Skinfaxi - 01.02.2017, Qupperneq 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
G
ísli Páll Pálsson er formaður lands-
mótsnefndar HSK sem ber hita og
þunga af skipulagningu Landsmóts
UMFÍ 50+, sem fram fer helgina 23.
til 25. júní í Hveragerði. Gísli spilaði
körfubolta í mörg ár og hefur auk þess víð-
tæka reynslu af félagsmálum innan ung-
mennafélagshreyfingarinnar. Hann verður
auk þess sérgreinarstjóri í stígvélakasti.
„Skipulagið á mótinu er með svipuðum
hætti og verið hefur undanfarin ár, þó alltaf
megi breyta og bæta,” segir Gísli Páll. „Til
dæmis verður bæði keppt í 50+ Throwdown
(crossfit) og strandblaki hjá okkur í sumar.
Undirbúningurinn hefur gengið mjög vel,
Hveragerðisbær kemur myndarlega að mót-
inu og framkvæmd þess. Hér í bænum er líka
öll keppnisaðstaða til mikillar fyrirmyndar.
Má þar nefna Hamarshöllina uppi í dal,
íþróttahúsið, glæsilega sundlaug, golfvöll og
náttúrulega strandblakvöllinn okkar. Keppt
verður í frjálsum íþróttum á „Ulló“ sem er
íþróttasvæði Hvergerðinga undir Hamrinum.
Nafnið er til komið vegna ullarþvottastöðvar-
innar sem stóð þar rétt austan við í mörg ár,”
segir hann.
GÍSLI PÁLL PÁLSSON
ÚR KÖRFUNNI
Í SKYTTERÍIÐ
Gísli Páll er sérgreinarstjórinn í einni af
skemmtilegri greinum Landsmótsins, sjálfu
stígvélakastinu. Hann keppir því ekki í kast-
inu en gæti vel hugsað sér að vera með í
pútti. „Ég þykist vita að Lárus Ingi vinur minn
muni reyna að hafa mig út í það. Aðallega til
að hefna harma við mig fyrir síðasta vetur en
við tölum ekki meira um það. Ef ég mætti
velja grein væri ég fyrsti maður á blað ef
keppt væri í skotfimi með haglabyssu. En
það verður bara að bíða betri tíma. Ég er ný-
orðinn gjaldgengur á mótið og nægur tími
fram undan.”
Gísli Páll er enginn nýgræðingur þegar kemur að íþróttaiðkunum en hann æfði og spilaði körfu-
bolta með mörgum helstu liðum „Stór-Hveragerðissvæðisins“ eins og hann kallar það; Njarðvík, KR og
Íþróttafélagi stúdenta. Hann spilaði svo með liði Selfoss í körfu áður en hann lauk ferlinum á heimaslóð-
um með Hamri í Hveragerði. Gísli sagði reyndar ekki alveg skilið við körfuboltann því að loknum keppnis-
ferlinum tók við dómgæsla í tíu ár, þar af átta í úrvalsdeildinni. „Mér þótti mjög gaman að halda þannig
tengslum við íþróttina og meira að segja að fá smávegis útborgað fyrir að halda líkamanum við,” segir
Gísli.
Nú eru bæði flautan og skórnir komin á hilluna og Gísli hættur allri ástundun íþrótta.
„Áhugi minn beinist núna að hvers konar útivist og skotveiði. Eins á þátttaka í Hjálparsveit skáta í Hvera-
gerði hug minn allan, auk fjölskyldunnar og vinnu.”
Gísli Páll var formaður Íþróttafélagsins Hamars 1993–1994 og gjaldkeri körfuknattleiksdeildar félagsins
frá stofnun til 2002. Hann var kjörinn í stjórn Héraðssambandsins Skarphéðins 1995 og gegndi m.a.
embættum ritara og gjaldkera í þrjú ár. Gísli Páll var síðan kjörinn formaður HSK 2003 og gegndi því
embætti til 2010. Hann var formaður fjölda landsmóts- og unglingalandsmótsnefnda á því tímabili.
„Við í landsmótsnefndinni búumst við mikl-
um fjölda á mótið í sumar og þó auðvitað
væri skemmtilegast ef sem flestir gistu
í Hveragerði þessa helgi, svona upp á
stemmninguna, þá er auðveldlega hægt að
keyra austur fyrir fjall frá höfuðborgarsvæð-
inu til að taka þátt eða fylgjast með.”
LANDSMÓT UMFÍ 50+
HVERAGERÐI