Árbók Reykjavíkurborgar - 01.08.1975, Blaðsíða 243
233
12. gr.
Skattstjórinn í Reykjavík annast álagningu landsútsvara sarakvaemt
10. - 11. gr.
Félagsmálaráðuneytið innheimtir landsútsvörin, samkvæmt gjaldskrá,
sem skattstjórinn í Reykjavík lætur ráðuneytinu í té.
13. gr.
Tekjur Jöfnunarsjóðs, sbr. 9. gr., að frádregnum útgjöldum sam-
kvæmt stafliðum b og d-h í 8. gr., koma til úthlutunar til sveitarfélaganna
samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.
Fjórðungur landsútsvara, sem til falla í hverju sveitarfélagi, skal
koma í hlut þess, sbr. þó 3. mgr. þessarar greinar. Öðru úthlutunarfé
skal skipt á milli sveitarfélaganna í réttu hlutfalli við íbúatölu hvers
sveitarfélags hinn 1. desember árið á undan, þó þannig, að ekkert sveitar-
félag fái hærra framlag en nemi 60% af samanlögðum fasteignasköttum og
útsvörum gjaldársins, sbr. þó 8. gr. d.
Landsútsvar samkvæmt 11. gr. e rennur óskipt í Jöfnunarsjóð
14. gr.
Framlag Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaganna samkvaant 13. gr. skal
greitt þrisvar sinnum á ári, fyrir 30. apríl, 30. september og 31. desember.
NÚ eru ekki gerð skil á ársreikningum sveitarfélags, sbr. 60. gr.
sveitarstjórnarlaga, nr. 58 29. marz 1961, og greiðist þvx sveitarfélagi
þá ekki framlag samkvæmt 1. mgr., fyrr en skil hafa verið gerð.
NÚ kemst sveitarfélag eftir setningu laga þessara í vanskil með
greiðslur vegna veittra ríkisábyrgða, og er ráðuneytinu þá heimilt að inna
slíkar greiðslur af hendi af framlagi til sveitarfélagsins, eftir því sem
til vinnst.
15. gr.
Aukaframlag skal greiða til þeirra sveitarfélaga, sem að dómi
félagsmálaráðuneytisins skortir tekjur til greiðslu lögboðinna gjalda eða
óhjákvæmilegra útgjalda, enda hafi þau lagt á fullt útsvar samkv. 25. gr.
Heimilt er ráðuneytinu að krefjast þess, að þau sveitarfélög, sem slíkrar
aðstoðar njóta, innheimti fasteignaskatt með álagi samkvæmt 3. mgr. 3. gr.
Félagsmálaráðuneytið skal hlutast til um ýtarlega athugun á fjár-
reiðum og álagningarreglum sveitarfélags, sem þarfnast aukaframlags.
Slíkt aukaframlag skal eigi veita fyrr en að lokinni athugun og
eftir að teknar hafa verið til greina þær aðfinnslur, sem athugunin hefur
gefið tilefni til.
Um greiðslu aukaframlags gildir ákvæði 2. mgr. 14. gr.
Til þess að mæta útgjöldum samkvæmt grein þessari eru vaxtatekjur
sjóðsins og fé það, sem ekki kemur til úthlutunar vegna ákvæðisins um 60%
hámarkið, sbr. 2. mgr. 13. gr. Auk þess skal draga frá úthlutunarfé,
sbr. 1. mgr. 13. gr., 5% af tekjum Jöfnunarsjóðs í þessu skyni.
16. gr.
NÚ hefur fólksfækkun orðið í sveitarfélagi næstliðið ár og skal þá
sveitarfélag fá sérstakt aukaframlag úr Jöfnunarsjóði, sbr. e-lið 8. gr.
Framlagið skal nema meðalútsvari á íbúa í landinu í heild næstliðið ár
margfaldað með íbúafækkunartölunni.
Fólksfækkunarframlag skal greitt hlutaðeigandi sveitarfélögum eigi
síðar en 31. desember ár hvert.