Úrval - 01.08.1953, Blaðsíða 45
STÆRSTA BÖKAVERZLUN 1 HEIMI
43
keypis auglýsinga — og fjölda
nýrra kaupenda.
Svo víðkunn er auglýsinga-
tækni Foyles, að þegar svo bar
við eitt sinn, að maður nokkur,
sem stunginn var með hníf í
dimmri hliðargötu í nánd við
Soho, reikaði blóði drifinn inn
í eina bókabúð Foyles (glæpa-
sögudeildina eins og vænta
mátti), þá vildu Lundúnarbúar
ekki trúa því að hér væri um
að ræða annað en auglýsinga-
brellu.
Bókaverzlun Williams Foyle
spratt upp af óbeit hans á bók-
lestri. Hann ólst upp í Haxton
í London og var lítið gefinn fyr-
ir skólanám. En þegar hann var
sautján ára og Gilbert bróðir
hans 15, ákváðu þeir að afla sér
menntunar svo að þeir gætu
komizt í þjónustu ríkisins. Þeir
söfnuðu sér nægilegu fé til
námsbókakaupa og fóru á nám-
skeið í King’s College. Þeir
lögðu hart að sér til að ná prófi,
en féllu báðir með glans.
Vonsviknir og félausir á-
kváðu þeir bræður að selja
námsbækur sínar. Þeir settu
auglýsingu í skólablað, og sér
til mikillar undrunar fengu þeir
margar fyrirspurnir. Og þeir
seldu bækurnar sínar með góð-
um hagnaði! Þá var það sem
Willie kom til hugar, að hann
væri ef til vill betur fallin til
að vera bóksali en bókabéus.
Bræðurnir keyptu heilmikið
af notuðum bókum — og seldu
þær fljótt aftur með góðum
hagnaði. Brátt voru þeir farnir
að reka blómlega fombókaverzl-
un í eldhúsi móður sinnar.
Á nokkrum árum óx verzlun-
in upp úr eldhúsinu, var um
skeið í hrörlegum vöruskemm-
um unz hún komst til Charing
Cross Road. Eftir að þangað
kom óx hún hraðfluga, og nú
orðið er það aðeins afskipta-
leysi yfirvaldanna að þakka, að
Foyie’s telst enn til bókaverzl-
ana. I rauninni er fyrirtækið
bókmenntalager. Því er skipt í
32 deildir og eru í sumum þeirra
stærstu sérgreinabókasöfn í
heimi. Auk þess hefur það teygt
sig inn á ýmz skyld svið. Það
rekur t. d. bókaklúbb („Book-
of-the-Month“), sem telur
250,000 félaga og er stærsti
bókaklúbbur landsins. Auk þess
starfrækir Foyle bókaklúbb fyr-
ir sérgreinar, allt frá stjörnu-
fræði- til glæpasöguklúbba. Þá
má geta þess, að Foyle rekur
stærsta útlánsbókasafn í heimi.
Það er í 15000 deildum, sem
dreifðar eru um allt brezka sam-
veldið og einnig um úthöfin, þar
sem skip úr brezka herskipa-
og kaupskipaflotanum sigla.
Fyrirtækið á mikið málverka-
safn og má þar fá teikningar
og málverk frá ýmsum löndum.
Sala á grammófónplötum er ein
starfsgrein þess, og loks má
geta þess, að engin stofnun í
Bretlandi rekur jafn víðtæka
fyrirlestrarstarfsemi og Foyle.
Um 300 fyrirlestrar eru að jafn-
aði í þjónustu verzlunarinnar