Skinfaxi - 01.02.2017, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennafélagið Íslendingur byggði
Hreppslaug í Efri-Hrepp í Skorradal í
Borgarfirði árið 1928. Laugin var frið-
uð árið 2014. Sigurður Guðmundsson
er formaður Ungmennafélagsins Íslendings.
Hann segir laugina paradís fyrir fjölskyldufólk.
„Hreppslaug hefur notið vinsælda bæði
hjá fjölskyldufólki og fólki úr Borgarfirði sem
hittist í sundi og ræðir málin. Íslendingar eru
næstum þeir einu sem koma því að erlendir
ferðamenn hafa enn ekki uppgötvað laugina,“
segir Sigurður.
Hreppslaug er á meðal elstu sundlauga
landsins og er algjört augnayndi. Hún er ein
af þeim sundlaugum sem ungmennafélög
landsins stóðu fyrir að byggja á fyrri hluta
síðustu aldar til þess að efla íþróttaiðkun og
bæta lýðheilsu landsmanna. Sundlaugin var
einmitt eitt af fyrstu verkum félagsmanna í
ungmennafélaginu Íslendingi. Ungmenna-
félagið stofnað árið 1911 og hófu sjálfboða-
liðar á vegum félagsins fljótlega eftir það að
hlaða stíflu úr torfi í síki nálægt Andakílsá.
Vatnið þar er volgt og blandast heitu vatni
úr uppsprettu. Í síkinu var stunduð sund-
kennsla þar til samningar náðust um að ung-
mennafélagið fengi land undir sundlaug. Ráð-
ist var í bygginguna árið 1928. En verkið var
ekki auðvelt. Byggingarefni var flutt sjóleiðina
úr Borgarnesi að Ytri-Skeljabrekku í Andakíl á
pramma og hriplekum báti og síðan á hest-
vögnum áfram að Efra-Hreppi. Öll steypa í
sundlaugina var hrærð á trépalli og henni
svo hellt í steypumótin.
Upphaflega voru þrír klefar við Hreppslaug,
einn fyrir karla, annar fyrir konur og sá þriðji
fyrir hesta enda lítið um bíla í sveitinni. Sund-
kennsla byrjaði í lauginni árið 1930 og eru þar
enn haldin sundnámskeið. Sundlaugin, sem
er 25 löng, er óbreytt og rennur vatnið enn í
gegnum hana. Núverandi laugarhús er frá 1969.
Fleiri koma eftir endurbætur
Sjálfboðaliðar unnu að mestu við byggingu
Hreppslaugar á sínum tíma. Það hefur ekkert
breyst fyrir utan að ekki er lengur klefi fyrir
hesta. Ungmennafélagið rekur sundlaugina
enn og sinna sjálfboðaliðar öllu því sem á
þarf að halda, viðhaldi, umhverfinu sem öðru.
Sundlaugin er hins vegar aðeins opin yfir
sumartímann. Fólk er ráðið til að sinna gæslu
og starfið er launað.
Sigurður segir reksturinn hafa verið þung-
an í gegnum tíðina. Í fyrra hafi verið ráðist í
miklar endurbætur á lauginni og byggingum
við hana. Í kjölfarið hafi margt gengið til betri
vegar. „Reksturinn skilaði töluverðum hagn-
aði fyrir ungmennafélagið. Það var jákvætt
og mikil tækifæri fólgin í því,“ segir hann en
bætir við að aðsóknin sé mest um helgar.
Mikið kemur af fjölskyldufólki, sem dvelur í
sumarbústöðum í Skorradal og nágrenni, en
einnig fólk sem vill njóta þess að geta verið í
sundi langt fram á kvöld. Laugin er nefnilega
opin til klukkan 22 á kvöldin.
„Það er enginn að koma hingað til að lifa í
lúxus heldur til að njóta svolítið öðruvísi upp-
lifunar í sveitinni. Klefarnir eru gamlir og litlir
og engar rennibrautir í lauginni,“ segir Sig-
urður og bendir á að margir úr sveitinni sæki
laugina, eigi þar ljúfar stundir með börnum
sínum og til þess að hitta aðra í heitu pottun-
um. „Laugin þjónar því enn sama tilgangi og
þegar hún var byggð, að vera samkomustað-
ur sveitarinnar,“ segir Sigurður.
FALDA PARADÍSIN
Í BORGARFIRÐI
Sigurður Guðmundsson er formaður
Ungmennafélagsins Íslendings.