Skinfaxi - 01.02.2017, Blaðsíða 29
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 29
„Þetta var algjört ævintýri og gaman að vera
með því þetta var í okkar heimabæ og við
komin yfir fimmtugt,“ segir bókasafnsfræð-
ingurinn Rannveig Halldórsdóttir. Hún og
maður hennar, Kristbjörn R. Sigurjónsson,
tóku þátt af krafti á Landsmóti UMFÍ 50+ á
Ísafirði í fyrra. Þar kepptu þau í sundi, frjáls-
um og voru tvö af fjórum þátttakendum í
þríþraut. Kristbjörn varð fyrstur í þríþrautinni
og komst á pall í stígvélakasti.
Þau Rannveig og Kristbjörn eru engir ný-
liðar í íþróttum, þvert á móti hreyfa þau sig
mikið og hafa keppt í hlaupum í 15–20 ár.
LANDFORM
e
h
f
tel. 482 4090 - fax. 482 3542 - landform@landform.is
A u s t u r v e g u r 6 - 8 0 0 - S e l f o s s
L A N D S L A G S A R K I T E K T A R F Í L A
RANNVEIG HALLDÓRSDÓTTIR:
GAMAN AÐ TAKA
ÞÁTT Í HEIMABÆNUM
Kristbjörn á sigurpalli.
Rannveig hefur auk þess keppt einu sinni í
Járnkarli og Kristbjörn tvisvar. Þetta var í
fyrsta sinn sem þau tóku þátt í Landsmóti
UMFÍ 50+.
Rannveig segir að þeir sem hreyfi sig reglu-
lega þurfi ekki að undirbúa sig mikið fyrir
keppni UMFÍ og nefnir sem dæmi að vega-
lengdir í hlaupum og hjólagreinum séu í
styttri kantinum. „Mér fannst virkilega
skemmtilegt að taka þátt í mótinu,“ segir
Rannveig og mælir með því fyrir alla yfir
fimmtugu sem hafa gaman af því að hreyfa
sig.
Rannveig rennir í
hlað á hjólinu áður
en hún skellti sér í
síðustu fimm kílómetrana
í þríþrautinni á Ísafirði.
Óskum keppendum á Landsmóti UMFÍ 50+ góðs gengis: