Bændablaðið - 27.04.2023, Síða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Nú er búið að keyra erfðamat í
nokkur skipti og kynbóta-/erfða-
mat er nú uppfært því sem næst
mánaðarlega í Huppu. Þetta þýðir
að einkunnir einstakra gripa taka
örar breytingum en þegar matið
var keyrt 3-4 sinnum á ári. Það
fylgir því ávallt nokkur spenna
þegar gripir fá sitt fyrsta mat.
Nautin sem
hafa verið í
notkun á undan
förnum vikum
skarta erfðamati
og nokkur þeirra
einnig afkvæma
dómi. Það liggur
í hlutarins eðli að
öruggasta matið
er á þeim nautum
sem hafa bæði arfgreiningu og
afkvæmadóm og það á við um nautin
fædd 2017. Þau nautanna sem yngri
eru hafa erfðamat þar sem öryggið
er nánast það sama og á nauti sem
nýlokið hefur afkvæmaprófun.
Stóra breytingin sem varð í haust
þegar innleiðing erfðamengisúrvals
hófst er sú að nú keyrum við ekki
kynbótaskipulagið lengur með
reyndum og óreyndum nautum.
Þau naut sem eru í notkun núna
er öll „reynd“ að því leyti að
mat þeirra byggir á ætterni og
arfgreiningum. Það þýðir að mat
þeirra er nægilega öruggt til þess að
setja þau í notkun án þess að fram
hafi farið afkvæmaprófun. Á sama
tíma var skipt yfir í að val og kaup
nautkálfa á Nautastöðina á Hesti
byggir alfarið á arfgreiningum.
Með þeim hætti á að vera tryggt
að sá hópur sem þangað kemur til
kynbóta í íslenska kúastofninum er
eins góður og kostur er, þetta er og
verður rjóminn af nautum landsins.
Úr því minnst er á rjóma, þá
erum við nú í þeirri stöðu að úr
þeim nautum sem fædd voru 2018
2022 fleytum við rjómann. Þá á
ég við að við tökum eingöngu til
nota allra bestu nautin úr þessum
árgöngum enda sést það glöggt á
þeim nautum sem til boða standa
að þarna fara engir meðaljónar.
Allt eru þetta naut sem hafa til að
skarta einkunnum sem hingað til
hafa þótt nautsfeðrum sæmandi.
Nú er nautunum ekki lengur skipt
í nautsfeður og kýrfeður.
Öll naut sem í notkun eru
geta orðið nautsfeður. Þetta er
rétt að hafa í huga og tilkynna
um nautkálfa undan góðum og
hátt metnum kúm og ekki síður
efnilegum kvígum sem vonir eru
bundnar við. Hver veit nema að
kálfurinn sem fæddist í nótt eða
morgun hafi til að bera flesta þá
kosti sem við sækjumst eftir, það
gæti verið nýr Kaðall, Birtingur,
Sjarmi, Jörfi, Kvóti, Marmari,
Banani eða Óðinn sem stendur hjá
móður sinni í burðarstíunni. Þá er
um að gera að hafa samband við
okkur hjá RML, kanna hvort ekki
sé áhugi fyrir kálfinum og saman
tökum við ákvörðun um hvort taka
eigi sýni úr gripnum.
Þarna gildir ekki hógværðin, ekki
hugsa sem svo að það verði aldrei
tekið naut á stöð frá búinu. Það er
enginn erfðafræðilegur munur milli
búa þannig að í hverju einasta fjósi
landsins geta leynst gullmolar og
því fleiri gripi sem við höfum úr
að velja, því betra. Vinnulagið er
þá þannig að kálfurinn fær DNA
merki í eyrað, merkið er sett í til
þess gerðan plastpoka merktan
forgangssýni og sent. Sýnið fer þá
í forgang í greiningu og að lokinni
greiningu er keyrt erfðamat sem
gefur til kynna hvaða eiginleikum
kálfurinn býr yfir. Þá er tekin
ákvörðun um hvort hann verður
keyptur til kynbóta að Hesti eður ei.
Plastpokarnir sem ég minntist á
eru sérmerktir og ráðunautar RML
eru þessa dagana að dreifa þeim
samhliða kúaskoðunum.
