Úrval - 01.08.1953, Blaðsíða 13
SlAMSKIR TVlBURAR SKILDIR AÐ
11
hver yrðu áhrif hennar? Þessi
ótrúlega langvinna svæfing
hafði verið óskapleg áreynsla
fyrir hin litlu hjörtu tvíburanna,
og opnar höfuðkúpurnar buðu
sýkingarhættunni heim.
Það fór fyrir Roger eins og
læknarnir sáu fyrir, þegar þeir
tóku hina þungbæru ákvörðun
sína. Hann komst aldrei tií með-
vitundar eftir aðgerðina. 34 dög-
um eftir að hann hafði verið
skilinn frá Rodney dó hann, en
hefði hann haldið lífi, mundi
hann að öllum líkindum hafa
orðið fáviti.
Rodney iifir og honum miðar
jafnt og þétt í rétta átt. Allt
bendir til, að hann geti, er frá
líður, sagt: ég er eini núlifandi
maðurinn í heiminum, sem hef
verið síamskur tvíburi.
Læknarnir, sem gáfu honum
líf sjálfstæðs, heilbrigðs manns,
hafa nýlega sent frá sér ítarlega
skýrslu um aðgerðina og aðdrag-
anda hennar og um núverandi
ástand Rodneys. Þeir segja, að
hann virðist enn vera tilfinn-
ingalaus í vinstri hendi og að
greina megi vott lömunar sums
staðar í vinstri síðu. Hann geti
ekki haldið höfði lengi í einu
og eigi erfitt með að sitja stuðn-
ingslaus. En, bæta þeir við, hann
virðist vera skýr og andlega
heilbrigður, viðbrögð hans eru
eðlileg, hann getur sjálfur hald-
ið á pelanum sínum, hann gerir
glöggan mun á mat sem honum
þykir góður og því sem honum
þykir vont, og sér og heyrir á
þann hátt, að ekki er nokkur
ástæða til að efast um, að heili
hans starfi eins og hann á að
gera. Það er heldur ekki ástæða
til að ætla, að hann verði ekki,
er frá líður algerlega heilbrigt
barn.
Á íandamærumun.
Amerískt ferðafólk var stöðvað í bíl sínum við mexíkönsku
landamærin. Landamæravörðurinn skoðaði skilríki þeirra, sem
í bílnum voru. Svo sneri hann sér að bílstjóranum og sag'ði:
„Vegabréfið yðar er í lagi. En getið þér sannað, að þessi
kona sé eiginkona yðar?
Maðurinn leit á sessunaut sinn í bílnum, hallaði sér svo út
um bílrúðuna og hvíslaði að landamæraverðinum:
„Ég skal borga yður 100 dollara, ef þér getið sannað, að
hún sé ekki konan mín.“ — Constellation.
__^__
Kostaboð.
Kaupmaðurinn segir við viðskiptavin sinn: „Eg get ekki
skrifað meira hjá yður. Reikningurinn yðar er þegar orðinn
hærri en hann ætti að vera.“
„Ég veit það,“ sagði viðskiptavinurinn. „Lækkið hann bara
niður í það sem hann ætti að vera og þá skal ég borga hann.“
Round-up.