Bændablaðið - 27.04.2023, Síða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Vísnagerð er þjóðariðkun frá
fornu fari og hlutverk þeirra
og efni eru nánast samofið lífi
þjóðarinnar, samkvæmt vefsíðu
kvæðamannafélagsins Iðunnar.
Þessum arfi okkar Íslendinga er
enn haldið á lofti, en Landssamtök
kvæðamanna héldu landsmót á
dögunum, nánar tiltekið helgina
21.–23. apríl sl. Var margt um
manninn, mæting góð frá bæði
aðildarfélögum svo og öðrum
gestum, en kvæðamannafélögin
Iðunn frá Reykjavík og Vatns-
nesingur V-Húnavatnssýslu héldu
utan um mótið.
Formaðurinn tekur til höndum
„Það var afar vel mætt þetta
árið,“ segir Bára Grímsdóttir, sem
gegnir hlutverki bæði formanns
Iðunnar og Stemmu, sem er heiti
Landssamtakanna, og bætir við að til
kvöldverðar á laugardeginum hefðu
bókast yfir sextíu sæti.
Bára, sem er fædd og uppalin í
kvæðamannafjölskyldu, telur þó ekki
eftir sér þá miklu vinnu sem liggur að
baki, en hún ásamt fleirum hafa verið
að skipuleggja mótið síðan í fyrravor.
Meðal annars hafa skipuleggjendur
velt fyrir sér hentugum stað fyrir
áætlaðan fjölda, grennslast fyrir um
skáld fyrri tíma sem eiga rætur að
rekja til staðarins svo og þá sem
miðla vilja af sköpun sinni eða visku.
Bára stóð sjálf fyrir kveðskapar-
námskeiði á laugardeginum, rakti þar
sögu systkinanna frá Bergsstöðum, en
fjögur þeirra fluttust til Reykjavíkur í
upphafi tuttugustu aldar og stofnuðu
Kvæðamannafélagið Iðunni árið
1929. Nokkru síðar, á árunum 1935-
36, héldu þau í stúdíó og létu hljóðrita
þar 200 stemmur sem Steindór
Andersen, formaður Iðunnar, lét gefa
út í tilefni 75 ára afmælis félagsins
árið 2004. Samkvæmt ræðu sem var
haldin á útgáfuhátíð Iðunnar þann 15.
september sama ár kom fram að:
Kvæðamennirnir á silfurplötum
Iðunnar eru aðeins 13 að tölu en
þeir kveða stemmur sem rekja má
til 70 annarra kvæðamanna víðs
vegar að af landinu. Við útgáfuna
var kappkostað að finna hvaða
kvæðamenn fylltu þennan hóp, hvar
þeir bjuggu og allt annað sem varpaði
ljósi á uppruna laganna.
Þá var rakin slóð til jafn
margra skálda og hagyrðinga sem
áttu lausavísur eða rímnabrot á
upptökunum. Alls koma því um 170
kvæðamenn, skáld og hagyrðingar við
sögu á silfurplötum Iðunnar.
Gaman er að geta þess að við
það tilefni var yngsta kvæðamanni
Silfurplatnanna, Jóni Eiríkssyni, þær
færðar að gjöf, en hann var níu ára
árið 1935.
Fór Bára einnig yfir kvæðamenn
frá Vatnsnesi og feril Jóns Lárussonar,
kvæðamanns frá Hlíð í Vatnsenda,
dóttursonar Bólu-Hjálmars, en hann
var vel þekktur fyrir kunnáttu sína og
leikni á þessum sviðum.
Lifandi og skemmtileg dagskrá
Dagskrá helgarinnar var eins og geta
má mjög lifandi og skemmtileg,
en strax á föstudagskvöldinu
fóru kvæðafélögin mikinn á sviði
félagsheimilis Hvammstanga og
flutti hvert félag stemmur og kvæði
með sínum brag. Voru meðlimir
Gefjunar frá Akureyri áberandi,
en þar mátti bæði finna yngsta
meðlim Landssamtakanna, Níels
Ómarsson, svo og Þór Sigurðsson, en kröftugur flutningur hans á vísu
Bólu-Hjálmars, „Ofan gefur snjó á
snjó“ gaf viðstöddum gæsahúð og það
sjálfsagt ekki í fyrsta skipti sem þessi
ágæti kvæðamaður hefur mikil áhrif.
Ofan gefur snjó á snjó
snjóum vefur flóa tó.
Tófa grefur móa mjó
mjóan hefur skó á kló.
