Ský - 01.04.2010, Qupperneq 50

Ský - 01.04.2010, Qupperneq 50
MÚSÍKTILRAUNIR SIGURVEGARAR MÚSÍKTILRAUNA: ÞURFUM AÐ FYLGJA VELGENGNINNI EFTIR TEXTI: HRUND HAUKSDÓTTIR MYNDIR: PÁLL KJARTANSSON með sigur af hólmi í síðustu Músíktilraun- um en hana skipa Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragnar Þórhallsson, Brynjar Leifsson og Arnar Rósenkranz Hilmarsson. Ský fór á stúfana og hitti bandið í Vesturbænum þar sem meðlimirnir voru önnum kafnir við að undirbúa fyrsta grill sumarsins - í kaldri vorsólinni. Hvernig varð Of Monsters and Men til? Nanna: „Upphaflega var ég bara ein að syngja og spila á gítar. Þá kallaði ég mig Songbird og var hluti afTrúbatrix hópnum sem er hópur stelpna sem spila og halda tónleika saman með það í huga að styðja hver aðra í tónlistinni. I fyrrasumar fór ég síðan hringinn í kringum landið með þeim og þá kviknaði sú hugmynd að ég myndi fá einhvern til að spila með mér og í þeim tilgangi hafði ég samband við vin minn, Brynjar, sem er gítarleik- ari. Fyrir Airwaves hátíðina kom svo Ragnar einnig inn í bandið en hann spilar á melodiku og klukkuspil og syngur.“ Ragnar: „Og þarna vorum við orðin þriggja manna hljómsveit sem kom í fyrsta sinn fram á Airwaves. Þar sem áherslurnar hjá okkur breyttust aðeins fyrir Músíktilraunir, og við vorum farin að hugsa meira eins og hjómsveit, fannst okkur tilvalið að bæta við slagverki og komu þá fáir aðrir til greina en Arnar, en hann er trommari rokkgrúbbunnar Cliíf Clavin. Hjá okkur er hann í aðeins öðruvísi hlutverki og spilar á slagverk, melodiku, klukkuspil og syngur. Það er líka einn 50 ský 2.tbl. 2010 leynimeðlimur í Of Monsters and Men sem aldrei fær neitt kredit en hefur veitt okkur mikla lukku síðan hann gekk til liðs við okkur en það er lítið, krúttlegt stofuborð sem við reynum oftast að hafa með okkur á sviði.“ Hvernig skilgreinið þið tónlistina ykkar? Ragnar: „Það getur verið erfitt að skilgreina eigin tónlist og kannski frekar áheyrenda að dæma það. Við erum þó fyrst og fremst með áherslu á „popp/folk“ tónlist. Allt efni sem við flytjum er frumsamið og textarnir eru á ensku. Textarnir sem við sömdum í upphafi fjölluðu aðallega um fólk og mannlífið en núna semjum við um allt frá sykri í skál til heimsendis!“ Nanna: „Við fengum vegleg verðlaun fyrir að hreppa fyrsta sætið í Músíktilraunum, eins og „Nokkrir íslenskir tónlistarmenn hafa náð langt og það smitar út frá sér; fólk fær þá frekar trú á sjálft sig og sína músík."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.