Ský - 01.04.2010, Page 38

Ský - 01.04.2010, Page 38
KYNNING / VÍS SLYS GETA BREYTT FRAMTÍÐ OKKAR - EN FORVARNIR GETA KOMIÐ í VEG FYRIR SLYSIN. VÍS var fyrst tryggingafélaga á íslandi til þess að ráða sérstakan forvarnafulltrúa sem eingöngu vinnur á sviði for- varna og öryggismála. Nú í dag er markmiðið að allir starfsmenn fyrirtækisins séu forvarnarfulltrúar en tveir starfs- menn vinna eingöngu á því sviði. Annar þeirra er Sigrún fl. Þorsteinsdóttir, sem sinnir einstaklingsforvörnum, en hún segir að forvarnir hafi þann tilgang að fækka slysum og tjónum meðal viðskiptavina VÍS og í samfélaginu í heild: LYKILATRIÐI AÐ UNDIRBÚA HVERT FERÐALAG VEL „Mikilvægt er að leggja áherslu á innbrotavarnir á heimilinu, ekki síst í dag þar sem innbrotum hefur fjölgað mikið. Á sumrin, þegar aðstæður eru bestar í umferðinni, fjölgar banaslysum yfirleitt en þá er almenningur mikið á faraldsfæti og margir erlendir ferða- menn „nýir" í umferðinni. Mjög mikilvægt er að huga að réttum öryggisbúnaði allra sem í bílnum eru og aka miðað við aðstæður, þó aldrei yfir hámarkshraða, og festa allan farangur sem inni í bíln- um er. Það er lykilatriði að undirbúa hvert ferðalag vel - hvort sem ferðast er innanlands eða erlendis. Best er að gera ferðaáætlun, fylgjast með veðurspá og kynna sér vel svæðið sem fara á um. Sérstaklega skyldi hyggja að börnunum því þau þekkja ekki hætt- ur í nýju umhverfi eins og þeir sem eldri eru. „Eitt af því sem hefur mikið að segja er að einstakl- ingum finnist þeim vera svo ósnertanlegir, finnst eins og ekkert geti komið fyrir þá. En þannig er það ekki." FORVARNIR EIGAAÐ VERA HLUTI AF LÍFINU „Á heimasíðu VÍS er að finna margvíslegar upplýsingar um forvarn- ir auk þess sem hægt er að hafa samband við okkur símleiðis eða með tölvupósti. Það er ávallt leitast við að leysa úr fyrirspurnum einstaklinga sem leita til fyrirtækisins. Einstaklingum finnst þeir vera svo ósnertanlegir, finnst eins og ekkert geti komið fyrir þá. En þannig er það auðvitað ekki og áríðandi er að hver og einn horfi gagnrýnum augum á sig og um- hverfi sitt og láti forvarnir vera hluta af sínu lífi, hvort sem um er að ræða á heimilinu, í umferðinni, vinnunni eða í frístundum. Það skilar sér margfalt til baka." 38 Ský 2.tbl. 2010

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.