Aðspurður segist yngsti
meðlimurinn, Níels, þó ekki vera alinn
upp í kvæðamannaumhverfi heldur
hafi hann einskæran áhuga á öllu því
sem tengist fyrri áratugum. Níels er
t.a.m. félagi í þjóðháttafélaginu
Handraðanum á Akureyri og leist
öðrum meðlimi þar þannig á að
hann ætti hvergi betur heima en í
kvæðamannafélagi. Níels, sem hefur
fengið lof fyrir frammistöðu sína sem
kvæðamaður, á því framtíðina fyrir
sér í þeim efnum.
Kveðja
Skáldið og kvæðamaðurinn Sigurður
Sigurðarsson, fyrrverandi dýralæknir,
bar kveðju frá Steindóri Andersen en
vegna veikinda gat Steindór ekki sótt
landsmótið.
Steindór Andersen hefur um
árabil verið einn þekktasti kvæða-
maður okkar þjóðar, ötull í því starfi
er kemur að íslenskri rímnahefð
og fengið mikið lof fyrir flutning.
Minnisstætt er samstarf Steindórs
og hljómsveitarinnar Sigur Rósar
í kringum aldamótin sem meðal
annars gaf af sér plötuna Rímur.
Til viðbótar hafa a.m.k. komið út
þrjár plötur til viðbótar, m.a. þar sem
Steindór kveður Úlfhamsrímur, en
meðal samstarfsmanna hans er Hilmar
Örn Hilmarsson allsherjargoði.
Killi mara kussu mu
Fyrsta erindi laugardagsins var í
höndum Agnars nokkurs Levy, af
mörgum þekktur sem skemmtilegur
og margfróður grúskari er kemur
að kveðskaparlistinni. Hann hóf
fyrirlestur sinn með þeim orðum að
honum litist ekkert á að hafa verið
úthlutað það verkefni að fjalla um
helstu skáld Vatnsness á hálftíma,
enda þyrfti helst að fjalla til jafns um
þau sem ekki væru jafn áhugaverð
– svo hin fengju að njóta sín. Agnar
naut sín annars vel í pontu og minntist
á heilmörg ágætis skáld, þar á meðal
Sigurð Bjarnason, eitt afkastamesta
skáldið sem m.a. hafði gert 966 vísur
með 10-11 bragarháttum. Sæunn
Jónsdóttir var nefnd, frá árinu 1790,
en hún var var þó skilningslaus á
tungumálið eins og við flest þekkjum
það. Þróaði hún sitt eigið og samdi
vísur hin djarfasta, sem falla undir
allar réttar kveðskaparreglur. Sem
dæmi má nefna fyrstu línu einnar
vísu hennar; „Killi mara kussu mu…“
Eftir hádegisverðinn tók ungliðinn
Linus Orri Gunnarsson Cederborg við
keflinu en hann hefur verið stjórnandi
Kvæðakórs Reykjavíkur um nokkurt
skeið. Leiðbeindi hann gestum við
þjóðlagasöng í einföldum útsetningum
og gladdi viðstadda með hressilegri
framkomu og stjórnun enda sungið
af hjartans lyst.
Að því loknu var haldið í heimsókn
LÍF&STARF
Hvammstangi:
Landsmót kvæðamanna
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is
Meðlimir kvæðamannafélagsins Gefjunar frá Akureyri voru hressir.
Gleði og áhugi ríkti jafnan meðal gesta.
Þeir voru reffilegir félagarnir, Agnar Levy og Sigurður Sigurðarson.
Þessar stúlkur voru hluti kvæðamannafélagsins Ríma frá Fjallabyggð.
Meðlimir kvæðamannafélagsins Vatnsnesings nutu mikillar hylli.
*Afborganir miðast við Lykillán fyrir 75% af kaupverði til 60 mánaða frá Lykli fjármögnun. Vextir miðast við
11,25% breytilega vexti og eru tengdir við eins mánaða reibor vexti. Lánaskilmála má finna á www.lykill.is.
Árleg hlutfalltala kostnaðar – ÁHK er 13,46% - Verð innifelur virðisaukaskatt.
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | S: 540 4900 | www.yamaha.is
10
ÁBYRGÐ Á DRIFREIM
ULTRAMATIC
ÁBYRGÐ
LÁNSHLUTFALL
ALLT AÐ
75%
Í ALLT AÐ 60 MÁNUÐI
Verð: 2.690.000 kr.
700cc fjórgengis-4WD-H/L
drif- driflæsing-spil-raf-
magnsstýri- dráttarkú-
la-götuskráð-hvít númer
307kg eigin þyngd.
GRIZZLY
45.672 kr.*
afborgun á mánuði