Þá er einnig hægt að fá á
starfsstöðvum RML á Hvanneyri,
Sauðárkróki, Akureyri, Egils
stöðum og Selfossi.
Nóg um það að sinni, nú er rétt
að líta aðeins á nautin sem eru í
notkun. Í kútum frjótækna eru nú
17 naut, hvert öðru betra.
Faðerni þeirra er dreift þannig
að menn hafi sem breiðastan grunn
til þess að velja úr og geti forðast
pörun mjög skyldra gripa eins
og kostur er. Hér á eftir fer stutt
umfjöllun um þá í aldursröð.
Búkki 17031 frá Lundi í Lundar
reykjadal er Dropasonur 10077 og
móðurfaðir er Bolti 09021. Eins
og ætternið bendir til gefur Búkki
stórar og háfættar kýr en hans
meginstyrkur liggur í úrvalsgóðri
júgurgerð. Helsti gallinn eru
fremur stuttir og grannir spenar.
Heildareinkunn 108.
Ós 17034 frá Espihóli í Eyjafirði
er undan Úlla 10089 og móðurfaðir
er Kambur 06022. Kostir Óss
eru miklir, mjólkurlagni dætra,
úrvalsgóð júgurgerð og góðar
mjaltir en gallinn er lág efnahlutföll
í mjólk. Heildareinkunn 109.
Títan 17036 frá Káranesi í Kjós
er sonur Úranusar 10081 og
móðurfaðir er Dynjandi 06024.
Títan er öflugt naut sem skartar
góðri júgurgerð dætra ásamt
frábærum mjöltum og úrvalsgóðu
skapi. Galla er fáa eða mjög
litla að finna í dætrahópnum.
Heildareinkunn 108.
Kollur 18039 frá StóruMörk undir
Eyjafjöllum er Skallasonur 11023
og móðurfaðir er Flóki 13020.
Þarna er á ferðinni naut sem á að
gefa miklar mjólkurkýr með góða
júgur og spenagerð og frábært
skap. Gallar ættu að verða litlir sem
engir og þá helst að efnahlutföll í
mjólk muni liggja um meðallag.
Heildareinkunn 110.
Tindur 19025 frá Hvanneyri í
Andakíl er sonur Sjarma 12090 og
móðurfaðir er Klettur 08030. Dætur
Tinds verða að öllum líkindum
fádæma mjólkurlagnar kýr með
góða júgurgerð, úrvalsgóðar
mjaltir og gott skap. Helstu gallar
á þeim gætu orðið efnahlutföll
í mjólk undir meðallagi og að
þær verði í lágfættari kantinum.
Heildareinkunn 112.
Skáldi 19036 frá Skáldsstöðum
í Eyjafirði er undan Bárði 13027
og móðurfaðir er Klettur 08030.
Þarna er fer enn eitt úrvalsnautið
sem skartar væntingum um
mjólkurlagnar kýr með góða
júgurgerð, mjög góðar mjaltir og
sélega gott skap. Eini gallinn á þeim
verður líklega lágt próteinhlutfall í
mjólk. Heildareinkunn 109.
Kvóti 19042 frá YtriTjörnum í Eyja
firði, sonur Sjarma 12090 og dóttur
sonur Úlla 10089, kom til
notkunar í haust með miklum
glæsibrag. Hann skartar geysigóðu
afurðamati, hefur til að bera mikla
júgurhreysti og mjög góðar mjaltir
og skap.
Helstu gallar eru að júgurgerð
virðist um meðallag og rétt er að
hafa í huga að spenar eru nettir.
Fyrir áhugamenn um liti er Kvóti
án efa spennandi en hann var
dökkkolóttur með gráar yrjur og
erfir því líklega frá sér gráan lit.
Heildareinkunn 115.
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Af nautum og erfðamati
Kvóti 19042 frá Ytri-Tjörnum í Eyjafirði, sonur Sjarma 12090 og dóttursonur Úlla 10089.
Óðinn 21002 frá Birtingaholti 4 í Hrunamannahreppi er undan Kláusi 14031 og móðurfaðir er Úlli 10089.
Kaldi 21020 frá Hraunhálsi í Helgafellssveit er undan Risa 15014 og móðurfaðir er Foss 09042.
Guðmundur
Jóhannesson.