Jökull


Jökull - 01.01.2020, Blaðsíða 109

Jökull - 01.01.2020, Blaðsíða 109
Hrafnhildur Hannesdóttir og fl. gögnunum gefur það vísbending um að tiltekinn jök- ullinn sé framhlaupsjökull. Dæmi um þetta er Sátu- jökull norðan í Hofsjökli og Reykjarfjarðarjökull í norðaustanverðum Drangajökli (21. mynd). Ef jökull- inn væri ekki framhlaupsjökull ætti hann að öllu jöfnu að hafa gengið fram á 9. áratug síðustu aldar. Nákvæm kortlagningarvinna á jökulmótuðu landslaginu framan Sátujökuls hefur einnig skorið úr um framhlaupseðli jökulsins (Evans 2011). 21. mynd. Framgangur og hop valinna skriðjökla með samfellda mæliröð frá því á upphafsárum sporðamæl- inga. Múlajökull í Hofsjökli, Sólheimajökull í Mýr- dalsjökli, Morsárjökull í Vatnajökli, Gljúfurárjökull á Tröllaskaga, Reykjarfjarðarjökull í Drangajökli og Hyrningsjökull í Snæfellsjökli. – The advance and retreat of selected outlet glaciers with continuous record of frontal measurements. Múlajökull in Hofs- jökull, Sólheimajökull in Mýrdalsjökull, Morsárjök- ull in Vatnajökull, Gljúfurárjökull on Tröllaskagi, Reykjarfjarðarjökull in Drangajökull and Hyrnings- jökull in Snæfellsjökull. Lýsingar sporðamælingamanna hafa gefið skýra mynd af framhlaupum jöklanna í mörgum tilfellum. Þaralátursfirði 10. október 1935. Kjæri vinur, Bestu þökk fyrir sýðast. Ég bíst við því að þér sé farið að leiðast eftir bréfi frá mér. En ástæðan fyrir því að ég skrifaði þér ekki fyrr var sú að þegar ég fór þann 14. ágúst fram undir jökulsporð í Reykjarfirði, og fór að mæla frá vörðunni sem þú hlóðst, þó voru ekki nema 50 metrar að jökulsporðinum. Mér þótti þettað einkennilegt svo að ég lét býða að skrifa þér, en fór aftur framundir jökul þann 22. september en þá var varðan komin í kaf... Það er auðséð að jökullinn leisir afar mikið, sporðurinn er allur sundur klofin og hrinur afar mikið úr honum ofan fyrir, sporðurinn er afar þikkur og er að sjá eins og bjarg... Með virðingu og vinsemd, Guðmundur Guðjónsson, Þaralátursfirði, Grunnavíkurhreppi, N-Ísafjarðarsýslu Úrvinnsla og birting Eins og sagt var í upphafi gerði Jón Eyþórsson grein fyrir sporðamælingaverkefni sínu og samstarfs- manna sinna í grein á vegum Vísindafélags Íslend- inga 1931 og einnig í sænska tímaritinu Geografiska Annaler (1935). Þá birti hann í Náttúrufræðingnum (1934, 1942) töflu yfir jöklabreytingar og í Journal of Glaciology birti hann mælingar áranna 1930–1947 (Jón Eyþórsson 1949). Við stofnun Jöklarannsókna- félagsins árið 1950 og útgáfu Jökuls sama ár hef- ur hvert hefti innihaldið skýrslu um sporðamælingar fyrra árs. Mælinganiðurstöður eru sendar til World Glacier Monitoring Service í Zürich í Sviss þar sem þær hafa birst á fimm ára fresti á prenti. Nú er hægt að nálgast íslensku mælingarnar auk jöklamæl- inga annars staðar frá í heiminum á vefsíðu þessa al- þjóðlega félags „https://wgms.ch/“. Í 13. árgangi Jök- uls birti Jón Eyþórsson samantekt á mælingunum frá upphafi. Á síðasta áratug 20. aldar var farið yfir all- ar skýrslur um sporðamælingar og þær endurskoð- aðar og endurmetnar þannig að sem áreiðanlegastar upplýsingar fengjust úr gögnunum. Birtar voru tvær greinar um það í 45. árgangi Jökuls (Oddur Sigurðs- son, 1998; Tómas Jóhannesson og Oddur Sigurðsson, 1998). Einnig voru sporðamælingagögnin undirstað- an að tveim greinum um jöklabreytingar og loftslag í Annals of Glaciology (Oddur Sigurðsson og Trausti Jónsson, 1995; Oddur Sigurðsson o.fl., 2007). Gögn úr sporðamælingasafni félagsins hafa víða birst í greinum og bókum. Oftast eru sporðabreyting- ar settar fram sem stök mæligildi tengd með línu (21. mynd). Sporðamælingarnar eru aðgengilegar á sér- stökum sporðamælingavef félagsins sem mun á næst- unni sameinast nýrri jöklavefsjá þar sem afkomumæl- ingar og útlínur jökla á mismunandi tímum verða 106 JÖKULL No. 70, 2020
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.