Bændablaðið - 27.04.2023, Side 70
70 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Í rúma þrjá áratugi hefur hinn
breski jeppaframleiðandi Land
Rover boðið kaupendum upp á
alhliða fjölskyldujeppa undir
heitinu Discovery.
Bændablaðið tók til prufu nýjustu
útgáfu þessa bíls sem telst til stórra
lúxusjeppa og keppir við aðra Land
Rover, eins og Defender eða Range
Rover Sport. Einnig myndu Audi Q7,
Volvo XC90 og Toyota Land Cruiser
höfða til sömu kaupenda.
Frá upphafi hefur áherslan við
hönnun Discovery verið að koma
sem flestum farþegum þægilega fyrir
í öflugum jeppa. Þegar bifreiðin er
skoðuð utan frá sést hversu hátt þakið
er, og hækkar þegar aftar dregur til
að höfuð öftustu farþeganna komist
fyrir. Þessi nýjasta útfærsla Discovery
hefur verið á markaðnum frá árinu
2017, en árið 2020 fór bíllinn í
andlitslyftingu (e. facelift), sem fól
í sér smávægilegar breytingar á ytra
byrði, en umbyltingu á tæknibúnaði
innandyra.
Fríður ættarsvipur
Í samanburði við fyrri gerðir
Discovery er þessi straumlínulagaður
með rúnnaðar línur. Þó að
hvössu hornin séu horfin heldur
ættarsvipurinn sér vel og ef horft
er á bílinn úr nógu mikilli fjarlægð
(800 metrar ættu að duga) eða augun
pírð er hægt að rugla þessum við
forvera sína. Þegar nær er komið
sést að hönnunin er á margan hátt
svipuð þeirri og er á öðrum nýjum
Land Rover bílum og myndu óvanir
geta ruglast á þessum og Range
Rover. Myndirnar tala sínu máli, en
Discovery er forkunnarfríður – hver
einasta hlið er í samræmi við aðrar
og hlutföllin rétt mátuleg.
Þegar stigið er um borð tekur á
móti manni vistleg innrétting sem ber
merki um vandaða hönnun.
Allt yfirborð er úr mjúkum
og dýrum plastefnum og sætin
með fyrsta flokks leðri. Í miðju
mælaborðsins er margmiðlunarskjár,
sem hefur verið í Discovery frá 2020,
og er sá sami og er í öðrum nýjum
Land Rover jeppum.
Hugbúnaðurinn er með þeim
fullkomnari sem völ er á – allt
viðmótið er notendavænt og rökrétt,
myndirnar eru skýrar og auðvelt
að tengjast utanaðkomandi
snjalltækjum. Undirritaður var
búinn að tengja símann þráðlaust
við Android Auto á fyrstu tveimur
mínútunum eftir að hafa sest upp í
bílinn og small tengingin snurðulaust
í hvert skipti sem jeppinn var ræstur
eftir það.
Vinalegur ómur af vélinni
Bifreiðin í þessum prufuakstri
var með sex strokka, þriggja lítra
dísilmótor. Allir nýir Discovery
sem BL flytur inn eru tvinnbílar.
Rafmótorinn er lítill og er hugsaður til
að minnka eyðslu og styðja við vélina
þegar tekið er af stað. Dísilmótorinn
er afar þýður og berst lítill titringur
inn í ökumannshúsið. Vélarhljóðið
er prýðilega einangrað, en þó heyrist
alltaf þessi vinalegi og mjúki ómur
sem fylgir sex strokka dísilvélum.
Hestöflin eru 250 og ef athyglin
er ekki við aksturinn er ólöglegum
hraða náð á örskotsstundu.
Þegar ekið er á Discovery er
auðvelt að líða eins og setið sé
á háum hesti. Þetta er afar stór
bifreið og horfir maður niður á
almúgann í sínum fólksbílum og
smájeppum. Stærðinni fylgja þeir
kostir að nóg pláss er fyrir sjö
fullorðna einstaklinga. Framsætin
eru langþægilegust, þar á eftir kemur
miðjusætaröðin með breið sæti og
háa sætisstöðu. Aukasætin í skottinu
rúma stórt fólk, en sessan er ekki
mikið hærri en gólfið.
Aðgengið að þeim er ankannalegt
og ef enginn er til að hleypa manni
út lenda farþegarnir í sjálfheldu,
því ekki er hægt að renna miðju-
sætunum aftan frá (undirritaður
skrifar af reynslu).
