Skinfaxi - 01.02.2017, Qupperneq 32
32 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
K
olbrún Lára Kjartansdóttir stýrði einni málstofu af tveim-
ur í umræðupartýi og árlegum vorfundi UMFÍ. Hún segir
fólk geta fundið sér ýmislegt annað að gera innan ung-
mennafélagshreyfingarinnar en að stunda íþróttir.
„Það skiptir máli að góður andi sé í ungmennafélögum
og að samskipti séu góð á milli iðkenda og stjórnenda
félaga. Iðkendur eiga aldrei að óttast það að tala við stjórnendur
um breytingar og tjá þeim skoðanir sínar,“ segir Kolbrún Lára
Kjartansdóttir.
Kolbrún Lára situr í ungmennaráði UMFÍ og stýrði málstofum
í Umræðupartýi UMFÍ á Hvolsvelli í maí ásamt Elísabetu Ásdísi
Kristjánsdóttur.
Málstofan, sem Kolbrún stýrði, fjallaði um þátttöku ungs fólks í
ungmennafélagshreyfingunni og möguleikana sem félagsmenn
hafa til þess að vera virkir þótt þeir hafi ekki áhuga á því að keppa í
íþróttum.
Í málstofunni deildu fundargestir sögum af reynslu sinni enda
hafa ekki allir keppt í íþróttum, sem eru innan ungmennafélags-
hreyfingarinnar. „Það eru ýmsar ástæður fyrir því að ungt
fólk hættir félagsstörfum og íþróttum. En
við í UMFÍ viljum hvetja fólk til þess að halda
áfram. Fólk getur byggt á reynslu sinni í ung-
mennafélögum, verið dómarar, farið á nám-
skeið í þjálfun, tekið sæti í nefndum og
ýmislegt fleira,“ segir Kolbrún. Hún bendir á
að umræðupartýið hafi staðið undir vænt-
ingum hennar. „Væntingar mínar til umræðu-
partýsins voru þær að þátttakendur gætu rætt
málefnin sem voru til umræðu og að eldri þátt-
takendur (30+) myndu hlusta á það sem yngri
þátttakendur hefðu að segja. Þetta tókst fullkomlega.“
ENGINN Á AÐ VERA HRÆDDUR
VIÐ AÐ TJÁ SIG
Gufubakaður skur með kúrbítsteningum,
rauðlauk og chili, kórónaður með
kókós-límónu jógúrtsósu, er tilvalinn fyrir
ölskylduna eftir hátíðarmatinn.
Mikið úrval heilsuuppskrifta er að nna á
gottimatinn.is. Uppskriftavefurinn er jafn
aðgengilegur í tölvunni, spjaldtölvunni og
snjallsímanum.
Hollustan hefst á gottimatinn.is
ferskur
fiskréttur
Hvað eru mörg
umræðupartý eftir?
Stefnt er að því að halda umræðu-
partý UMFÍ tvisvar á ári yfir tveggja ára
tímabil. Partýin eru ætluð ungu fólki á
aldrinum 15–25 ára og stjórnendum
íþrótta- og ungmennafélaga.
Í umræðupartýum gefst ungu fólki
tækifæri til þess að koma skoðunum
sínum á framfæri og þeim sem eldri
eru að heyra hvað ungt fólk hefur að
segja og vinna að því að koma til móts
við þarfir þess með einum eða öðrum
hætti.
Elísabet Ásdís
Kristjánsdóttir
og Kolbrún
Lilja Kjartans-
dóttir.
Kolbrún Lilja ásamt Jóni
Halldórssyni fyrirlesara.