Skinfaxi - 01.02.2017, Síða 12
12 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Þ
ingkonan Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir er fyrirmynd. Hún
er með yngstu þingmönnum
Íslands og hefur verið á góðri
uppleið í hinum pólitíska heimi.
Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins árið 2016
fór hún fram gegn sitjandi ritara flokksins,
Guðlaugi Þór Þórðarsyni, sem dró framboð
sitt til baka. Áslaug hefur unnið um árabil að
ýmiss konar félagsstörfum. Hún er nú ritari
Sjálfstæðisflokksins, formaður allsherjar- og
menntamálanefndar Alþingis og varaformað-
ur þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
Hvernig sérðu fyrir þér aðkomu félagasamtaka
að forvarnamálum?
„Félagasamtök eru mjög mikilvægur hlekkur í
öllu forvarnastarfi. Þar þarf allt að spila saman,
ríkið, félagasamtök og velferðar-, heilbrigðis-
og menntakerfi. Ég held að við þurfum á
mörgum sviðum að byrja fyrr að hugsa um
forvarnastarf. Við höfum áttað okkur á því
en tökum of smá og hæg skref. Við þurfum
að einblína í meiri mæli á mikilvægi forvarna
fyrir alla aldurshópa en aðallega fyrir ungt
fólk. Þegar okkur tekst að sinna forvörnum
vel léttum við á öllum kerfum ríkisins, ekki
síst velferðar- og heilbrigðiskerfinu.“
Kemur til greina að auka fjárveitingar til
forvarna?
„Það hefur verið í umræðunni. Ég veit að ráð-
herrar ýmissa málaflokka hafa rætt það og
ég mun þrýsta á það. En forvarnir þurfa að
þróast. Það er gagnkvæmur skilningur á
mikilvægi forvarna. Þótt áherslurnar séu mis-
munandi, þegar kemur að boðum og bönnum,
hefur það sýnt sig að forvarnir eru langbesta
leiðin í lýðheilsumálum. Íþróttahreyfingin
gegnir þar mikilvægu hlutverki. Við eldumst
hratt og getum lítið gert við því. En um leið
hefur ofþyngd aukist mikið. Þar þarf að
grípa í taumana. Þetta helst líka allt í hendur
og hugsa þarf málin í stærra samhengi.
Fangelsismálin eru af sama meiði. Við getum
byggt fleiri fangelsi. En við getum líka horft
fram á við og velt fyrir okkur hvað við getum
gert í dag svo að staðan verði betri í framtíð-
inni. Markmið okkar hlýtur að vera að fækka
föngum og koma í veg fyrir að fólk brjóti af
sér. Í því samhengi skipta æskulýðs- og for-
varnamálin máli fyrir framtíðarsýnina.“
Er framtíðarsýnin til?
„Það eru margar ákvarðanir teknar í dag sem
eiga að hafa áhrif eftir mörg ár. Í menntakerf-
inu þurfum við sem dæmi að ákveða hvar
þörfin verður á næstu árum. Við þurfum
þess vegna að reyna að beina fólki í réttar
áttir í nútímanum. Við sjáum ekki ávinninginn
af starfinu strax. En þannig eiga stjórnmálin
meira að vera, ákvarðanir teknar í dag eiga
að hafa áhrif til lengri tíma og til framtíðar,
en ekki aðeins ákvarðanir sem hafa góð áhrif
til skamms tíma.“
Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2015 réðstu
ekki á garðinn þar sem hann var lægstur. Þú
og annað ungt fólk í flokknum gagnrýndir
flokksforystuna fyrir að hlusta lítið á jafningja
ykkar. Þú fórst svo fram gegn sitjandi ritara.
Hvernig stuðlar maður að breytingum í svona
formföstu félagi?
„Það er mikilvægt að þora stíga fram. Ég
ákvað að láta á það reyna hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn væri í raun tilbúinn til að bjóða
ungt fólk velkomið í forystuna til að breikka
hana og hafa áhrif. Ég var mjög skýr í máli
um það að flokkurinn yrði að hlusta á unga
fólkið, sem flokkurinn gerði. “
Fannstu fyrir fordómum?
