Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 38
38 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði var hald-
in á Hotel Borealis á Efri-Brú í Grímsnesi
dagana 21.–23. mars sl. Þessi ráðstefna
er ætluð ungu fólki á aldrinum 16–25 ára.
Yngra fólk hefur þó látið til sín taka eins og á
ráðstefnunni þetta árið. Yfirskrift ráðstefn-
unnar nú var Okkar skoðun skiptir máli!
Ráðstefnan hefur verið haldin árlega frá
árinu 2009. Ungmennaráð Ungmennafélags
Íslands (UMFÍ) stendur að ráðstefnunni og
skipuleggur hana, allt frá fundum til kvöld-
skemmtana. Ráðstefnugestir voru nú sem
ætíð áður til fyrirmyndar. Skemmtanir voru
áfengislausar, tóbak var ekki notað, hvorki
reyk- né munntóbak og enginn notaði rafrettur.
Ráðstefnan var sett með formlegum hætti
fimmtudaginn 22. mars með erindum Kol-
brúnar Láru Kjartansdóttur, formanns ung-
mennaráðs UMFÍ, og Auðar Ingu Þorsteins-
dóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ. Á eftir
þeim flutti Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra erindi og rifjaði hann m.a.
upp æsku sína. Að því loknu tóku við vinnu-
stofur fyrir ráðstefnugesti. Á síðasta degi ráð-
stefnunnar var pallborð með gestum. Í pall-
borði voru Salvör Nordal, umboðsmaður
barna, þingmaðurinn Vilhjálmur Árnason,
Arna Ýr Gunnarsdóttir, sem á sæti í sveitar-
stjórn Árborgar, Gunnar Þorgeirsson, sveit-
arstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi, og
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði 2018
Sveinn Birgisson úr ungmennaráði UMFÍ og
ungmennaráði HSK.
Á ráðstefnunni ræddu gestir ýmis mál sem
brenna á ungu fólki í dag og leituðu lausna
sem gagnist bæði núna og til framtíðar. Í lok
ráðstefnunnar sendu ráðstefnugestir frá sér
ályktun í nokkrum liðum. Þar kemur fram að
auka þurfi forvarnir í geðheilbrigðismálum
og fræðslu um geðræn vandamál. Á meðal
forvarna í grunn- og framhaldsskólum má
nefna námskeið í jákvæðri sálfræði, núvitund
í skólum og hugleiðslu sem getur styrkt
sjálfsmynd nemenda. Að sama skapi þarf að
bæta aðgengi nemenda að sálfræðiþjónustu
í skólum landsins.