Skinfaxi - 01.02.2017, Blaðsíða 15
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 15
Fóru í heitt bað fyrir skemmtanir
Í grein um Hreppslaug í Bændablaðinu á síðasta ári var
saga laugarinnar rakin á áhugaverðan hátt. Frásögnin hér
styðst við hana. Þar segir m.a. að á fyrstu árum laugarinn-
ar hafi ekki verið heitur pottur við hana. Þess í stað hafði
verið búin til stífla í gilinu ofan við laugina. Þar myndaðist
pollur sem ungir menn eru sagðir hafa sótt í fyrir dansleiki
í sveitinni. Ástæðan fyrir vinsældum pollsins var sú að
ungu mennirnir höfðu heyrt af því að sæðisfrumur þyldu
illa mikinn hita og lágu þeir því sérlega lengi í heita
vatninu til að drepa sem flestar sæðisfrumur og draga úr
líkum á „óheppilegum afleiðingum skemmtunarinnar“.
Ungmennafélög hafa í gegnum árin haft frum-
kvæði að byggingu sundlauga víða um land.
Hér eru upplýsingar um nokkrar laugar.
• Ungmennafélag Ölfushrepps beitti sér fyrir bygg-
ingu sundlaugarinnar í Laugaskarði í Hveragerði. Hún
var byggð í tveimur áföngum, að stórum hluta af sjálf-
boðaliðum, á árunum 1938-1945. Landsliðið í sundi æfði
í sundlauginni þar til sundlaugin í Laugardal var vígð í
Reykjavík árið 1966.
• Ungmennafélagið Norðfirðingur hóf árið 1912 að
reisa sundlaug á Norðfirði og lauk framkvæmdum átta
árum síðar.
• Árið 1994 hvatti Ungmennafélag Jökuldæla til bygg-
ingar sundlaugar við Skjöldólfsstaðaskóla. Samþykkt var
að félagið yrði aðili að framkvæmdinni.
• Félagsmenn í Einherja, ungmennafélagi Vopnafjarðar,
reistu sundlaugina í Selárdal árið 1949. Verkið var að
mestu unnið í sjálfboðavinnu félagsmanna. Sundlaugin
var vígð árið 1950.
Vissir þú …
... að konur eru í meirihluta stjórnenda sambandsaðila UMFÍ.
Flestir formenn eru konur og framkvæmdastjórar líka.
Formenn
Framkvæmdastjórar
Vissir þú …
... að karlar eru í meirihluta stjórnenda félaga með beina aðild að UMFÍ.
Þrjár konur eru framkvæmdastjórar á móti tveimur körlum.
Formenn
Framkvæmdastjórar