Skinfaxi - 01.02.2017, Síða 38
38 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
525-7700 | flytjandi.is
ÞARFTU AÐ LÁTA FLYTJA EITTHVAÐ?
Eimskip Flytjandi býður upp á daglegar ferðir til allra landshluta árið um kring. Við leggjum áherslu á að koma sendingu
þinni örugglega til skila á sem skemmstum tíma, hvort sem um er að ræða lítinn pakka eða stóra vörusendingu.
Hafðu samband við starfsfólk Flytjanda í síma 525-7700 og fáðu tilboð.
Mikilvægt er fyrir öll þau sem starfa með
börnum og ungmennum að vera meðvit-
uð um skyldur sínar og ábyrgð, hvað má
og hvað má ekki.
UMFÍ hefur frá árinu 2010 verið aðili að Æsku-
lýðsvettvanginum (ÆV). Hann stendur m.a.
fyrir fræðslu og námskeiðum fyrir þá sem
starfa með börnum og ungmennum hjá
íþrótta- og æskulýðsfélögum. Mikilvægt er
að allir starfsmenn og sjálfboðaliðar innan
aðildarfélaga ÆV kynni sér Æskulýðslög.
Sambandsaðilar UMFÍ geta leitað til UMFÍ og
Æskulýðsvettvangsins varðandi upplýsingar
og aðstoð í þessum málum.
• Innan Æskulýðsvettvangsins eru í gildi siða-
reglur sem gilda fyrir allt starfsfólk og sjálf-
boðaliða sem starfa innan Æskulýðsvettvang-
ins. Hér eru nokkur atriði úr siðareglum fyrir
fólk sem vinnur með börnum og ungmenn-
um: Ávallt skal leita eftir samþykki þeirra sem
hyggjast hefja störf fyrir leyfi fyrir öflun upp-
lýsinga úr sakaskrá.
• Starfsfólk og sjálfboðaliðar eru fyrirmyndir
þátttakenda í starfi og ber að sýna góða hegð-
un og gott fordæmi jafnt í starfi sem og utan
þess.
• Öll neysla tóbaks, áfengis eða annarra
vímuefna er óheimil í starfi með börnum og
unglingum.
• Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu sinna
þátttakendum af alúð í starfi en halda sig í
faglegri fjarlægð utan viðburða og forðast
náið samband við þá.
• Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu aldrei
hafa frumkvæði að samskiptum við þátttak-
endur nema slíkt sé í tengslum við þátttöku
barns og unglings.
• Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu aldrei
stofna til óviðeigandi sambands við börn og
ungmenni sem eru þátttakendur í starfi.
• Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu forðast þá
aðstöðu að vera ein með þátttakanda í starfi.
• Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu ekki mis-
nota stöðu sína á neinn hátt, svo sem líkam-
lega, andlega eða kynferðislega þegar kemur
að samskiptum við þátttakendur eða annað
starfsfólk og sjálfboðaliða.
• Ávallt skal sýna fyllstu aðgát og varkárni
í starfi og koma í veg fyrir að börn lendi í
aðstæðum sem þau ráða ekki við. Þetta á
bæði við um börn og sjálfboðaliða sem ekki
hafa náð 18 ára aldri.
• Varast skal hvers konar snertingu sem
gæti leitt til misskilnings í samskiptum við
börn, unglinga og samstarfsfólk.
• Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu huga að
ábyrgum rafrænum samskiptum og netnotk-
un við þátttakendur. Forðast skal að eiga
samskipti í gegnum síma og samskiptasíður
á internetinu nema í tengslum við þátttöku
barna í viðburðum.
• Koma skal fram af heiðarleika og virðingu
gagnvart öllum þeim sem starfað er með eða
fyrir, auk þess sem engum skal mismunað
með orðum eða hegðun á grundvelli þjóð-
ernis, uppruna, kynþáttar, litarháttar, kyns,
aldurs, trúarbragða, skoðana, kynhneigðar,
fötlunar, efnahags, ætternis eða stöðu að
öðru leyti.
• Einelti skal aldrei liðið.
HVAÐ MÁ OG
HVAÐ MÁ EKKI?