einum degi. Hins vegar kom
fyrir, ef mjög hvasst var í veðri, að
Magni þurfti að liggja á skipum hátt
í sólarhring. Þá var dráttarbáturinn
með stefnið í síðu skipsins og þrýsti
að höfninni, þar sem landfestar voru
gjarnan ekki nógu góðar á þessum
árum og hætt var á að þær slitnuðu.
Eitt af þeim verkefnum sem
Andrés tók þátt í var að ferja vatn
í skemmtiferðaskipið Edduna.
Við Kleppsbakka var ekki nógu
öflugt vatnskerfi til þess að
neysluvatnstankarnir fylltust á þeim
fjórum tímum sem Eddan lá við
bryggju hverju sinni. Því hafi áhöfn
Magna nálgast vatn í Korngörðum,
sem eru nokkur hundruð metrum frá,
og sótt nálægt 150 þúsund lítrum í
þremur ferðum.
„Hann var þokkalegur, en var
orðinn ansi fúinn og það var farið
að leka inn með dekkinu í eldhúsið.
Hann var ágætur á þessum tíma, en
myndi ekki standast nokkrar kröfur
í dag og hann var orðinn illa farinn
fyrir 40 árum,“ segir Andrés Hafberg.
SAGA VÉLAR
Fyrsta íslenska stálskipið
– Sjálfboðaliðar Hollvinasamtaka Magna II ætla að koma honum í upprunalegt horf
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Keypt var notuð vél frá Danmörku og er nýlega búið að koma henni í
Magna II. Mynd / Böðvar A. Eggertsson.
Dráttarbáturinn Magni II í Reykjavíkurhöfn. Unnið er að uppgerð skipsins í sjálfboðastarfi hollvinasamtaka.
Mynd / Jón Kr. Friðgeirsson
Upphafsmenn Hollvinasamtaka Magna II. Axel Orri Sigurðsson, Friðrik Friðriksson og Böðvar Eggertsson. Mynd / Jón Kr. Friðgeirsson