Muninn - 01.08.2008, Blaðsíða 54
Margir hafa eflaust velt fyrir sér hvaða hópur manna,
sem kemur saman á heimavistinni í kringum undarlegan
bolta og heldur svo út á gras fyrir ofan Lystigarðinn, er
nákvæmlega að gera. Þetta eru meðlimir í hinu virta
Fríma félagi. Þótt hugmyndin hafi sprottið í prófatíð
vorannar 2008 var félagið sjálft stofnað haustið 2008
af Hugin „Power Ranger” Ragnarssyni og Sigmari
Erni „Cannon Ball” Hilmarssyni. Eftir góðar viðtökur
nemenda og miklar skráningar í félagið gerðu þeir
félagar sér grein fyrir því að þeir réðu ekki við þetta
verðuga verkefni einir og fengu því til liðs við sig Frey
“Bonebraker” Guðnason.
Starfsemi félagsins felst í því að breiða út boðskap
listformsins amerísks fótbolta og tengja saman
unnendur þáttanna Friday Nigth Lights, en sá liður
starfsins hefur ekki litið dagsins ljós vegna ástandsins
í þjóðfélaginu. Amerískur fótbolti gengur út á að
koma egglaga bolta 91 metra áfram og yfir endalínu
andstæðingsins. Inni á vellinum eru 11 leikmenn og
færa má boltann með köstum eða hlaupum.
Á næstu önn er markmið félagsins að reyna að fá
einhvern skóla á Norðurlandi til að spila vináttuleik
við og jafnvel, ef virðulegri stjórn ÍMA líst vel á þá
hugmynd, að halda bekkjamót þar sem verðlaunin
verða Huginsskálin. Hvað varðar Friday Night Lights
hluta félagsins er ætlunin að sýna síðar myndina sem
var byggð á metsölubókinni og sem þættirnir eru
byggðir á.
Huginn Ragnarsson
Geturu nefnt nafn einhvers úr rauða hernum?
Já, Heiðdís.
Hvenær fórstu síðast í kirkju?
Þarsíðasta sunnudag.
Hvað er fáránlegasta slúður sem þú hefur heyrt um þig (sem var ekki
satt)?
Að ég hafi verið barin af gettó stelpu í Breiðholtinu. Út af skurði, en það
gerðist í handboltaleik
Ertu með einhverja fóbíu?
Fyrir stafsetningarvillum.
Hvaða kennari klæðir sig best?
Heiðdís Halla.
Uppáhalds lag á söngsal?
Skólasöngurinn.
Hefur þú stolið einhverju?
Já, nammi.