Skinfaxi - 01.02.2017, Page 18
18 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Bæjarstjórinn Aldís Hafsteinsdóttir segir
Hvergerðinga hlakka mikið til Landsmóts
UMFÍ 50+. Hún gerir ráð fyrir miklum mann-
fjölda í bænum enda margt á boðstólum
fyrir iðkendur jafnt sem áhorfendur.
„Við hér í Hveragerði erum afskaplega ánægð
með að Ungmennafélag Íslands skuli hafa
ákveðið að halda mótið hér enda aðstaða til
íþróttaiðkana í bænum til mikillar fyrirmynd-
ar. Hér er tiltölulega nýbúið að reisa fimm-
þúsund fermetra loftborið íþróttahús sem er
einstakt á landsvísu og gefur tækifæri til
alls konar íþróttaiðkana, sama hvernig viðrar.
Svo eru hér aðrir góðir íþróttavellir og -hús.
Við erum líka eitt fárra sveitarfélaga á landinu
sem getur boðið upp á þrjár sundlaugar inn-
an bæjarmarka. Það eru forréttindi sem við
njótum,“ segir Aldís.
Helsta sundlaugin í Hveragerði er þó tví-
mælalaust sundlaugin í Laugaskarði. Hún
skartar ekki aðeins einu fegursta laugarstæði
landsins heldur er hún líka vel varin fyrir norð-
angarranum sem svo oft læðist að fáklædd-
um sundlaugargestum. Skjólið skilar því að
oft verður til hitapottur í lauginni sem sund-
laugargestir fá notið.
Vinsælasta gönguleið landsins í Hveragerði
Gönguleiðirnar í kring um bæinn eru margar
og sumar með þeim allra vinsælustu á land-
inu meðal ferðamanna, að sögn Aldísar. „Í
Reykjadal er til dæmis ein fjölfarnasta göngu-
leið á Íslandi, sex kílómetrar fram og til baka
og um hana er gríðarleg umferð af fólki,”
segir Aldís. „Flestir ættu að geta komist inn
í Reykjadalinn. Hann er nokkurra kílómetra
langur og þangað treysta sér ekki allir til að
byrja með. Upphaf leiðarinnar er í sæmilegri
brekku svo að hún er vissulega ekki fyrir alla.
En þeim sem leggja ekki í brattann bjóðum
við fjölbreyttar gönguleiðir hérna í náttúr-
unni í kring,” segir hún.
Það er því enginn skortur á möguleikum
til íþrótta og útivistar fyrir þá sem sækja mót-
ið þetta árið. Golfvöllurinn er skemmtilegur
níu holu völlur og ólíkur öllum öðrum á
Íslandi, þar sem hann stendur í góðu skjóli
í dalverpi. Hann er byggður á hverasvæði,
náttúrulegu snjóbræðslukerfi, svo að flatirn-
ar eru mýkri en þekkist annars staðar hér á
landi. Þá eru ótalin hestamennskan, fjalla-
hjólreiðarnar sem og hlaupin upp fjölda nátt-
úrustíga og -slóða. Gróðurhúsin eru full af
blómum, berjum og grænmeti, svo að fátt
eitt sé talið.
Hveragerði í örum vexti
Engin furða er að Hveragerði skuli vera ört
stækkandi bæjarfélag sem telur í dag um
2.500 manns.
„Við finnum fyrir miklum meðbyr hérna í
Hveragerði og auðvitað hjálpar skorturinn
á húsnæði í Reykjavík,” segir Aldís. „Fólk er
einnig að átta sig á því að ferðin til Reykja-
víkur tekur ekki nema hálftíma. Það er því
vel hægt að búa í Hveragerði án þess að
missa af neinu í höfuðborginni og njóta allra
kostanna við að búa í smábæ úti á landi. Njóta
nálægðarinnar við náttúruna og þorps-
stemmningar, sem mörgum finnst heillandi,
en vera þó nánast í úthverfi frá Reykjavík.
Það er hægt að sækja allt frá Hveragerði, svo
sem listsýningar, bíó og margt fleira. Vega-
samgöngurnar eru líka alltaf að batna og enn
meiri vegabætur fyrirhugaðar. Akstursstefn-
ur eru að stærstu leyti aðskildar alla leiðina
til borgarinnar. Strætó er með tólf til fjórtán
Reykjavíkurferðir á dag, beinustu leið í Mjódd-
ina, þar sem farþegarnir fá skiptimiða hvort
sem förinni er heitið í vinnu eða skóla,“ segir
Aldís ennfremur.
ALLT Í BLÓMA OG
SÓMA Í HVERAGERÐI
Flestir, sem hafa aldur til að keppa á Landsmóti UMFÍ 50+,
hljóta að muna eftir og hafa þekkt Eden í Hveragerði. Margir
fóru þangað að borða ís við frumskógaraðstæður og kíkja á
apann sem þar bjó. En Eden er löngu horfið og í staðinn eru
komnir nýir veitingastaðir og nú síðast míkróbrugghús inni á
þeim nýjasta. Innviðir Hveragerðis styrkjast því í takt við hið
ört vaxandi sveitarfélag sem mun vafalaust skarta sínum feg-
urstu blómum þegar heilu hersingarnar af rúmlega hálfrar
aldar gömlum íþróttagörpum etja þar kappi hverjir við aðra.
LANDSMÓT UMFÍ 50+
HVERAGERÐI