Skinfaxi - 01.02.2017, Side 42
42 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Blönduós
Stéttarfélagið Samstaða, Þverbraut 1
Skagaströnd
Sveitafélagið Skagaströnd, Túnbraut 1–3
Sauðárkrókur
K-Tak ehf., Borgartúni 1
Varmahlíð
Ferðaþjónustan Bakkaflöt, Bakkaflöt
Siglufjörður
Fjallabyggð – Íþróttamiðstöð
Fjallabyggðar, Gránugötu 24
Akureyri
Raftákn ehf., Glerárgötu 34
Samvirkni ehf., Hafnarstræti 97
Baugsbót ehf., Frostagötu 1b
Grenivík
Brattás ehf., Ægissíðu 11
Húsavík
Jarðverk ehf., Birkimel
Egilsstaðir
Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf.,
Einhleypingi 1
Klassík ehf., Selási 1
Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf.,
Miðvangi 2–4
Skrifstofuþjónusta Austurlands ehf.,
Fagradalsbraut 11
Héraðsprent ehf., Miðvangi 1
Farfuglaheimilið Húsey, Húsey
Seyðisfjörður
Seyðisfjarðarkaupstaður, Hafnargötu 44
Reyðarfjörður
Stjórnendafélag Austurlands,
Austurvegi 20
Neskaupstaður
Síldarvinnslan hf., Hafnarbraut 6
Höfn í Hornafirði
Sveitarfélagið Hornafjörður,
Hafnarbraut 27
Skinney-Þinganes hf., Krossey
Selfoss
Vélaverkstæði Þóris ehf., Austurvegi 69
Árvirkinn ehf., Eyrarvegi 32
Flóahreppur, Þingborg
Hveragerði
Hveragerðiskirkja, Hverahlíð
Laugarvatni
Menntaskólinn að Laugarvatni
Hvolsvöllur
Krappi ehf., Ormsvelli 5
Kirkjubæjarklaustur
Geirland ehf., Geirlandi
Kirkjubæjarstofa, Klausturvegi 2
Undirbúningur fyrir Unglingalandsmót
UMFÍ, sem haldið verður í Þorlákshöfn
verslunarmannahelgina 2018, er í góðum
farvegi. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið því
að tilkynnt var haustið 2015 að mótið yrði
haldið þar þremur árum síðar. Mótshaldari er
Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK).
Þetta verður 21. Unglingalandsmót UMFÍ.
Fyrsta mótið var haldið á Dalvík árið 1992.
Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri
Ölfuss, segir HSK byggja á mikilli reynslu á
mótahaldi í gegnum tíðina. Unglingalands-
mót UMFÍ var haldið í Þorlákshöfn um versl-
unarmannahelgina 2008 og Landsmót UMFÍ
á Selfossi sumarið 2013. HSK er jafnframt
mótshaldari Landsmóts UMFÍ 50+ í Hverag-
erði 2017.
Gunnsteinn undirritaði samning um
mótið ásamt Hauki Valtýssyni, formanni
UMFÍ, og Guðríði Aadnegard, formanni HSK,
í Þorlákshöfn í lok maí sl.
„Aðstaðan í Þorlákshöfn er mjög góð.
En við höfum líka bætt hana talsvert. Í fyrra
stækkuðum við knattspyrnusvæðið verulega
og bættum tjaldsvæðið í bænum til að
uppfylla væntingar og þarfir gesta. Næst er
það strandblakvöllurinn,“ segir Gunnsteinn.
Unglingalandsmótum UMFÍ fylgir aragrúi
keppenda og gesta. Reikna má með um
2.000 keppendum og jafnvel 10.000 manns
þegar allt er talið, með systkinum, foreldrum
og öðru vandafólki.
Markaðssetja Ölfus
Bæjarstjórn Ölfuss hefur í aðdraganda Ungl-
ingalandsmóts UMFÍ ráðist í heilmikla mark-
aðssetningu á sveitarfélaginu til að fá fólk
til að flytja í bæinn. „Þetta helst allt í hendur.
Markmiðið hefur verið að halda þessu á lofti
fram að Unglingalandsmótinu og auglýsa
svæðið. Við erum að kynna svæðið til búsetu
og atvinnuuppbyggingar,“ segir Gunnsteinn
og tíundar þá fjölmörgu kosti sem fólki, sér-
staklega fjölskyldum, standa til boða í Ölfusi.
„Öll umgjörðin fyrir fjölskylduna er mjög
góð í Ölfusi. Hér er mjög afslappað andrúms-
loft. Við erum með mjög frambærilega íþrótta-
aðstöðu, mjög góða leik- og grunnskóla og
svo er stutt á höfuðborgarsvæðið og í annað
þéttbýli.“
Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir Þorlákshöfn frábæran kost fyrir fjölskyldufólk. Svæðið sé frábært fyrir
útivistarfólk og góð aðstaða til íþróttaiðkunar. Hér er hann ásamt Hauki Valtýssyni, formanni UMFÍ, og Guðríði Aadne-
gaard, formanni Héraðssambandsins Skarphéðins, þegar samningar um Unglingalandsmót UMFÍ, sem haldið verður í
Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina 2018, voru undirritaðir.
Undirbúningur fyrir Unglingalandsmót
í Þorlákshöfn 2018 kominn vel af stað