Skinfaxi - 01.02.2017, Qupperneq 10
10 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennafélagið Reynir á Árskógsströnd fagnar 110 ára
afmæli á þessu ári. Formaður félagsins segir það enn virkt
þótt félagsmönnum hafi fækkaði talsvert í gegnum tíðina.
Afmælinu verður fagnað í sumar.
„Stemmningin í félaginu er ágæt. Við höfum ekki fastneglt dag-
skrána en ætlum að hafa uppákomur í sumar og vígja ýmsa
afþreyingarmöguleika á Árskógsströnd í tilefni afmælisins,“ segir
Marinó Þorsteinsson, formaður Ungmennafélagsins Reynis.
Félagið var stofnað 3. mars árið 1907 og er það eitt elsta ung-
mennafélagið á Íslandi. Í tilefni afmælisins hafa verið keyptar körf-
ur fyrir frisbígolf, sett upp blaknet og afþreyingarsvæðið betrum-
bætt svo að fólk geti leikið sér.
Félagið setti sér í upphafi sömu markmið og Ungmennafélag
Íslands, að hlúa að menningararfinum, glæða áhuga þjóðarinnar
á bókmenntum og leiklist, huga að skógrækt, fegra og hreinsa
tunguna, hefja íþróttalíf til vegs og virðingar, vinna að bindindi
og fleira. Fyrirmynd félagsins var Ungmennafélag Akureyrar. En
auk þess var málfundafélag í sveitinni sem treysti ungmenna-
félagið. Félagið sinnti mannúðarmálum í fyrstu og kom að fjáröfl-
un vegna Kristneshælis. Upp úr ungmennafélaginu spratt síðar
Kvenfélagið Hvöt sem tók við mannúðarstarfinu.
Góður árangur í íþróttum
Fyrstu árin voru íþróttir stór þáttur í starfsemi Ungmennafélags-
ins Reynis. Glíma og sund voru aðalgreinarnar. Sund færðist síðar
til Dalvíkur. Fótbolti var líka vinsæll en knattspyrnuvöllur var tek-
inn í notkun á Árskógsströnd árið 1970. Fimm árum síðar var bætt
við handboltavelli og frjálsíþróttasvæði. Keppendum félagsins hef-
ur vegnað vel í gegnum tíðina. Minna hefur þó farið fyrir íþrótta-
iðkunum síðustu ár vegna fólksfækkunar, að sögn formannsins.
„Þetta er áskorun og því heyjum við eins konar varnarbaráttu.
Barnafólk hefur flust á brott. Í staðinn flytur hingað eldra og barn-
laust fólk. Börnunum hefur því fækkað nokkuð á Árskógsströnd.
Við höfum sniðið okkur stakk eftir vexti og fórum því í samstarf
við Ungmennafélag Svarfdæla í knattspyrnu árið 2006. Við reynum
að halda úti minni háttar verkefnum eins og árlega Þorvaldsdals-
skokkinu. Yngri flokkar í knattspyrnu æfa líka á Árskógsströnd en
meistaraflokkurinn, Dalvík/Reynir, æfir á Dalvík og spilar þar heima-
leiki sína,“ segir hann og bætir við að börnum á Árskógsströnd sé
nú ekið á æfingar í íþróttum til Dalvíkur.
Íbúar á Árskógsströnd eru um 350. Þrátt fyrir það eru félags-
menn í Ungmennafélaginu Reyni um 100 talsins. „Margir þeirra
Elsta ungmennafélag landsins 110 ára
Félagsblaðið Helgi magri er stolt
Ungmennafélagsins Reynis. Fyrsta tölu-
blaðið kom út árið 1910 og hefur það
komið út með örlitlum hléum til dagsins
í dag. Búið er að færa blaðið á tölvutækt
form og er það nær allt aðgengilegt á
heimasíðu Reynis.
Félagsblaðið hefur ávallt gegnt mikil-
vægu hlutverki í starfsemi ungmenna-
félagsins og var á aðalfundum lesið upp
úr því. Blaðið var lengst af handskrifað
en frá og með 1. tölublaði árið 1994
hefur það verið fjölritað og því dreift á
öll heimili sveitarinnar. Í Helga magra
eru skráðar starfsskýrslur félagsins
ásamt ýmsum sögum og ljóðum félags-
manna. Þá hefur svonefndur annáll
verið skráður frá árinu 1979 þar sem
getið er um fæðingar, fermingar, andlát,
afmæli og giftingar á félagssvæðinu.
Marinó á milli tveggja félaga sinna. Að sjálfsögðu eru allir klæddir í treyjur félagsins.
Börn á leikjanámskeiði Ungmennafélagsins Reynis.
eru brottfluttir íbúar sem vilja halda tengslum við sveitina og
tryggð við félagið,“ segir Marinó Þorsteinsson, formaður Ung-
mennafélagsins Reynis á Árskógsströnd.