Skinfaxi - 01.02.2017, Síða 20
20 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
H
vergerðingurinn Valdimar Haf-
steinsson hefur, að eigin sögn,
flottasta útsýnið í bænum fyrir
augunum allan daginn því að út
um skrifstofugluggann hans sést
allur fjallahringurinn umhverfis
Hveragerði. Fjöllin kringum bæ-
inn hafa togað í Valdimar frá því að hann
flutti í Hveragerði á fyrsta aldursári. Á milli
fjallaferða stýrir hann þekktasta vörumerki
Hveragerðis, fjölskyldufyrirtækinu Kjörís.
Valdimar er framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Valdimar er fyrrum fótboltamaður en færði
sig yfir í blakið eftir að hann kynntist íþrótt-
inni í Menntaskólanum á Akureyri, gegnum
tilvonandi eiginkonu sína. Í ár keppti Valdi-
mar í tuttugasta sinn á Öldungnum, árlegu
ÞÁTTTAKENDUR Á LANDSMÓT UMFÍ 50+
VALDIMAR HAFSTEINSSON:
FRÁ STRÖND
TIL FJALLA
öldungamóti í blaki. Hann er þó enginn öld-
ungur núna og var það svo sannarlega ekki
fyrir tuttugu árum þegar hann tók fyrst þátt.
„Ég hætti ekki að mæta fyrr en við feðg-
arnir spilum saman,” segir Valdimar kíminn
en synir hans tveir, sem báðir eru landsliðs-
menn í blaki og spila utan landsteinanna,
einir Íslendinga, verða gjaldgengir eftir tvö ár.
Valdimar er nokkuð vel á sig kominn, að
eigin sögn, enda er hann einnig úrvals fjalla-
hlaupari og hefur hlaupið Laugaveginn þrisv-
ar auk annarra styttri hlaupa. Hveragerði
hlýtur enda að teljast með betur staðsettum
bæjarfélögum til að stunda utanvegahlaup.
Valdimar tekur því þátt í tveimur greinum á
Landsmótinu því að auk strandblakskeppn-
innar, sem er nýjung í ár, fer einnig fram
Heimamaðurinn og framkvæmdastjóri Kjöríss ætlar að taka
þátt í fjallahlaupum og strandblaki á Landsmóti UMFÍ 50+.
fjallahlaupskeppni. Það er þrettán kílómetra
langt hlaup sem fer fram í hlíðunum og fjöll-
unum fyrir ofan Hveragerði, þeim sömu og
Valdimar horfir á út um skrifstofugluggann á
hverjum degi.
Áður en að Landsmótinu kom var Valdimar
þó liðsstjóri með sonum sínum og öllum
hinum í landsliði Íslands í blaki í undanriðli
heimsmeistaramótsins í Lyon í Frakklandi, eftir
að liðið komst upp úr smáþjóðariðli á síðasta
ári. Smáþjóðaleikarnir tóku svo við, þar sem
Valdimar varð að styðja liðið áður en alvaran
tekur við á Landsmóti UMFÍ 50+.
Árvirkinn, Selfossi
Baldvin og Þorvaldur, Selfossi
Bílaverkstæðið Klettur, Selfossi
Bíliðjan ehf., Þorlákshöfn
Bókakaffið, Selfossi
Eðalmálun ehf., Selfossi
Efnalaug Suðurlands, Selfossi
Fossvélar ehf., Selfossi
Frostfiskur ehf., Þorlákshöfn
Gesthús, Selfossi
Grís og Flex ehf./Korngrís, Laxárdal
Hafnarnes Ver hf., Þorlákshöfn
Hamarshöllin, Hveragerði
Hjá Maddý ehf., Selfossi
Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands
Hverablóm, Hveragerði
Járnkarlinn ehf., Þorlákshöfn
Eftirtaldir aðilar gefa verðlaun á
Landsmóti UMFÍ 50+ í HveragerðiKambabrún ehf., Hveragerði
Kompan klippistofa ehf., Þorlákshöfn
Listasafn Árnesinga, Hveragerði
Litla brauðstofan slf., Hveragerði
Loki lagnaþjónusta ehf., Hveragerði
Múrþjónusta Helga Þorsteinssonar hf.
Pasta og panini ehf., Hveragerði
Raftaug hf., Hveragerði
Rakarastofa Björns og Kjartans, Selfossi
Rammi, Þorlákshöfn
Skálinn í Þorlákshöfn
Sumarhúsið og garðurinn
TM, Selfossi
Trésmiðjan Fagus, Þorlákshöfn
Trésmíðar Sæmundar ehf., Þorlákshöfn
Upplýsingamiðstöð Suðurlands,
Hveragerði
Óskum keppendum á Landsmóti UMFÍ 50+ góðs gengis:
LANDSMÓT UMFÍ 50+
HVERAGERÐI
Dýraríkið, Reykjavík
Flúðasveppir, Flúðum
Fossdekk, Selfossi
Fóðurblandan, Selfossi,
Hellu og Hvolsvelli
Gesthús, Selfossi
Hendur í höfn,
Þorlákshöfn
Hjá Maddý ehf., Selfossi
Hot Springs Hostel,
Hveragerði
Jáverk hf., Selfossi
Jötunn hf., Selfossi
Karl úrsmiður ehf.,
Selfossi
KPMG hf.
Kynnisferðir
– Reykjavík Excursions
Lindin Tískuverslun,
Selfossi
Pylsuvagninn, Selfossi
SB skiltagerð,
Þorlákshöfn
Toyota, Selfossi
Átt þú eftir að smakka nýja Síríus rjómasúkkulaðið
með saltlakkrísflögum og sjávarsalti? Þá átt þú einstaklega gott í vændum.
Síríus rjómasúkkulaði. Svo gott.