Muninn - 01.08.2008, Page 28
28
Þann 28. nóvember fylltist Íþróttahöllin á
Akureyri af prúðbúnum Menntskælingum.
Tilefnið var árshátíð Menntaskólans á
Akureyri sem er einn af hátíðlegustu
viðburðum skólans.
Það leynir sér ekki á árshátíðum skólans
að MA á marga hæfileikaríka nemendur sem
eiga bjarta framtíð í því sem þeir taka sér fyrir
hendur. Í ár var engin undantekning frá því.
Kvöldið hófst formlega þegar stúdentsefni
skólans gengu inn í salinn, flest íklædd
þjóðbúningi eða hátíðabúningi og sungu
fyrir gesti skólasöng MA og Gaudeamus.
Atriðin voru hvert öðru glæsilegra. Kór MA
byrjaði kvöldið á því að syngja fyrir gesti
skólasönginn og Bítlasyrpu sem vakti mikla
lukku. PRÍMA-félagar voru með sitt árlega
atriði og var atriðið í ár heldur frábrugðið
því sem gert hefur verið undanfarin ár en
þeir sýndu STOMP dans. Hljómsveitirnar
Arty Kristofers, Tussuduft og Djassdúettinn
Baldursbörn voru með tónlistaratriði og
einnig Kalli í kerinu sem tók nokkur vel
valin lög. Þóra Björg Stefánsdóttir og Valur
Sigurðarson fluttu minni karla og kvenna
af mikilli snilld. Hefðin er að eftir ræðu
konunnar syngja allar konur í salnum Minni
karla fyrir karlana og öfugt, þetta tókst
með stakri prýði. LMA var ekki með neitt
atriði í ár en einbeitti sér þess í stað að gera
skaupið veglegt ásamt fleiri nemendum
skólans. Í skaupinu var hið sígilda grín um
rauða herinn og VMA – inga, það lukkaðist
vel og veltist salurinn um af hlátri þegar
skaupið var sýnt.
Ræðuhöldin voru á sínum stað. Hildur
Sara ritari stjórnar Hugins var veislustjóri að
þessu sinni og flutti hún stutt ávarp. Hún bauð
veislugesti velkomna og þakkaði sérstaklega
yfirþjónunum, þeim Helgu Sigfúsdóttur og
Gísla Björgvini Gíslasyni, fyrir þeirra hjálp.
Ræða Önnu Elvíru Þórisdóttir, Inspectrix
Scholae, kom í kjölfarið. Þar þakkaði Anna
Elvíra öllum þeim nemendum sem höfðu
hjálpað til við undirbúninginn. Nemendur
skólans voru aðalatriðið í hennar ræðu
og hrósaði hún nokkrum nemendum
skólans sem eru afreksmenn í íþróttum.
Heiðursgesturinn, Þórhildur Þorleifsdóttir,
hélt einnig ræðu og sagði hún frá nokkrum
skemmtilegum atvikum sem áttu sér stað
þegar hún var nemandi skólans. Síðast en
ekki síst var Jón Már Héðinsson með sína
ræðu. Í miðri ræðu hans birtist Ingólfur Páll,
nemandi úr 4.H, sem oft hefur verið líkt við
Jón Má. Það var skemmtileg tilbreyting en
Ingólfur greindi nemendum frá nokkrum
breytingum sem áttu að verða á skólahaldi
vegna efnahagsástandsins.
Formlegri dagskrá kvöldsins lauk með
flugeldasýningu, við tók dansleikur með
Sometime og Landi og sonum á neðri
hæðinni og á efri hæðinni spiluðu Þuríður
og hásetarnir og plötusnúðurinn Pétur Guð.
Munin langar að hrósa stjórninni og
öllum þeim nemendum sem tóku þátt
í undirbúningi árshátíðarinnar fyrir þau
frábæru störf sem þau unnu. Árshátíð
Menntaskólans á Akureyri er einstakur
viðburður og er það ykkur, nemendum
skólans, að þakka.
Höfundur: Heiða Berglind Magnúsdóttir