Úrval - 01.08.1953, Blaðsíða 44
1 eldhúsi móður sinnar byrjuðu
bræðumir Foyle að reka
bókaverzlun, sem nú er —
Stœrsta bókaverzlun í heimL
Grein úr „United Nations World",
eftir Emst Leiser.
k HVERJUM DEGI berast
30.000 bréf víðsvegar að
úr heiminum til bókaverzlunar-
innar W. & G. Foyle Ltd. í
London, sem er merkilegasta og
án efa stærsta smásölubóka-
verzlun í heimi. Bókapantan-
irnar, sem sífellt fer fjölgandi,
eru eins og vænta má æði marg-
víslegar. Onefndur viðskipta-
maður bað t. d. einu sinni um
handbók í hengingum. Stundum
verður Foyle að leita víða til að
geta afgreitt pantanir, en oft-
ast nægir að leita í þeim þrem
milljónum eintaka, sem verzl-
unin á.
Þetta geysimikla bókasafn er
geymt í dreifðri og illa viðhald-
inni húsaþyrpingnu efst í Char-
ing Cross Road, en sú gata er
kunn undir nafninu „Booksell-
ers Row“. Beggja vegna götunn-
ar eru búðir, sem verzla með
allskonar bækur, en flestar
þeirra eru svo litlar, að þær
kæmust fyrir í einhverju horn-
inu hjá Foyle, sem ræður yfir
5 hektara gólffleti.
Forstjóri þessarar miklu
bókaverzlunar er feitlaginn, lág-
vaxinn maður með mikið hvítt
hár og athugul augu bak við
umgerðarlaus gleraugu. William
Alfred Foyle, sem nú er 66 ára,
segir spotzkur og þó með dá-
lítilli sjálfsánægju, að ekki hafi
getað hjá því farið að sér gengi
vel þegar þess sé gætt, að hann,
faðir hans og afi voru allir sjö-
unda barn í röðinni í sínum
systkinahóp. Hitt mun þó sanni
nær, að áþreifanlegri orsakir
séu til þess hve gífurlega verzl-
unin hefur vaxið síðan William
og yngri bróðir hans, Gilbert,
byrjuðu að selja bækur í eld-
húsi móður sinnar fyrir 48 ár-
um. Þær orsakir eru óvenju-
legir verzlunarhæfileikar og frá-
bært skynbragð á gildi auglýs-
inga.
Þegar Adolf Hitler tók upp
hinar alræmdu bókabrennur sín-
ar í Þýzkalandi, sendi William
Foyle honum skeyti: „Get boð-
ið yður hátt verð fyrir allar
bannaðar bækur. Brennið þær
ekki.“ Stjórnin í Berlín svaraði
ekki skeytinu — en blöðin í
London gerðu sér mat úr því,
og Foyle fékk þannig gnægð ó-