Skinfaxi - 01.02.2017, Page 8
8 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Margrét Lilja Guðmundsdóttir segir að
Íslendingar séu fyrirmynd annarra þjóða í
forvarnamálum. Skipulagt tómstunda-
starf utan skólatíma vegi þar þungt.
Hollendingar horfa til Íslands í forvarna-
málum.
„Íþróttastarfið hér er einstakt, forvarnagildi
þess er til fyrirmyndar á heimsvísu,“ segir
Margrét Lilja Guðmundsdóttir, aðjúnkt á
íþróttasviði Háskólans í Reykjavík og sérfræð-
ingur hjá rannsóknarfyrirtækinu Rannsóknir
og greining. Hún kynnti niðurstöður Ánægju-
vogarinnar á fundi hópsins Náum áttum í
vor.
Fram kemur í niðurstöðunum að meiri-
hluti barna, sem stunda íþróttir einu sinni
í viku eða oftar, er virkur í íþróttastarfi eða
öðru skipulögðu tómstundastarfi og lætur
áfengi og vímuefni að mestu í friði. Hlutfall
þeirra sem æfa fjórum sinnum eða oftar með
íþróttafélagi er lægra í neyslu en annarra.
Hlutfall þeirra sem nota hvorki áfengi né
önnur ávanabindandi efni er hæst í neðri
bekkjum grunnskóla en lækkar eftir því sem
börnin eldast.
Þá benda niðurstöður Rannsókna og
greiningar til að þau börn sem eru virk í
íþróttastarfi og tómstundastarfi finni síður
fyrir kvíða og þunglyndi en önnur börn. „Við
sjáum alltaf að krökkum, sem eru virkir í
íþróttum, líður betur, andlega og líkamlega,
þau hreyfa sig og hugsa um sig. Rannsóknir
sýna okkur æ betur að hreyfing virkar, ef ekki
betur þá jafn vel og lyf sem fólki eru gefin
vegna andlegra sjúkdóma,“ segir Margrét
og hnykkir á að lífshamingja, ánægja og
námsárangur ungmenna fylgi þeim sem er
virkur í íþróttafélagi.
Hættulegt að hafa ekkert að gera
Margrét segir niðurstöður Ánægjuvogarinnar
mjög jákvæðar. En um leið og íþróttastarf
og skipulagt tómstundastarf skili góðum
árangri í forvarnamálum þurfi að huga að
þeim sem eru ekki í neinu starfi.
„Á miðstigi í grunnskóla er ekki mikið í
boði fyrir börn eftir skóla. Íþróttastarfið og
skipulagt tómstundastarf er því mikilvægt,“
segir Margrét og bætir við að það sé í raun
alveg sama hvar borið sé niður, hópurinn,
sem er ekki í skipulögðu starfi, komi alltaf
verr út í samanburði við þann sem er virkur í
íþróttum.
„Ég hef meiri áhyggjur af þeim sem eru
ekki í íþróttum eða öðru skipulögðu tóm-
stundastarfi. Ég er ekki ein um það. Fullt af
fagfólki beinir nú sjónum sínum að þeim
hópi,“ segir Margrét og leggur áherslu á að
Íslendingar hafi náð miklum árangri í forvar-
namálum. Eftir því sé tekið í öðrum löndum.
Áhyggjur af börnum
sem eru ekki í skipulögðu
íþróttastarfi
Hollenski fréttamaðurinn Rudy Bouma telur fullvíst að
Íslendingar geti verið fyrirmynd Hollendinga í forvarna-
málum. Í byrjun árs las hann grein í bandaríska tímaritinu
The Atlantic um árangur Íslendinga í forvarnamálum og til
hvaða ráða var gripið hér til að draga úr unglingadrykkju og
forða ungmennum frá neyslu fíkniefna. Hann er á ferð um
Evrópu um þessar mundir við vinnslu á þáttaröð sem áformað
er að sýna í sumar í fréttaskýringaþættinum Nieuwsuur sem
sendur er út á hverjum degi á hollensku ríkissjónvarpsstöð-
inni NOS. Bouma áætlar að vera á Íslandi í nokkra daga um
miðjan júní við vinnslu innslaga í þáttinn.
Skjáskot af greininni í The Atlantic.
Margrét Lilja og fleiri
þátttakendur á fundi Náum áttum.