Skinfaxi - 01.02.2017, Page 3
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Sími 580 2500 | www.lotto.is
Íslensk getspá er í eigu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands,
Öryrkjabandalagsins og Ungmennafélags Íslands.
ÍSLENSK
GETSPÁ
ÞAÐ ER ALDREI AÐ VITA
Í HVAÐA ÍÞRÓTT BARNIÐ
ÞITT BLÓMSTRAR.
ÞESS VEGNA STYÐJUM
VIÐ ÞÆR ALLAR.
F
élagar í Skotíþróttafélagi Kópavogs hafa staðið
sig vel í keppnum hér heima og erlendis í
gegnum tíðina. Bára Einarsdóttir, sem situr
í stjórn Skotíþróttafélagsins, segir grósk-
una mikla og félagsmenn einkar sam-
heldna. Það skili sér í góðu félagi.
Félagið vill sjá fleiri konur æfa
skotfimi.
„Það er einkar góður andi í Skotíþrótta-
félagi Kópavogs. Við höfum lagt okkur fram
um að vinna saman að málum félagsins og
höfum það að leiðarljósi að öllum líði vel.
Þetta hefur skilað því að við erum eins og
ein stór fjölskylda og vinnum vel saman,“
segir Bára Einarsdóttir.
Fáar konur eru í Skotíþróttafélaginu
og er unnið að því að fjölga þeim. „Við
höfum verið að vinna í því, tala við aðrar
konur og smita út frá okkur gleðinni sem
ríkir hjá félaginu. Það gengur vel en hægt
og bítandi. Við vorum með nýliðanám-
skeið í vetur og sóttu það aðallega konur,“
segir Bára og bætir við að stutt sé síðan
konum tók að fjölga í félaginu að ráði. Hún
settist sjálf í stjórn Skotíþróttafélagsins árið
2013. Þá var hún eina konan. Nú eru stjórn-
arkonurnar orðnar þrjár og eru þær í fyrsta
sinn í meirihluta í næstum þrjátíu ára sögu
félagsins.
Bára segir áhugaleysi kvenna á skotíþrótt-
inni byggjast á misskilningi. „Vinkonum mínum
þykir þetta spennandi en þær halda að íþróttin
sé djöfulgangur og læti. En það er ekki svo. Þvert
á móti er þetta rólyndisíþrótt sem krefst einbeiting-
ar. Einn tími hjá okkur jafnast á við góðan jógatíma,“
segir Bára kímin og vill sjá miklu fleiri konur leggja
stund á skotíþróttina.
Stund með byssunni jafnast
á við góðan jógatíma
A-sveit SFK, skipuð þeim Lilju Alfreðsdóttur, Báru Einarsdóttur og Guðrúnu Hafberg, setti ný Íslandsmet í
50m liggjandi riffli og þrístöðu á Íslandsmeistaramótunum sem haldin voru í apríl.
Bára Einarsdóttir keppir hér í 50 m
liggjandi riffli.
Sigurveig Helga Jónsdóttir á Íslands-
meistaramótinu í loftskammbyssu.
Félagar í Skotíþróttafélagi
Kópavogs vinna vel saman og
leggja upp úr því að treysta
böndin. „Við erum eins og
ein stór fjölskylda,“
segir Bára Einarsdóttir.
Í hnotskurn
• Skotíþróttafélag Kópavogs
er með aðstöðu í kjallara
HK-hússins við Skálaheiði
í Kópavogi.
• Félagið var stofnað árið 1989.
• Unglingar geta byrjað að æfa
skotfimi við 15 ára aldur.
• Bára er Íslands- og bikar-
meistari í 50 m liggjandi riffli.
• Jón Þór Sigurðsson í Skot-
íþróttafélaginu er Íslands- og
bikarmeistari í 50 m liggjandi
riffli og Íslandsmeistari með
sportskammbyssu.
Bára ásamt þeim Margréti Lindu Alfreðs-
dóttur og Guðrúnu Hafberg þar sem þær
sýna rifflana.
Frá keppni Skotíþróttafélags Kópavogs í Silhouette-skotfimi
með .22LR cal. veiðirifflum.