Þegar öftustu sætin eru ekki í
notkun falla þau vel ofan í gólfið
og eftir stendur flennistórt skott. Sé
þörf á enn meira geymsluplássi er
hægt að fella miðjusætaröðina niður
með rafmótorum. Ólíkt fyrri gerð
Discovery, þá falla sætisbökin ekki
alveg niður, heldur halla þau örlítið.
Rýmið sem stendur til boða er á pari
við minni sendibíla.
Stórar felgur hastar í holum
Akstursupplifunin stendur vel undir
væntingum við flestar aðstæður.
Eins og áður segir eru sætin þægileg
og lítið sleppur inn af vind-, veg-
og vélarhljóði. Discovery er á
loftpúðafjöðrun sem fjaðrar vel
allar helstu ójöfnur á þjóðvegum
og innanbæjar og gefur möguleika
á að stilla veghæð.
Nokkur vonbrigði voru þegar
ekið var á holóttum og grófum
malarvegum, en þá reyndist bíllinn
hastur. Skýrist það eflaust af því
að bíllinn í þessum prufuakstri var
á 21 tommu felgum. Upplifunin
væri eflaust betri ef bíllinn væri á
belgmeiri dekkjum sem fjöðruðu
betur. Þar sem Discovery skarar
fram úr flestum keppinautum sínum
er eiginleikinn til að aka utanvegar.
Að felgunum undanskildum er hann
með allt sem alvöru jeppi þarf til
að takast á við torfærur: Lágt drif;
læstan millikassa; mikla veghæð;
og Terrain Response kerfið frá
Land Rover sem notar tölvutækni
til að efla drifgetuna.
Stærð bílsins gefur af sér
mikla kosti sem taldir hafa verið
hér fyrir ofan. Helstu ókostir
Discovery stafa hins vegar af því
hversu fyrirferðarmikið ökutækið
er. Upplifunin af akstri í þröngum
íbúðagötum er eins og að troða
úlfalda í gegnum nálarauga og
leitin að bílastæði er torsótt.
Dyrnar á bílnum eru firnastórar
og ef framdyrnar eru opnar upp á
gátt þarf að teygja sig býsna langt
til að loka þeim. Því getur fylgt
mikið átak ef vindurinn stendur úr
vitlausri átt.
Tölur
Land Rover Discovery SE R-
Dynamic bíllinn í þessum prufuakstri
kostar 18.490.000 krónur m.vsk.
hjá BL. Í því verði eru nokkrir
aukahlutir, eins og skriðstillir með
aðlögun og þriðja sætaröðin. Vélin
er með 250 hestöfl og 570 Nm
tog. Hámarks dráttargeta er 3.500
kílógrömm.
Eigin þyngd er 2.437 kílógrömm,
en heildarþyngd fer upp í 3.260
kílógrömm með farþegum og farmi.
Helstu mál í millimetrum: Lengd
4.956; breidd 2.220 og hæð 1.888.
Mesta veghæð er 283 millímetrar og
hámarks vaðdýpt er 900 millímetrar.
Að lokum
Land Rover Discovery er alhliða
pakki sem getur ógrynni hluta og
gerir næstum alla geysilega vel.
Indælt er að aka bílinn og fer vel
um sjö farþega, eða fimm með
mikinn farangur.
Jeppinn skeiðar ekki mjúklega
yfir grófustu vegina, en kemst
auðveldlega á áfangastað.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Prufuakstur á Land Rover Discovery
Land Rover Discovery er rúmgóður jeppi sem gerir allt vel. Ólíkt aragrúa fjölskyldujeppa, þá hefur Discovery flesta þá kosti sem torfærutæki þarf að bera.
Myndir / ÁL
Innréttingin er fögur og mjúk viðkomu. Margmiðlunarskjárinn er rökréttur
og þýður í notkun.
Inni í þessum pakka rúmast sjö manns með sóma. Stórar felgurnar fjaðra
illa á grófum vegum.
Þriðja sætaröðin dugar vel fyrir fólk að 60 ára aldri,
en aðgengið er nokkuð ankannalegt.
Skottið er stórt og ferkantað. Þegar miðjusætaröðin
er lögð niður jafnast rýmið á við sendibíl.
Aftursætin eru há og mikil birta í rýminu.