Jökull


Jökull - 01.01.2020, Page 159

Jökull - 01.01.2020, Page 159
Magnús Tumi Guðmundsson RANNSÓKNIR Eins og undanfarin ár snérust rannsóknir félagsins um vorferð á Vatnajökul, mælingar á afkomu Mýrdalsjök- uls og sporðamælingar. 1. Afkomumælingar á Mýrdalsjökli. 1. Hópur fór á jökulinn í maí og tók fjórar afkomuholur, þrjár holur í öskjunni og eina í suðurhlíð jökulsins upp af Sól- heimaheiði. Vitjað var um stikurnar um mánaðarmót- in ágúst-september. Vetrarákoma var í drjúgu meðal- lagi en leysing síðastliðið sumar var með mesta móti. 2. Vorferð 29. maí.–9. júní. Ferðin nú var með nokk- uð öðru sniði en oftast hefur verið, því henni var skipt í tvo hópa, fyrri og seinni hóp þar sem hvor hópur dvaldi fimm nætur á fjallinu. Ferðin var farin um Skál- arfellsjökul en í þetta sinn var það ekki gert vegna snjóþyngsla á Jökulheimaleið, heldur vegna þess að ekki var talin fær leið með þungaflutning yfir aur- bleytusvæðið framan við Tungnaárjökul. Þetta er í fyrsta skipti í 66 ára sögu vorferða sem aurbleytan hamlar för, en Tungnaárjökull hopar nú hratt. Veð- ur var mjög hagstætt í ferðinni og færi ennþá betra. Því gengu mælingar vel. Unnið var að íssjármæling- um á nokkrum stöðum, GPS landmælingum, vitjað um GPS-tæki og jarðskjálftamæla á jöklinum, gerðar gasmælingar, þyngdarmælingar á Bárðarbungu, unnið að jarðsjármælingum á íshellu Grímsvatna, unnið að mælingum á vatnshita og bráðnun og skoðaðir klett- ar sem nú eru að stinga upp kollinum vestast í Grím- svötnum. Hópur dvaldi í Kverkfjöllum í nokkra daga við gasmælingar. Nokkrir blaða- og kvikmyndatöku- menn tóku þátt, m.a. vegna gerðar heimildarmynd- ar vegna 100 ára afmælis Veðurstofunnar á þessu ári (2020) auk þess sem grein birtist í Iceland Review um ferðina síðastliðið sumar. 3. Sporðamælingar. Hrafnhildur Hannesdóttir hefur nú tekið við umsjón sporðamælinga af Bergi Einars- syni. Mælingarnar gengu fyrir sig með hefðbundnum hætti og áfram hopa jöklar hratt, eins og verið hefur undanfarinn aldarfjórðung. FUNDIR Aðalfundur var á hefðbundnum tíma í lok febrúar en í kjölfar aðalfundarstarfa horfðum við á kvikmynd Árna Stefánssonar um Fransk-Íslenska leiðangurinn í mars-apríl 1951. Vorfundurinn var þann 30. apríl. Þar fjölluðu Hrafnhildur Hannesdóttir og Snævarr Guð- mundsson um breytingar á suðausturhluta Vatnajökuls frá litlu ísöld fram til dagsins í dag. Haustfundur var haldinn 22. október. Fyrir hlé fjallaði Magnús Tumi Guðmundsson um fyrstu þekktu ferð í Grímsvötn – ferð Svíanna Erik Ygberg og Hakon Wadell í lok ág- úst 1919. Eftir hlé sýndi Sverrir Hilmarsson myndir af ferðum sínum til Suðurskautslandsins. Fundirnir voru allir nokkuð vel sóttir. Á aðalfundi og vorfundi voru 45–50 manns, en yfir 70 á haustfundinum. ÚTGÁFA JÖKULS, FRÉTTABRÉF OG VEF- SÍÐA Jökull 68 kom út snemma árs og var 136 blaðsíð- ur. Þar er að finna fjórar ritrýndar fræðigreinar og 40 blaðsíður af ýmsu efni á íslensku. Allt efni Jökuls utan tvö nýjustu heftin eru nú aðgengileg á vef Landsbóka- safnsins, timarit.is. Af þessu leiðir að aðgengi að elstu heftunum er stórbætt frá því sem áður var, en fyrstu 20 árgangarnir hafa verið verið uppseldir í nokkur ár. Bóksala stúdenta sér um dreifingu erlendis. Um- sjón með vefsíðu og fréttabréfi hefur Hálfdán Ágústs- son. SKEMMTIFERÐIR Sumarferð var farin í annarri viku ágúst. Í þetta sinn fórum við í Bása við Þórsmörk og þaðan að Gígjökli og Steinholtsjökli í blíðskaparveðri laugardaginn 10. ágúst. Þáttakendur skoðuðu ummerki um hlaupin sem komu samfara gosinu í Eyjafjallajökli í apríl 2010, ummerki um Steinholtshlaupið 1967 og síðast en ekki síst ummerki um gríðarhraða hörfun þessara jökla á síðustu árum. Þátttakendur voru 58 og farið var á einkabílum. Ferðin var skipulögð þannig að þeir sem ekki höfðu jeppa til umráða fengu far. Ferðin tókst með miklum ágætum. Dagana 29. ágúst – 1. sepember var vinnuferð í Grímsvötn. Hún var óvenju fjölmenn enda tóku marg- ir þátt í þeim tilgangi að halda upp á það þann 31. ág- úst að þann dag voru nákvæmlega 100 ár frá komu þeirra Wadell og Ygberg í Grímsvötn. Listafólkið Anna Líndal og Bjarki Bragason stóðu fyrir dagskrá í tilefni afmælisins og færðu m.a. félaginu sérstaklega gerða postulínsdiska með áprentuðum mælilínum úr vorferðum síðustu áratuga. Einn diskurinn hangir nú 156 JÖKULL No. 70, 2020
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.