„Já, einhverjum, en ekki miklum. Fordóm-
arnir fólust í gagnrýninni sem sagði að ég
gæti ekki hafa gert þetta allt sjálf því að ég
væri svo ung. Þetta eru aldursfordómar. En
ég held að ég hafi sprengt blöðru. Margir
telja nú mikilvægt að hafa blandaða forystu í
flokknum. Þetta sýnir að öflugt, málefnalegt
ungt fólk, sem sýnir öðrum að það gefur
ekkert eftir og sýnir árangur, getur haft eitt-
hvað til málanna að leggja.“
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir:
Ungt fólk
þarf að
þora að
stíga fram
og tapa
„Hvernig ætlið þið að laga þetta?“
Það kom á óvart þegar Áslaug Arna greindi frá því á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins í október árið 2015 að hún ætlaði að bjóða
sig fram til ritara flokksins. Þar var fyrir Guðlaugur Þór Þórðar-
son, 48 ára þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Lengi vel leit út
fyrir að hann yrði sjálfkjörinn. Guðlaugur ákvað að stíga til
hliðar í ljósi framboðs Áslaugar. Hún var þá 24 ára laganemi.
Guðlaugur sagði í viðtali við Ríkissjónvarpið þar sem hann
tilkynnti ákvörðun sína. „Mín niðurstaða er þessi; það er best
fyrir flokkinn minn og flokkinn okkar, þegar kemur öflugt fram-
boð frá ungri manneskju, að ég stígi til hliðar og gefi henni tæki-
færi til þess að halda áfram þessu starfi og styðja hana vel í því.“
Í ræðu sinni á landsfundinum sagði Áslaug Arna að flokks-
forystan væri einsleit, hleypa yrði ungu fólki að, því þurfi meira
frelsi og minna íhald. „Ég ætlaði ekki alveg strax inn á þing. En
þegar ég kom á landsfund Sjálfstæðisflokksins á laugardags-
morgninum sátu ráðherrar flokksins fyrir svörum. Ég benti þeim
á að meðalaldur þjóðarinnar er 37 ár en þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins 52 ára. Ég spurði: „Hvernig ætlið þið að laga þetta?“
Ég áttaði mig á því að spurning mín var fáránleg og að við
þyrftum að fara fram ef við ætluðum að yngja flokksforystuna.
Ég ákvað því samdægurs að fara fram.“
Ráð til ungs fólks sem vill
hafa áhrif
„Ég segi alltaf við ungt fólk að maður búi að öllum félagsstörf-
um sem maður tekur þátt í. Ég hef sagt við þá sem leita ráða
hjá mér: Það þurfa ekki allir að fara í pólitík til að hafa áhrif. Þú
getur haft áhrif á svo ótrúlega mörgum sviðum. En þú þarft
þor til að stíga fram, þor til að mistakast og þora að njóta þess
sem þú ert að gera á þeim tíma þegar þú gerir það. Þú þarft
líka að þora að stíga feilspor og tapa fyrir einhverjum. Oft lærir
maður meira á því en að sigra. Það býr þig heldur ekkert betur
undir næsta sigur en síðasta tap. Eitt sinn kom til mín ung
kona sem hafði tapaði í kosningum í formannskjöri í nemenda-
félagi. Hún sagðist hafa lesið ráð mín og áttaði sig þá á því
hvað hún hafði lært mikið á því. Ég held að ungt fólk sé smeykt
við að fara fram í forystuslag í félagsstörfum því að það er hrætt
við að ná ekki markmiðum sínum. Krakkar eru oft með stóra
drauma. En þótt þeir rætist ekki þarf það ekki að vera endir
alls. Þú lærir af því sem þú getur nýtt þér. Krakkar eiga að njóta
þess sem þau gera og vera opin fyrir því hvert lífið leiðir þau.“