Skinfaxi - 01.01.2018, Síða 3
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 3
U ngmennafélag Selfoss fékk fyrir
skömmu 3,5 milljóna króna styrk
frá Evrópu unga fólksins (EUF) til
að auka þekkingu og fá nýjar
hug myndir í starfi með ungu fólki
hjá félaginu, í samstarfi við DGI Østjylland,
héraðssamband systursamtaka UMFÍ í Dan -
mörku. Gissur Jónsson, framkvæmdastjóri
hjá Umf. Selfoss, vonast til að verkefnið
verði til þess að fleiri félög byggi brýr til
íþróttafélaga í öðrum löndum.
„Við teljum að verkefnið víkki sjóndeildar-
hring inn og veiti ungu fólki tækifæri sem
það hafði ekki áður,“ segir Gissur Jónsson,
framkvæmdastjóri Umf. Selfoss. Félagið fékk
í lok árs 2017 styrk upp á 3,5 milljónir króna
til að gera 15–20 manna hópi níu deilda
Verkefni til
fyrirmyndar
á Selfossi
félagsins kleift að fara utan og kynna sér það
sem félög innan DGI Østjylland hafa upp á
að bjóða, að koma á tengslum félagsmanna
og stjórnenda úti og efla þekkingu og koma
með nýjungar í þjálfun ungmenna.
Gert er ráð fyrir því að hópurinn frá Sel-
fossi fari utan í september og að sams konar
hópur komi hingað frá Danmörku í byrjun
vetrar.
Gissur segir gert ráð fyrir því að fulltrúar
frá öllum deildum Umf. Selfoss hitti kollega
sína hjá sambærilegu íþróttafélagi innan DGI
Østjylland. Fulltrúar frá sveitarfélaginu Árborg
og HSK verði einnig með í för og fundi þeir
með kollegum sínum ytra til að kynnast
samvinnu sveitarfélaga og héraðssambanda
og kynni sér m.a. aðstöðumál. „Við þurfum
að fara utan með fjölbreyttan hóp af báðum
kynjum og á öllum aldri, formenn, þjálfara
og helst iðkendur líka svo að allir læri eitt-
hvað,“ segir Gissur.
Gissur segir verkefnið hafa fæðst á Selfossi
fyrir nokkru. „Örn Guðnason, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Umf. Selfoss, er hugmynda-
smiðurinn, hann hefur unnið lengi að undir-
búningi þessa verkefnis og við höfum átt í
góðu samstarfi um að þoka því áfram. Hann
fékk hugmyndina í tengslum við stefnumót-
unarvinnu um íþróttir sem sveitarfélagið
Árborg stóð fyrir 2008. Þar kom m.a. fram að
eitt af tækifærum Umf. Selfoss til að styrkja
sig í samkeppni við íþróttafélögin á höfuð-
borgarsvæðinu, sem hefðu greiðari aðgang
að fjármagni, væri að efla félagslegt og fag-
legt starf félagsins. Örn hefur átt sæti í stjórn
UMFÍ frá 2007 og eftir heimsóknir hans með
forystumönnum UMFÍ til DGI í Danmörku
urðu til tengsl sem hann hefur m.a. nýtt til að
láta verkefnið verða að veruleika. Við feng-
um styrk hjá UMFÍ til að heimsækja DGI
á austanverðu Jótlandi í janúar 2017, til að
kíkja á starfið og hitta fólk. Okkur leist vel á
það og sáum þar margt gott sem má taka
upp hjá Umf. Selfoss og raunar hjá fleiri
félögum,“ segir Gissur.
Örn og Gissur fengu ekki styrk hjá EUF
fyrsta kastið. „Boltinn fór að rúlla þegar við
dembdum okkur í þetta og einbeittum
okkur að því að vinna vel í umsókninni. Það
þurfti að leggja töluverða vinnu í hana til að
uppfylla skilyrði fyrir styrk,“ segir Gissur.
Alltaf hægt að efla samstarfið
Gissur bendir á að góð tengsl séu á milli
aðildarfélaga DGI Østjylland og Íslendinga.
Janus Daði Smárason spilaði með Árósalið-
inu í handbolta og nú er Ómar Ingi Magnús-
son á mála hjá liðinu. „Við erum með tengi-
liði. En nú viljum við fara lengra með málið og
læra hvernig á að gera gott starf enn betra,
skoða aðstöðuna, uppbyggingu félaganna
og læra af Dönum um barna- og unglinga-
starf. Það er svo aldrei að vita nema þetta
geti orðið vettvangur fyrir ungmennaskipti og
flutning á þekkingu milli landa,“ segir hann.
Gissur segir drauminn að forsvarsmenn
fleiri félaga feti í fótspor Umf. Selfoss, fari
utan og efli bæði tengsl og samstarf við
erlend félög. Hann mælir með EUF í tengsl-
um við slík skref. „Það er gott að sækja um
styrki hjá EUF því það getur bætt starf okkar
svo mikið. En það þarf að vanda sig við
umsóknina,“ segir hann.
Gissur Jónsson hjá
Umf. Selfoss segir
gott að geta leitað
til Evrópu unga
fólksins eftir stuðn-
ingi við verkefni
ungmennafélaga.
Svona var ferlið
> Hugmynd sem Örn fékk í tengslum við
stefnumótunarvinnu hjá Umf. Selfoss 2008.
> Gissur og Örn fá styrk hjá UMFÍ og HSK til að fara til
Danmerkur og leggja drög að verkefninu.
> Aðalstjórn Umf. Selfoss samþykkir verkefnið.
> Umsókn um Erasmus+ styrk hjá EUF.
> Undirbúningshópur stofnaður fyrir ferðina.
> 15–20 manna hópur fer frá Selfossi til Danmerkur
í september.
> Hópur frá Danmörku kemur til Íslands í byrjun vetrar.
„Við teljum að verk-
efnið víkki sjóndeildar-
hring inn og veiti ungu
fólki tækifæri sem það
hafði ekki áður“