Skinfaxi - 01.02.2017, Blaðsíða 41
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 41
Þ að getur verið erfitt að sinna félögum á stóru svæði þegar
framkvæmdastjóri er í hálfu starfi. Anita Karin Guttesen, for-
maður HSÞ, segir erfitt að fá fólk í sjálfboðaliðastörf fyrir hreyf-
inguna. Hún mælir með því að UMFÍ og ÍSÍ sameinist um að styðja
við starf félaga á landsbyggðinni í meiri mæli en áður.
„Við sameinuðum tvö héraðssambönd um árið á svæði sem
íbúar eldast á og ungu fólki fækkar. Jákvæðni og velvilji ná bara
ákveðið langt, eins og nesti sem klárast í miðri fjallgöngu,“ segir
Anita Karin Guttesen, formaður Héraðssambands Þingeyinga (HSÞ).
Svæðið nær frá Grenivík til Þórshafnar og aðildarfélögin eru 29.
HVAÐ
ER AÐ
FRÉTTA?
Erfitt að sinna
stóru svæði
Anita segir erfitt að fá sjálfboðaliða í starf
sambandsins og leggi þeir sem sinni starfinu
mikið á sig svo það gangi upp.
„Sjálfboðaliðavinnan á undir högg að
sækja hér eins og annars staðar. Við sitjum
í raun uppi með ofvaxið vandamál vegna
vegalengda milli svæða. Frjálsíþróttaráðið
okkar hefur verið í fullu starfi við að halda
starfinu á lífi í sjálfboðaliðavinnu. Það varð
erfitt eftir að svæðið var stækkað. Starfið
hefur hvílt á gömlum og góðum félögum
sem hafa auðvitað smám saman horfið úr
starfinu og við reynum að fá nýja inn. En þar
sem fólk þekkist ekki og verkefni nefnda
verða erfiðari kemur fólk varfærið inn. Það
vill ekki leiða eitthvað sem það þekkir ekki.“
Framkvæmdastjóri HSÞ er í 50% starfi.
Anita segir það of lágt starfshlutfall fyrir svo
stórt starfssvæði.
„Starfið er um margt ósýnilegt en við get-
um ekki ráðið starfsmann í fullt starf. UMFÍ
og ÍSÍ þurfa að koma okkur til hjálpar, með
fjárhagsstuðningi og aðstoð við að einfalda
verkefni okkar þannig að þau verði raunhæf
og skili því sem til er ætlast. Það sem okkur
vantar er kútar ef við eigum ekki að drukkna,“
segir Anita.
Hildur Bergsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri UÍA, sagði
í síðasta tölublaði Skinfaxa það hafa skipt sköpum fyrir
félagið þegar framkvæmdastjóri var ráðinn í fullt starf. Áður
en hún kom til starfa hjá UÍA var búið að fá sveitarfélögin
átta á Austurlandi til að styðja fjárhagslega við héraðssam-
bandið og styrkja uppbyggingu þess.
„Þetta skipti allt gríðarlegu máli. Starfsmaður í fullu starfi er
mjög dýrmætur fyrir héraðssamband. Ég gæti aldrei gert allt
sem ég geri hjá UÍA í hlutastarfi á milli annarra starfa. Mörg
sambönd hafa einfaldlega ekki bolmagn til annars en að
ráða starfsmann í örlítið hlutastarf sem getur mætt á þing,
svarað tölvupósti og sinnt litlum verkefnum. Starfsmaður í
fullu starfi getur áorkað svo miklu meiru,“ sagði hún.
Anita Karin Guttesen,
formaður HSÞ.