Gripla - 2022, Page 68
GRIPLA66
Á G R I P
Hómilíutáknmál í Heimskringlu
Efnisorð: Ólafur helgi, Sigurður sýr, Ásta Guðbrandsdóttir, dýrlingur, allegóría,
týpólógía, táknfræði, Kristur, Móse, Júda, Emmaus, Himnesk Jerúsalem
Athugað er hvort sú tilgáta standist að heimkomusagan í Ólafs sögu helga í Heims-
kringlu (k. 32–34) sé allegórísk og byggð á táknmáli í ætt við það sem algengt er í
hómilíum. Sagan segir frá því er Ólafur helgi kemur heim til Ástu móður sinnar
og Sigurðar sýr fósturföður síns eftir langa fjarveru. Mun fleiri möguleg tákn eru
í heimkomusögunni en í öðrum köflum Ólafs sögu. Í greininni eru þau dregin
fram og athugað hvort túlkun þeirra samkvæmt hómilíuhefð skapi heildstæða
mynd sem falli að meginkenningum Kirkjunnar. Tákn í sögunni tengja Ólaf við
Krist og eilífan fagnað hinna útvöldu á himnum, Sigurð við himininn, þrenninguna
og guðs orð en líka formyndir krossins og kirkjunnar. Ásta tengist við jörð, guð-
spjöllin, kristni og kirkju. Heildarfjöldi fólks í sögunni (153) tengist öllum per-
sónunum þremur og er þekkt biblíuleg tala, túlkuð m.a. af Gregoríusi mikla sem
hinir útvöldu á himnum. Búningur og sviðsetning Sigurðar tengir hann við þekkt
týpólógísk atriði er varða Móse og Júda og þar með gamla sáttmála en einnig við
Ferðina til Emmaus og þar með pílagríma og Krist upprisinn. Sennilegt má telja að
heimkomusagan sé afurð trúarlegs starfs í klaustrum. Hún rímar við Rauðúlfs þátt
sem einnig er ítarleg og þaulhugsuð allegóría um Ólaf. Báðar sögurnar hafa líklega
það megintakmark að rækta helgi hans.
S U M M A R Y
Homiletic Symbolism in Heimskringla
Key words: St. Olaf, Sigurdur syr, Asta Gudbrandsdottir, saint, allegory, typology,
symbology, Christ, Moses, Judah, Emmaus, New Jerusalem
This paper examines the hypothesis that the home-coming episode in St. Olaf’s Saga
(ch. 32–34) in Heimskringla is an allegory based on homiletic symbolism. The
episode is about Olaf’s return to his home in Norway after many years abroad and
is one of the events that define the onset of his mission to control and Christianise
Norway. Olaf arrives at his mother and stepfather’s home in a vivid, personal and
detailed narration, imbued with action and excitement. It is harvest-time, and
Olaf’s stepfather, Sigurdur sýr, king of Ringerike, is busy overseeing the harvest
activity. He is walking around a field with two other men, dressed in a blue tunic
and leggings, a grey cloak and a wide grey hat, a cloth over his face and a staff in
his hand with a gilded silver cap on the top, surmounted by a silver ring. He is then