Úrval - 01.08.1953, Blaðsíða 2
Hækkandi hiti á jörðinni.
Frá eldfærum og iðjuverum
heimsins berast árlega sex millj-
arðar lesta af kolsýru út í gufu-
hvolfið. Amerískur prófessor, dr.
Gilbert N. Plass, segir, að árlega
sé brennt um tveim milljörðum
lesta af kolum og oliu, og að kol-
sýran, sem myndast við brunann,
hækki hitinn á yfirborði jarðar.
Hækkunin er ekki mikil — tæp
gráða á öld — en dr. Plass telur,
að árið 2080 verði kolsýrumagn-
ið í gufuhvolfinu orðið helmingi
meira en það er nú. Það mun
hækka meðalhitann um 4%, og
líklegt er að kolsýran muni koma
af stað keðjuverkun, sem hækka
muni hitann enn meira. Kolsýran
hefur sömu áhrif og gler í gróður-
húsi, hún hindrar útgeislun hita-
geisla frá jörðinni, en hleypir I
gegnum sig Ijósgeislum sólarinnar,
sem hafa styttri bylgjulengd. Jafn-
framt dregur hún úr hitageislun
frá skýjunum út í geiminn. Við
það verður hitamunur á efra og
neðra borði skýjanna minni, og
það dregur aftur úr lóðréttum
loftstraumum, sem nauðsynlegir
eru til að framkalla úrkomu. Af-
leiðingin verður minni úrkoma og
minni skýmyndun, sem aftur hef-
ur í för með sér að meira sólar-
ljós nær til yfirborðs jarðar. Þann-
ig stuðlar hin aukna kolsýra i
gufuhvolfinu að því að loftslagið
verður heitara og þurrara.
— Science Digest.
Minnugur páfagaukur.
Páfagaukar geta ekki aðeins
lært að tala — þeir hafa einnig
gott minni. Fyrir mörgum árum
fékk dýragarðurinn í London grá-
an páfagauk frá Afríku. Hann
hafði áður verið í eigu indverskr-
ar fjölskyldu og lært nokkrar setn-
ingar á indversku. En í London
var enginn, sem talaði til hans
á því máli, og ekki leið á löngu
áður en hann var búinn að læra
ýmsar setningar á ensku og hætti
að tala „móðurmál" sitt indversk-
una. En dag nokkurn, tólf árum
eftir að páfagaukurinn kom til
London, staðnæmdust indversk
hjón fyrir framan búrið hans. Þau
töluðu saman á móðurmáli sínu —
og má nærri geta hve undrandi
þau urðu, þegar þau heyrðu páfa-
gaukinn ryðja úr sér hverri setn-
ingunni á fætur annarri á móður-
máli þeirra. (20 hús.)
Þýðendwr (auk ritstjórans): Öskar Bergsson (Ó.B.), Ingólfur Pálma-
son (I.P.), Ólafur Sveinsson (Ó.Sv.) og Jón Óskar (J.Ó.).
(ÍRVAL •—■ tímarit. — Kemur út 8 sinnum á ári.
Ritstjóri: Gísli Ólafsson. Leifsgötu 16, Reykjavík. Simi 4954.
Afgreiðsla Tjarnargötu 4. Áskriftarverð 70 krónur.
Útgefandi: Steindórsprent h.f.