Skinfaxi - 01.02.2017, Blaðsíða 24
24 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
LANDSMÓT UMFÍ 50+
HVERAGERÐI
Ófeigur Ágúst Leifsson er ungmenna-
félagi uppalinn á Skeiðunum. Hann vill
sjá fleiri tendrast af ungmennafélags-
andanum.
Boccía hefur frá upphafi verið langvinsæl-
asta greinin á Landsmóti UMFÍ 50+. Sérgrein-
arstjórinn í ár er kjötiðnaðarmaðurinn Ófeig-
ur Á. Leifsson, matráður hjá Sláturfélagi Suð-
urlands. Ófeigur er fæddur og uppalinn á
Skeiðunum og einn þeirra sem ólst upp með
ungmennafélagsandann í hjarta. Ófeigur
hefur haldið loganum lifandi alla tíð.
En hvaða þýðingu hefur Ungmennafélag
Íslands fyrir Ófeig?
„Ungmennafélögin hafa lengi verið lífsnauð-
synleg í sveitum og dreifðari byggðum lands-
ins. Allir hafa verið tilbúnir til að leggja sitt af
mörkum í nafni félagsins, mæta á mót, sitja í
nefndum og vinna fyrir það. Ungmennafélög-
in á hverjum stað hafa verið driffjöður í list-
um og menningu og ungmennafélagsand-
inn felur það í sér að allir hjálpast að því að
komast að settu marki,“ segir Ófeigur.
Ófeigur hefur unnið mikið fyrir UMFÍ og
HSK. „Ég var formaður Ungmennafélags
Skeiðamanna í nokkur ár og sat þar í ýmsum
nefndum. Síðan stofnaði ég formlega tae-
kwondodeildina á Selfossi og börnin mín
æfðu þar. Ég var formaður deildarinnar, sat í
stjórn Skotíþróttafélags Suðurlands og mörg-
SÉRGREINARSTJÓRAR Í HVERAGERÐI:
ALLIR TILBÚNIR TIL AÐ
LEGGJA SITT AF MÖRKUM
um fleirum,“ segir hann. Ófeigur var sérgrein-
arstjóri á Landsmótinu sem haldið var á Sel-
fossi 2013 og eru auk þess þjálfari í boccía
hjá Íþróttafélagi fatlaðra. Þá sér hann um
Ungmennafélagið Suðra ásamt konu sinni.
Ófeigur er ánægður með það hversu sterkur
ungmennafélagsandinn er á HSK-svæðinu.
Þar stekkur fólk til og leggur hönd á plóg
þegar þarf. Árangurinn af því sé sá að HSK
hafi gengið vel að halda stórmót á borð við
Unglingalandsmótin í Þorlákshöfn 2006 og á
Selfossi 2012 og Landsmótið á Selfossi 2013.
Fram undan eru Landsmót UMFÍ 50+ í Hvera-
gerði og Unglingalandsmót í Þorlákshöfn á
næsta ári.
„Það hefur ekki verið neitt vandamál að
manna mótin,“ segir hann en telur að það
geti samt breyst því að dregið hafi úr vilja
Ófeigur Á. Leifsson, sérgreinarstjóri í
boccía.
Þórhallur Einisson er sérgreinarstjóri
í badminton á Landsmóti UMFÍ 50+ í
Hveragerði. Hann byrjaði að æfa 23 ára
gamall og er nú formaður badminton-
deildar Hamars í Hveragerði.
„Ég byrjaði að æfa badminton þegar ég
kynntist konunni minni. Hún skoraði á mig í
badminton á fyrsta stefnumótinu okkar og
vann mig 15-0, 15-1. Hún gaf mér örugglega
eitt stig af meðaumkun,“ segir Þórhallur.
Hann byrjaði að æfa badminton af krafti upp
úr þessu hjá Tennis- og badmintonfélagi
Reykjavíkur. Árið var 1996 og Þórhallur 23
FÉLL FYRIR KONUNNI OG BADMINTON
Á FYRSTA STEFNUMÓTINU
ára. Þórhallur er nú búsettur í Hveragerði og
43 ára (verður 44 ára 19. júní).
En hvaða merkingu hefur UMFÍ fyrir þig?
„Það er öflug landsmót og ræktun mannlífs,
lands og þjóðar,“ svarar Þórhallur.
Grein: Badminton / Hamarshöllin
Sérgreinarstjóri: Þórhallur Einisson
Grein: Bridds / Grunnskólinn
Nafn: Garðar Garðarsson
Grein: Þrekkeppni (Crossfit) /Crossfit
Hengill – íþróttahúsinu
Nafn: María Rún Þorsteinsdóttir
Grein: Frjálsar íþróttir / Hamarsvöllur
Nafn: Benóný Jónsson
Grein: Fuglagreining / Grunnskólinn
Nafn: Guðmundur Jónasson
AÐRAR GREINAR OG SÉRGREINARSTJÓRAR:
Grein: Golf / Golfvöllurinn
Nafn: Sigurður Dagbjartsson /
Einar Lyng
Grein: Jurtagreining / Garðyrkjuskóli
Nafn: Úlfur Óskarsson
Grein: Línudans / Íþróttahúsið
Nafn: Anna Guðríður Gunnarsdóttir
Grein: Pútt / Golfvöllurinn
Nafn: Sigurður Dagbjartss./Einar Lyng
Grein: Pönnukökubakstur /
Grunnskólinn
Nafn: Fanney Ólafsdóttir
Grein: Ringó / Íþróttahúsið
Nafn: Anný Ingimarsdóttir
Grein: Skák / Grunnskólinn
Nafn: Guðmundur Jónasson
Grein: Stígvélakast / Lystigarðurinn
Nafn: Gísli Páll Pálsson
Grein: Strandblak / Strandblakvöllur
Nafn: Ragnheiður Eiríksdóttir / Ásdís
Linda Sverrisdóttir
Grein: Sund / Sundlaugin
Nafn: Svanur Ingvarsson
Grein: Þríþraut / Hefst við Sundlaug
Nafn: Magnús Tryggvason / Pétur
Frantzson
Grein: Utanvegahlaup / Hefst í
Lystigarðinum
Nafn: Pétur Frantzson
Þórhallur er hér lengst til vinstri þegar
hann vann síðast til verðlauna í tvenndar-
leik með konu sinni, Hrund Guðmunds-
dóttur.
fólks til að sinna sjálfboðaliðastarfi í sinni
heimasveit. „Það eru samt sem betur fer enn
til gamlir hugsuðir eins og ég sem förum í
þessi störf,“ segir hann og hvetur til þess að
fólk taki að sér að vinna fyrir ungmennafélög-
in í heimabyggð svo að einhver taki við
kyndlinum þegar þeir eldri stíga til hliðar.
Grein: Boccía / Hamarshöllin
Sérgreinarstjóri: Ófeigur Á. Leifsson