Jökull - 01.01.2020, Blaðsíða 159
Magnús Tumi Guðmundsson
RANNSÓKNIR
Eins og undanfarin ár snérust rannsóknir félagsins um
vorferð á Vatnajökul, mælingar á afkomu Mýrdalsjök-
uls og sporðamælingar.
1. Afkomumælingar á Mýrdalsjökli. 1. Hópur fór á
jökulinn í maí og tók fjórar afkomuholur, þrjár holur
í öskjunni og eina í suðurhlíð jökulsins upp af Sól-
heimaheiði. Vitjað var um stikurnar um mánaðarmót-
in ágúst-september. Vetrarákoma var í drjúgu meðal-
lagi en leysing síðastliðið sumar var með mesta móti.
2. Vorferð 29. maí.–9. júní. Ferðin nú var með nokk-
uð öðru sniði en oftast hefur verið, því henni var skipt
í tvo hópa, fyrri og seinni hóp þar sem hvor hópur
dvaldi fimm nætur á fjallinu. Ferðin var farin um Skál-
arfellsjökul en í þetta sinn var það ekki gert vegna
snjóþyngsla á Jökulheimaleið, heldur vegna þess að
ekki var talin fær leið með þungaflutning yfir aur-
bleytusvæðið framan við Tungnaárjökul. Þetta er í
fyrsta skipti í 66 ára sögu vorferða sem aurbleytan
hamlar för, en Tungnaárjökull hopar nú hratt. Veð-
ur var mjög hagstætt í ferðinni og færi ennþá betra.
Því gengu mælingar vel. Unnið var að íssjármæling-
um á nokkrum stöðum, GPS landmælingum, vitjað
um GPS-tæki og jarðskjálftamæla á jöklinum, gerðar
gasmælingar, þyngdarmælingar á Bárðarbungu, unnið
að jarðsjármælingum á íshellu Grímsvatna, unnið að
mælingum á vatnshita og bráðnun og skoðaðir klett-
ar sem nú eru að stinga upp kollinum vestast í Grím-
svötnum. Hópur dvaldi í Kverkfjöllum í nokkra daga
við gasmælingar. Nokkrir blaða- og kvikmyndatöku-
menn tóku þátt, m.a. vegna gerðar heimildarmynd-
ar vegna 100 ára afmælis Veðurstofunnar á þessu ári
(2020) auk þess sem grein birtist í Iceland Review um
ferðina síðastliðið sumar.
3. Sporðamælingar. Hrafnhildur Hannesdóttir hefur
nú tekið við umsjón sporðamælinga af Bergi Einars-
syni. Mælingarnar gengu fyrir sig með hefðbundnum
hætti og áfram hopa jöklar hratt, eins og verið hefur
undanfarinn aldarfjórðung.
FUNDIR
Aðalfundur var á hefðbundnum tíma í lok febrúar en
í kjölfar aðalfundarstarfa horfðum við á kvikmynd
Árna Stefánssonar um Fransk-Íslenska leiðangurinn í
mars-apríl 1951. Vorfundurinn var þann 30. apríl. Þar
fjölluðu Hrafnhildur Hannesdóttir og Snævarr Guð-
mundsson um breytingar á suðausturhluta Vatnajökuls
frá litlu ísöld fram til dagsins í dag. Haustfundur var
haldinn 22. október. Fyrir hlé fjallaði Magnús Tumi
Guðmundsson um fyrstu þekktu ferð í Grímsvötn –
ferð Svíanna Erik Ygberg og Hakon Wadell í lok ág-
úst 1919. Eftir hlé sýndi Sverrir Hilmarsson myndir af
ferðum sínum til Suðurskautslandsins. Fundirnir voru
allir nokkuð vel sóttir. Á aðalfundi og vorfundi voru
45–50 manns, en yfir 70 á haustfundinum.
ÚTGÁFA JÖKULS, FRÉTTABRÉF OG VEF-
SÍÐA
Jökull 68 kom út snemma árs og var 136 blaðsíð-
ur. Þar er að finna fjórar ritrýndar fræðigreinar og 40
blaðsíður af ýmsu efni á íslensku. Allt efni Jökuls utan
tvö nýjustu heftin eru nú aðgengileg á vef Landsbóka-
safnsins, timarit.is. Af þessu leiðir að aðgengi að elstu
heftunum er stórbætt frá því sem áður var, en fyrstu 20
árgangarnir hafa verið verið uppseldir í nokkur ár.
Bóksala stúdenta sér um dreifingu erlendis. Um-
sjón með vefsíðu og fréttabréfi hefur Hálfdán Ágústs-
son.
SKEMMTIFERÐIR
Sumarferð var farin í annarri viku ágúst. Í þetta sinn
fórum við í Bása við Þórsmörk og þaðan að Gígjökli
og Steinholtsjökli í blíðskaparveðri laugardaginn 10.
ágúst. Þáttakendur skoðuðu ummerki um hlaupin sem
komu samfara gosinu í Eyjafjallajökli í apríl 2010,
ummerki um Steinholtshlaupið 1967 og síðast en ekki
síst ummerki um gríðarhraða hörfun þessara jökla á
síðustu árum. Þátttakendur voru 58 og farið var á
einkabílum. Ferðin var skipulögð þannig að þeir sem
ekki höfðu jeppa til umráða fengu far. Ferðin tókst
með miklum ágætum.
Dagana 29. ágúst – 1. sepember var vinnuferð í
Grímsvötn. Hún var óvenju fjölmenn enda tóku marg-
ir þátt í þeim tilgangi að halda upp á það þann 31. ág-
úst að þann dag voru nákvæmlega 100 ár frá komu
þeirra Wadell og Ygberg í Grímsvötn. Listafólkið
Anna Líndal og Bjarki Bragason stóðu fyrir dagskrá
í tilefni afmælisins og færðu m.a. félaginu sérstaklega
gerða postulínsdiska með áprentuðum mælilínum úr
vorferðum síðustu áratuga. Einn diskurinn hangir nú
156 JÖKULL No. 70, 2020