Úrval - 01.10.1944, Page 78
76
ÚRVAL
hreyfivél bifreiðar. Það afl get-
ur komizt upp í 1—200 hestöfl
í sumum vélum, og eins getur
hinn andlegi kraftur heilans
verið svo breytilegur að hjá
fábjánanum svarar hann til
eins eða tveggja hestafla, en
hjá mönnum eins og Aristo-
teles og Einstein svarar hann
til allt að 32-strokka vélar.
Því fleiri hestöfl, sem vélin
hefir, því meiri verður hraði
bifreiðarinnar, burðarmagn og
hæfni í hreyfingum. Sama máli
gegnir um gáfur manna; því
meiri sem hinn andlegi kraftur
er, þeim mun liðlegri verða all-
ar andlegar hræringar og því
vandameira og erfiðara við-
fangsefni má fá þeim að glíma
við.
1 raun og veru eru bæði fá-
bjáninn og Einstein afbrigði
frá venjunni; þeir eru báðir
langt frá meðallagi um gáfna-
far. En þó eru þeir báðir í
vissum skilningi eðlileg fyrir-
brigði, ef hvor þeirra um sig,
er borinn saman við sína líka.
Það er t. d. eðlilegt að fábján-
inn geti ekki klætt sig eða að
hann hafi ekki vit á að forða
sér inn úr illviðri. Á hinn bóg-
inn er það eðlilegt að maður
með Einsteins hæfileikum geri
mikilsverðar uppgötvanir, og
eftir hann liggi hin furðuleg-
ustu andlegu afrek. Á sama
hátt er það eðlilegt að bif-
reið með eins strokks krafti
skrönglist áfram með brauki og
bramli á þjóðveginum, með að
eins 3ja mílna hraða á klukku-
stund, og að hún geti ekki kom-
izt upp örlitla brekku; og það
er jafneðlilegt að venjuleg bif-
reið þjóti áfram með 40 mílna
hraða á klukkustund en þurfi
að skipta yfir í 2. ,,gír“ þegar
fara skal upp langa brekku.
Sömleiðis finnst okkur það eðli-
legt að 16 str. kappakstursbif-
reið klífi fjallshlíð með 60 mílna
hraða á klukkustund.
Þessar lítilsigldu sálir, sem
um ræðir, eru því að eins van-
þroska, ef þær eru bomar sam-
an við oss hina, enda tiltölu-
lega fámennur hópur á móts
við heildarfjöldann. Þessu fólki
má skipta í þrjá flokka eftir
gáfnafari. 1 lægsta flokki eru
fábjánarnir, sem eru svo litlum
andlegum hæfileikum búnir að
þeir geta ekki gætt sín fyrir
hættum, sem verðaávegiþeirra,
heldur verður að gæta þeirra eins
og ómálga barna. Vitsmunir
þeir-ra eru á borð við tveggja
ára barna eða þaðan af minni.