Skinfaxi - 01.02.2017, Blaðsíða 6
6 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 2. tbl. 2017
Skinfaxi er tímarit Ungmennafélags Íslands.
Það hefur komið út samfleytt síðan árið 1909.
Blaðið kemur út ársfjórðungslega. Tímaritið
dregur nafn sitt af hestinum fljúgandi er
dró vagninn sem goðsagnaveran Dagur ók
um himinhvolfið í norrænum sagnaheimi.
Ritstjóri: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
Ábyrgðarmaður: Haukur Valtýsson,
formaður UMFÍ
Ljósmyndir: Haraldur Jónasson, Hafsteinn
Snær Þorsteinsson, Gunnar Gunnarsson,
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: Miðlun ehf. o.fl.
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson formaður, Örn Guðnason,
Birgir Örn Sigurðsson, Jón Páll Hreinsson og
Vigdís Diljá Óskarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42,
105 Reykjavík, sími: 568-2929
umfi@umfi.is – www.umfi.is
Starfsfólk UMFÍ:
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningar-
fulltrúi og ritstjóri Skinfaxa
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og
framkvæmdastjóri Landsmóta
(með aðsetur á Sauðárkróki)
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi
og verkefnastjóri
Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi og
verkefnastjóri
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari
Starfsfólk Evrópu unga fólksins
Anna R. Möller, forstöðumaður
Helga Dagný Árnadóttir, verkefnastjóri
Hjörtur Ágústsson, kynningarfulltrúi
Starfsfólk UMFÍ á Laugum í Sælingsdal
Anna Margrét Tómasdóttir, forstöðukona
Jörgen Nilsson, tómstundaleiðbeinandi
Gunnar Már Gunnarsson, tómstundaleið-
beinandi og starfsmaður Sælingsdalslaugar
Hrönn Jónsdóttir, tómstundaleiðbeinandi
Marta Sigurðardóttir, matráður
Vladimir Babic, tómstundaleiðbeinandi
Céline Castel, matráður
Tomáš Hub, tómstundaleiðbeinandi
Stjórn UMFÍ:
Haukur Valtýsson, formaður
Örn Guðnason, varaformaður
Hrönn Jónsdóttir, ritari
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri
Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórnandi
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi
Björn Grétar Baldursson, meðstjórnandi
Varastjórn UMFÍ:
Þorgeir Örn Tryggvason, Kristinn Óskar
Grétuson, Sigurður Óskar Jónsson og
Guðmundur Sigurbergsson.
Forsíðumynd:
Forsíðumyndina tók Haraldur Jónasson
af Valdimari Hafsteinssyni, framkvæmda-
stjóra Kjöríss og þátttakanda í Landsmóti
UMFÍ 50+ í Hveragerði dagana 23.–25. júní.
Vissir þú …
... að Ungmennafélag Íslands er
landssamband ungmennafélaga.
... að innan UMFÍ eru um
340 félög í ýmis konar
íþróttum og félagsstarfi.
... að félagsmenn UMFÍ eru:
160.964
... að landsmenn eru:
338.349
... að sambandsaðilar UMFÍ eru:
18 víða um land
og auk þess
11 félög með
beina aðild.
Landsmót UMFÍ á sér langa og merkilega
sögu. Mótið var fyrst haldið árið 1909 á
Akureyri og síðast var það haldið árið 2013
á Selfossi. Það Landsmót var hið 27. í röðinni.
Mótin voru lengi vel stærstu og merkustu
íþróttaviðburðir landsins og skiptu gestir
mótanna þúsundum.
Að loknu Landsmóti 2013 var ákveðið að
staldra við og velta fyrir sér framtíð mótsins
enda voru þá orðnar gríðarlega miklar breyt-
ingar á íþróttalífi og viðburðum um land allt.
Lagst var í vinnu og endurskoðun á mótinu.
Niðurstaðan varð sú að gjörbreyta því, opna
mótið, hætta stigakeppni og höfða betur til
fólks sem hreyfir sig reglulega og stundar
íþróttir af krafti.
Nýtt landsmót
Nýtt mót mun líta dagsins ljós á Sauðárkróki
dagana 13.–15. júlí 2018. Mótið verður byggt
á gömlum og góðum grunni en með nýju
fyrirkomulagi. Það verður opið öllum, 18 ára
og eldri. Fjölmargar keppnisgreinar verða
í boði fyrir einstaklinga og hópa ásamt
skemmtilegri afþreyingu við allra hæfi. Þetta
verður sannkölluð íþróttahátíð þar sem allir
eiga að geta fundið íþróttagrein og önnur
verkefni sem þeim líkar. Tónlist og menning
verður einnig í hávegum höfð til að krydda
þessa helgi í Skagafirði og gera hana eftir-
minnilega.
Landsmót UMFÍ 50+ á sama tíma
Samhliða þessu nýja móti verður Landsmót
UMFÍ 50+ einnig haldið á Sauðárkróki. Mótið
verður með svipuðu sniði og ætíð áður. En
þar sem Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið
samhliða nýja Landsmótinu verður töluvert
meira í boði varðandi keppni og afþreyingu
en áður.
Leitast verður því við að þetta nýja Lands-
mót UMFÍ höfði til sem flestra sem stunda
hvers konar hreyfingu sér til heilsubótar, ekki
síður en til þeirra sem hafa ekki enn komið
sér af stað en vilja fara að hreyfa sig og fá
leiðsögn til að gera það. Margt verður í boði
fyrir þá sem hreyfa sig.
Ungmennafélag Íslands hvetur til þátt-
töku á þessu nýja móti og vonar sannarlega
að með því verði stigin góð skref inn í nýja
tíma.
Takið strax frá dagana 13.–15. júlí 2018 og
hittumst glöð á Sauðárkróki.
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ og
framkvæmdastjóri móta UMFÍ.
Landsmót UMFÍ 50+ verður
hluti af Landsmóti UMFÍ
á Sauðárkróki 2018
Ómar Bragi er á ferð og flugi allan
ársins hring við skipulagningu móta
UMFÍ. Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki
2018 verður stærsti viðburður
hreyfingarinnar í fjögur ár.