Skinfaxi - 01.02.2017, Blaðsíða 22
22 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
A
ð mörgu er að huga þegar stór-
viðburður er haldinn í litlu bæjar-
félagi. Vonir eru bundnar við að
allt að 600 þátttakendur mæti til
leiks á Landsmóti UMFÍ 50+ í
Hveragerði síðustu helgina í júní.
Guðríður Aadnegard er formaður Héraðssam-
bandsins Skarphéðins sem sér um undirbún-
ing mótsins. HSK er annar stærsti sambands-
aðili UMFÍ en 50 félög eru undir hatti HSK.
Mikið er um að vera hjá HSK um þessar mundir.
„Mótið er svo miklu meira en bara keppni.
Það er líka heilsusamleg afþreying. Þarna er
keppt í um tuttugu greinum svo að allir ættu
að finna eitthvað við sitt hæfi,” segir Guðríður.
Á meðal greina á mótinu er pönnuköku-
bakstur, gamalgróin keppnisgrein, og núna
bætist crossfit-ið við svo að dæmi séu tekin
af ólíkum greinum á mótinu þetta árið. Íslend-
ingar hafa orðið ríkulega varir við crossfit-
æðið sem hefur gengið yfir landið síðustu
misserin. Hvergerðingar hafa fengið sinn
hluta af því enda koma margir af hörðustu
crossfit-urum landsins úr Hveragerði, leiddir
af Íslands- og Evrópumeistaranum Björgvin
Karli Guðmundssyni úr crossfit-stöðinni Hengli.
„Crossfit sem keppnisgrein á Landsmótinu
er liður í því að höfða til yngri hópsins yfir
fimmtugu. Þetta er samt ekki eina nýjungin
þetta árið heldur verður bæði boðið upp
fugla- og jurtagreiningu,” segir Guðríður.
Eins og flestir þekkja er Garðyrkjuskóli
ríkisins í Hveragerði og þar er lögð stund á
hinar ýmsu fræðigreinar. Það er því eins gott
að dusta rykið af skruddunum því að innan
Garðyrkjuskólans leynast margar framandi
jurtategundir. Frægastar þeirra eru auðvitað
bananaplönturnar sem þar eru ræktaðar.
Góður staður fyrir hlaupin
Guðríður segir íþróttaaðstöðuna í Hveragerði
til mikillar fyrirmyndar og nefnir þar fótbolta-
húsið uppblásna og sundlaugarnar en segir
þó að fyrir frjálsar íþróttir, eins og 800 metra
hlaup, þurfi að finna góðan stað þar sem eng-
ar séu hlaupabrautirnar í bænum. Ekki þurfi
þó að örvænta þar sem hún og hinir keppnis-
stjórarnir muni finna lausnir á öllum vanda-
málum sem upp komi, í samráði við sér-
greinarstjórana á mótinu.
Landsmót UMFÍ 50+ er þó ekki eina
hugðarefni Guðríðar um þessar mundir.
Unglingalandsmót UMFÍ mun einnig fara
fram í heimasvæði HSK áður en langt um
líður, nefnilega í Þorlákshöfn, en þó ekki fyrr
en á næsta ári.
GUÐRÍÐUR AADNEGARD, FORMAÐUR HSK:
MIKLU MEIRA EN KEPPNI
Nóg er að gera hjá Guðríði
Aadnegard og félögum hennar
i HSK um þessar mundir.
Landsmót UMFÍ 50+ verður
sett föstudagskvöldið 23. júní.
Fjörið hefst strax á eftir með keppni í
línudansi. Eitt það besta við Landsmót
UMFÍ 50+ er að keppendur greiða eitt
gjald og mega svo taka þátt í eins mörg-
um keppnisgreinum og þeir treysta sér
til. Eftir línudansinn á föstudagskvöldið
er því kúrekastígvélunum skipt út
fyrir íþróttaskóna, nú eða þau notuð í
stígvélakastinu á sunnudeginum.
LANDSMÓT UMFÍ 50+
HVERAGERÐI