Skinfaxi - 01.02.2017, Síða 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
S jöunda landsmót UMFÍ 50+ verður hald -
ið í Hveragerði dagana 23.–25. júní næst-
komandi. Ég tel að þetta mót eigi alla mögu-
leika til þess að þátttakan aukist og á mér
þann draum að keppendur yfir fimmtugu
verði á bilinu 6–800 í hinum ýmsu greinum.
Mótin eru haldin árlega á mismunandi
stöðum á landinu og víða orðin vel þekkt.
Flestir þeirra sem hafa mætt á mótin hingað
til eru 65 ára og eldri. Ánægjulegt væri að sjá
fleira íþróttafólk á aldrinum 50–65 ára taka
þátt. Sá aldurshópur er fjölmennari á land-
inu og á oftast auðveldara með að hreyfa
sig. Hann hefur einnig fengið meiri kynningu
í gegnum tíðina um nauðsyn hreyfingar. Því
vil ég hvetja fólk á þessum aldri til að fjöl-
menna á þessi skemmtilegu mót og taka
þátt í keppni við allra hæfi. Það myndi auka
gildi mótanna mikið að fá fleiri þátttakendur
og gera þau meira virði sem mót fyrir fólk
yfir miðjum aldri.
En hvert er markmiðið með þessum mót -
um? Jú, að stuðla að aukinni hreyfingu fólks
á þessum aldri árið um kring. Með hreyfing-
unni batnar ekki aðeins líkamleg og andleg
heilsa fólks heldur batnar félagslegi þáttur-
inn verulega með skemmtilegu samneyti við
jafningja. Vinnum saman að því að efla þessi
mót, við getum það ef við leggjumst öll á eitt.
Í samtökum okkar sem og annars staðar er
um að gera að nýta kannanir og rannsóknar-
niðurstöður sem eru til um heilsufar og lífs -
hætti fólks. Út frá þeim getum við unnið sam-
an að jákvæðum verkefnum fyrir samborgar-
ana. Embætti landlæknis gefur út Lýðheilsu-
vísa sem mæla ýmsa þætti í lífsháttum og
lífsvenjum fólks. Lýðheilsuvísum er hægt að
skipta niður á landshluta og skoða og bera
saman niðurstöður svæðisbundið og fyrir
landið í heild. Upplýsingar um börn, unglinga,
fullorðið fólk og eldra fólk er hægt að fá,
bæði sundurliðaðar og í heildarniðurstöðu,
sem sýna okkur talsvert um lífsvenjur ákveð-
Hreyfingin gerir okkur öll betri
inna hópa. Marga þessara lýðheilsuvísa er
hægt að hafa áhrif á og ef við getum bætt
þó ekki væri nema einhverja þætti væri það
samfélaginu tvímælalaust til góðs. Hver og
einn einstaklingur getur nýtt sér þessar upp-
lýsingar og notað þær fyrir sjálfan sig.
Við getum til dæmis lesið út úr Lýðheilsu-
vísum hver líkamsþyngdarstuðull fólks er í
ákveðnum landshlutum, hvort fólk hreyfir
sig daglega og hver gosdrykkjaneysla er í
einum landshluta í samanburði við annan
– og meðaltalið.
Það að geta lesið úr og nýtt sér slíkar upp-
lýsingar á að stýra starfi okkar á markvissari
hátt og í ákveðnari farveg. Hvað skýrir það
t.d. að kannabisneysla unglinga er meiri á
höfuðborgarsvæðinu en víða úti á landi?
Sofa unglingar í umdæmi okkar nægilega
mikið? Suma þætti getum við ekki haft áhrif
á en sumar upplýsingarnar í lýðheilsuvísun-
um eru mjög góðar og við eigum að nýta
okkur þá og vinna í þeim þáttum sem við
getum stýrt eða haft áhrif á. Stefnum að því
að sú vinna komi samfélaginu til góða, unga
fólkið er framtíð okkar, vinnum með því.
Óskir um gleðilegt ungmennafélags-
sumar til ykkar allra.
Haukur F. Valtýsson,
formaður UMFÍ
Leiðari Skinfaxa:
Efnisyfirlit
Margrét Lilja:
Skipulagt íþrótta-
starf er gott 8
Aldís Hafsteinsdóttir:
Býst við miklum
fjölda í bæinn 18
Hjördís Þorsteinsdóttir:
Bakaði pönnu-
kökur og vann 26
Áslaug Arna:
Góð ráð
fyrir ungt fólk 12
Guðríður Aadnegard:
Miklu meira
en keppni 22
Hannes sjúkraþjálfari:
Ekki vera feimin/n
við hreyfingu 27
Hreppslaug í Borgarfirði
Falda
paradísin 14
Þórhallur Einisson:
Ástin kviknaði
í badminton 24
3 Vill sjá fleiri konur æfa skotfimi
6 Landsmót 2018 með nýju sniði
10 Umf. Reynir er 110 ára
20 Gott að stunda utanvegahlaup
– Valdimar Hafsteinsson
24 Sérgreinarstjórarnir í Hveragerði:
Allir leggja sitt af mörkum
29 Gaman að keppa heima
– Rannveig Halldórsdóttir
30 Margt að skoða í Hveragerði
34 Lýðheilsuvísar eru lifandi verkefni
38 Hvað má og má ekki?
41 Erfitt að sinna stóru svæði
– Anita Karin Guttesen
42 Unglingalandsmót í Þorlákshöfn:
Undirbúningur gengur vel
43 Ungmennafélag Laugdæla:
Eru virk á Facebook
Gísli Páll Pálsson:
Tilbúinn fyrir
Landsmót 50+ 16
Kolbún Lára:
Engin ástæða
til að vera hrædd 32