Úrval - 01.10.1944, Page 23

Úrval - 01.10.1944, Page 23
GIFT FYRIR GUÐI 21 Dimm herbergin höfðu slæm áhrif á Dick og hann varð feg- inn að koma aftur undir bert loft, út í sólskínið. Ellen langaði til að fara í vatnið, fékk baðföt af systur Dicks og stakk sér af bryggj- unni. Þrekin miðaldra kona átti baðfötin og böndin runnu af öxlum Ellenar. Þau Dick borðuðu brauðið á bryggjunni. Þar var heitt með- an sólar naut, en loftið varð skýjað og vindurinn kaldur, svo Ellen fór að kólna. Hún gekk inn í húsið tii að fara í fötin. Dick var kyrr á bryggj- unni, þangað til hann sá bát úti á vatninu. Þá tók hann í flýti og með mestu vandvirkni, handklæðið, sem Ellen hafði notað, og pappírinn utan af brauðinu, svo að engin spor sæust eftir samát þeirra. Hann gekk skuggamegin á stígnum til eldhússins, og kreisti aðra höndina utan um brauðpappír- inn. Ellen var komin í fötin; hún stóð við gluggann og horfði á bátinn. „Ég hugsa, að það sé vörð- urinn,“ sagði Dick. ,,Ég skil ekki, að nokkur annar geti ver- ið með bát á vatninu svona seint“. Hann athugaði bátinn vandlega og sá, þegar hann kom nær, að Jack Walsh sat við stýrið og kona hans á þóft- unni fyrir framan hann. I stafni voru tvær manneskjur, sem Dick þekkti ekki. Jack dró úr ferð bátsins og renndi hon- um upp að bryggjunni. „Hvaða fólk er þetta, Dick?“ sagði Ellen, þegar bátsverjar voru komnir í land. Hann svaraði ekki. Hann lokaði glugganum og dró tjald- ið fyrir. „Dick, því gerirðu þetta?“ „Þau mega ekki sjá okkur“. „Hvers vegna, Dick, hvers vegna?“ spurði Ellen. Hann dró tjöldin niður á hinni hlið her- bergisins og lokaði bakdyrun- um. „Dick, hvað ertu að gera?“ Það var koldimmt í herberginu. „Ef þú heldur, að þú getir fal- ið mig,“ hrópaði Ellen skyndi- Iega, „ef þú heldur, að ég vilji fela mig, þá ertu brjálaður. Ég vil ekki fela mig. Ég fer ekki að fela mig í þessu húsi, eins og ég hafi gert eithvað rangt.Þú getur kynnt mig. Þú getur sagt þeim, að við séum gift. Þú hefir sagt öðru fólki það, ótal mörgum. Við erum gift, hvað sem hver segir, fyrir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.