Skinfaxi - 01.02.2017, Side 43
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 43
Formaður Ungmennafélags Laugdæla
segir Facebook þægilegasta miðilinn til
að koma upplýsingum á framfæri við
félagsmenn. Google Drive er notað til að
vista gögn til langframa.
Misjafnt er hvaða miðla ungmennafélög nota
til að upplýsa félagsmenn. „Við nýtum þann
miðil sem er auðvelt að nota og nær til
flestra,“ segir Pétur Ingi Haraldsson, formað-
ur Ungmennafélags Laugdæla. Félagið notar
Facebook til að upplýsa iðkendur og forráða-
menn um viðburði, bæði á vegum félagsins
og hitt og þetta sem er í vændum. Fólk er
beðið um að skrá sig í kommentum við við-
eigandi færslu.
Facebook einfalt fyrir leikmenn
Pétur segir kostinn við Facebook þann að þar
sé skilaboðum komið til flestra á sem stystum
tíma. Ungmennafélagið hafi notað heimasíðu
til ársins 2013. Erfiðlega gekk að viðhalda
henni og var ákveðið árið 2013 að nota frek-
ar Facebook.
„Heimasíður geta verið dýrar í rekstri og
þegar vandamál koma upp þarf að fá ein-
hverja hjálp. Það þarf líka að finna einhvern
til að búa síðuna til, halda henni við og hún
kostar umstang,“ segir Pétur. Hann bendir
á að Facebook sé mun einfaldari fyrir leik-
menn í tæknimálum.
„Fólk man heldur ekki alltaf eftir því að
fara á heimasíður og lesa fréttir og tilkynn-
ingar. En það nota næstum allir Facebook.
Miðillinn er einfaldur fyrir leikmenn og svo
eru allir með Facebook-app í símunum sín-
um. Þar náum við til miklu fleiri,“ segir Pétur
og mælir með því.
Stjórn Ungmennafélags Laugdæla er með
aðgang að Facebook-síðu félagsins og getur
því takmarkað hvað hægt er að setja inn á
hana.
„Við notum hana fyrir allt sem tengist ung-
mennafélaginu,“ segir Pétur og bendir á að
inn á síðuna séu settar tilkynningar um alla
viðburði, tímasetningar æfinga og keppna
og myndir frá félaginu. Þegar farið er á stór-
mót eins og Gautaborgarleikana í fyrra eru
Næstum allir eru á Facebook. En
viljið þið vera á Facebook? Mikilvægt
er að ígrunda það vel og skipuleggja
starfið í kringum samfélagsmiðilinn
í stað þess að rjúka af stað. Það þarf
nefnilega að rækta garðinn sinn á
Facebook.
Hér eru nokkur ráð fyrir þá sem hafa
áhuga á því að búa til Facebook-síðu
fyrir félagið sitt.
• Hvað á að vera á síðunni?
Áður en rokið er til og búin til Face-
book-síða verður að skilgreina hvað
eigi að vera á henni. Betra er að hafa
tiltölulega fá efnisatriði en of mörg.
Ef þau eru of mörg er hætt við að
síðan verði flókin og að umfjöllunar-
efnið fari út um víðan völl. Takmark-
ið ykkur frekar við einföld atriði eins
og fréttir af viðburðum, tilkynningar
og tímasetningar æfinga.
• Hver er markhópurinn?
Mikilvægt er að vita fyrir hverja síð-
an er, t.d. iðkendur og foreldra
barna í félaginu.
• Hver á að sjá um Facebook-
síðuna?
Veljið 2–3 einstaklinga sem eru
tilbúnir til að taka að sér að sjá um
Facebook-síðu félagsins.
• Takið frá tíma einu sinni á dag
eða 1–2 á viku til að uppfæra Face-
book-síðuna, setja inn nýjar fréttir
og myndir úr starfi félagsins.
• Gerið áætlun um fjölda færslna
á Facebook-síðu félagsins yfir ákveð-
ið tímabil, mánuð eða ár. Það skerpir
viðhorfið til efnisins og gerir viðhald
síðunnar skilvirkara.
• Veltið ykkur ekki upp úr því
hversu margir hafa „like-að“ Face-
book-síðu félagsins. Það skiptir meira
máli að þeir sem hafa gagn af upp-
lýsingunum viti af henni.
• Reynið að hafa myndir
úr starfi félagsins með hverri færslu.
Myndir vekja meiri athygli en texti
án myndar. Góð mynd getur líka
sagt meira en þúsund orð.
• Umsjónaraðilar Facebook-
síðunnar þurfa að fylgjast með skila-
boðum og athugasemdum á síð-
unni. Besta ráðið er að svara alltaf
og eins fljótt og auðið er. Ef svarið
krefst yfirlegu er gott að segja við-
komandi að aflað verði ítarlegri upp-
lýsinga og að þær verði birtar þegar
þær liggja fyrir.
• Segið iðkendum og forráða-
mönnum barna, sem stunda íþrótt-
ir með félaginu, frá Facebook-síðunni
svo að allir geti fylgst með.
NOKKUR RÁÐ UM SAMFÉLAGSMIÐLA
Ungmennafélag Laugdæla notar það sem virkar
búnar til sérsíður sem tengdar eru við aðal-
síðu Ungmennafélagsins á Facebook. Efnið
á sérsíðunum fjallar aðeins um viðeigandi
viðburð.
Skjalavistun á Google Drive
Til viðbótar við Facebook vistar stjórn Ung-
mennafélags Laugdæla ársskýrslu, gögn og
ýmislegt fleira á Google Drive. Þar má líka
nálgast efnið þegar endurnýjun er í stjórn
félagsins. Pétur segir lítil ungmennafélög
eiga það til að vista gögn á mörgum stöðum
og því sé gott að finna einn stað fyrir öll
gögnin.
„Ungmennafélag Laugdæla hefur haldið
þorrablót í 100 ár. Þegar ný skemmtinefnd
tekur við getur hún farið á Google Drive og
séð hvað hefur verið gert í gegnum tíðina
og hvað þurfi að gera til að halda gott blót.
Eftir því sem utanumhaldið er einfaldara því
betra er það,“ segir Pétur Ingi Haraldsson,
formaður Ungmennafélags Laugdæla.
Ungmennafélag Laugdæla stendur sig vel í miðlun upplýsinga. Þar er Facebook nýtt til að ná til sem flestra og upplýsa þá um viðburði á vegum félagsins.