Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 67
67Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Dýraúrgangur er eðlilegur fylgi-
fiskur í matvælaframleiðslu úr
dýraafurðum auk þess sem alltaf
fellur til dýraúrgangur af öðrum
ástæðum. Dýrahræ eru skilgreind
sem landbúnaðarúrgangur sam-
kvæmt reglugerð um urðun úrgangs.
Samkvæmt
7. gr. reglu-
gerðarinnar er
einungis heimilt
að urða dýrahræ,
smitandi slátur-
úrgang og annan
smitandi land-
búnaðarúrgang
að fengnu leyfi
U m h v e r f i s -
stofnunar að höfðu viðráði við
héraðsdýralækni.
Svona er staðan, hvað er þá
vandamálið?
Úrræði vantar
Vandamálið er að núverandi lög
og reglur ganga ekki upp þar sem
nauðsynlega innviði skortir. Það
er einungis einn brennsluofn til að
brenna hræ hér á landi og annar
hann ekki þörf. Úrgangsmál eru á
ábyrgð sveitarfélaganna og falla
undir lögbundið hlutverk þeirra,
þ.e. söfnun og meðferð úrgangs og
skólps. En segja má að dýrahræ sé
úrgangsflokkur sem snýr minna að
loftslagsmálum og auðlindanýtingu
heldur fremur að sóttvarnar- og
hollustuháttasjónarmiðum.
Staðan hefur verið sú um tíma að
nokkur sveitarfélög hér á landi hafa
boðið upp á þá þjónustu að safna
saman dýrahræjum af sjálfdauðum
dýrum, dýrum sem lógað er vegna
sjúkdóma auk sláturúrgangs og komið
til förgunar.
Söfnun hræja og förgun er bæði
mjög dýr og erfið í framkvæmd, m.a.
vegna varnarlína og er þessi leið varla
í boði lengur þar sem sveitarfélögin
koma ekki lengur úrganginum frá sér.
Sameiginleg ábyrgð
EFTA dómstóllinn hefur komst að
þeirri niðurstöðu að Ísland hafi ekki
staðið við skuldbindingar sínar hvað
varðar meðferð dýraleifa, einkum
með því að hafa hvorki komið á
viðeigandi kerfi til að meðhöndla
dýraleifar með þeim hætti sem mælt
er fyrir um í lögum, né eftirlitskerfi til
að tryggja að þessum lagafyrirmælum
sé fylgt. Dómstóllinn sagði einnig að
íslensk stjórnvöld hafi látið það hjá
líða að koma í veg fyrir að dýrahræ,
sláturúrgangur af áhættuflokki 3
og úrgangur frá heimaslátrun væru
urðuð á viðurkenndum urðunar-
stöðum og að koma í veg fyrir að
dýrahræ og úrgangur frá heimaslátrun
séu grafin á staðnum án þess að
uppfyllt séu skilyrði reglugerða.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
gaf út nýverið minnisblað sem fjallar
um ráðstöfun dýraleifa, þ.m.t. um
ábyrgð sveitarstjórna og mögulegar
úrvinnsluleiðir og er ætlað að varpa
ljósi á skyldur sveitarfélaga hvað
varðar ráðstöfun dýraleifa, svo og
helstu ráðstöfunarleiðir sem nú eru
tiltækar eða til greina kæmi að byggja
upp. Finna má þetta minnisblað inni
á heimasíðu Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Sameiginlegt vandamál,
sameiginleg lausn
Þótt ábyrgð á úrgangsmálum sé
hjá sveitarfélögum þá er mikilvægt
að ríkið komi að og vinni með
sveitarfélögunum við að byggja
upp innviði líkt og brennslustöð
fyrir dýraúrgang. Það þarf
sérhæfða brennslustöð í eyðingu
dýraúrgangs þar sem dýrahræ eru
illbrennanleg vegna rakainnihalds
og nýtast því illa í hefðbundnar
brennslustöðvar sem nýta má í
orkuframleiðslu.
Auk þess þarf ríkið að aðstoða
sveitarfélögin við að leita lausna á
þeim vanda sem upp er komin og
í þeim verkefnum er af mörgu að
taka svo sem eins og flutningur á
úrgangi á milli varnarlína.
Við vorum óþægilega minnt á
það í dymbilvikunni þegar riða
greindist á bæ í Miðfirði, að hraða
þarf vinnu við lausn á málinu. Þar
var sauðfjársvæði sem var alveg
hreint og minnir okkur á að fara
varlega með smitaðan úrgang á
milli svæða.
Það er mikilvægt að unnið verði
á breiðum grunni hjá viðkomandi
ráðuneytum og Sambandi íslenskra
sveitarfélaga til þess að koma með
sameiginlega lausn á þeim vanda
sem blasir við í úrgangsmálum
dýrahræja.
Halla Signý Kristjánsdóttir,
þingmaður Framsóknar.
Úrgangur dýrahræja
Halla Signý
Kristjánsdóttir.
Söfnunargámur fyrir dýrahræ. Mynd / ÁL
13. – 20. ágúst 2023
Fararstjórn: Sigrún Sól Ólafsdóttir
Verð 255.900 kr. á mann í tvíbýli
Bókaðu núna á bændaferðir.is
Í ferðinni upplifum við hinar sögulegu perlur, Dresden
og Leipzig, sem eftir fall múrsins hafa aftur náð fyrri
dýrð. Við heimsækjum þjóðgarðinn Sächsische
Schweiz, líðum á gondólum eftir síkjum hins græna
skógarsvæðis Spreewald og endum ferðina í
heimsborginni Berlín.
Leyndar perlur
Austur-Þýskalands
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2
108 Reykjavík
Sjávarjarðir
Aðalfundur Landssamtaka eigenda sjávarjarða verður haldinn
á Hótel Hilton, Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík,
föstudaginn 5. maí 2023 og hefst hann kl. 14:00.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Auðun Helgason, lögmaður mun ræða um helstu
hagsmunamál sjávarjarða.
3. Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi alþingismaður,
flytur erindi um „Auðlindin okkar“ frá sjónarhóli samtakanna.
Sjá heimasíðu samtakanna www.ses.is
Allir velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Stjórnin
Ársfundur – stjórnarkjör 2023
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudaginn 26. maí
2023 kl. 13 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
• Venjuleg ársfundarstörf.
• Stjórnarkjör skv. samþykktum.
• Önnur mál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu.
Lífeyrissjóður bænda auglýsir eftir framboðum til setu í stjórn
sjóðsins:
• Eitt sæti konu eða karls í aðalstjórn til fjögurra ára.
• Eitt sæti konu í varastjórn til fjögurra ára.
Framboðsfrestur er til 28. apríl 2023.
Upplýsingar um stjórnarkjörið og hvaða gögnum beri að skila vegna
framboða til setu í stjórn sjóðsins má sjá á heimasíðu sjóðsins,
www.lsb.is.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Lífeyrissjóður bænda | Stórhöfða 23 | 110 Reykjavík
Sími 563 1300 | lsb@lsb.is | www.lsb.is