Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 26
26 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands Hreyfivika UMFÍ verður haldin í sjöunda sinn dagana 28. maí til 3. júní nk. Þátttakendum fjölgar með hverju árinu. Það er allt að þakka kraftmiklum boðberum hreyfingar. Bjarney Guðrún Jónsdóttir á Vopnafirði hefur staðið fyrir fjölmörgum viðburðum í gegnum árin. Við spurðum hana að því hvaða ráð hún eigi fyrir þá sem vilja gleðja aðra og gerast boðberar hreyfingar. Nú hefur þú verið boðberi hreyfingar í Hreyfi- viku UMFÍ undanfarin ár – hvernig hefur það verið að taka þátt í þessu verkefni? „Mér hefur alltaf þótt gaman að taka þátt og bjóða upp á einhverja tilbreytingu í samfélagi mínu sem hvetur til hreyfingar.“ Hvað gefur það þér að taka þátt í svona verkefni? „Það gefur mér mikið. Ég hef gaman af því að koma nýjum hugmyndum á framfæri og ein- hvern veginn er ég alltaf tilbúin að vinna við hreyfitengd verkefni þar sem hreyfing og lýð- heilsa eru áhugamál mín.“ Finnst þér lýðheilsuverkefni sem þetta skipta máli fyrir sveitarfélagið/samfélagið? „Það skiptir sannarlega máli. Hvatning er mikilvæg og svona hvetjandi verkefni koma oft og tíðum einhverjum af stað, sumir taka þátt í átakinu en hætta svo en aðrir halda áfram reglubundinni hreyfingu og þótt það sé bara einn þá finnst mér það mikill sigur og verkefnið hefur áhrif.“ Ertu með góð ráð handa öðrum boðberum – eða verðandi boðberum – í Hreyfivikunni í ár? „Að taka endilega þátt og muna að allar hug- myndir eiga rétt á sér og það þarf ekki að vera Gott að brjóta vinnudaginn upp með hreyfingu flókið skipulag eða full dagskrá alla daga, allt hefur áhrif. Stundum er það einfalda bara betra.“ Hvernig geta fyrirtæki tekið þátt? „Fyrirtæki geta tekið þátt með því að bjóða upp á einhvers konar uppbrot tengt hreyf- ingu á sínum vinnustað. Ef um stór fyrirtæki er að ræða geta þau haft mikil áhrif á starfs- Þú getur gerst boðberi í Hreyfiviku UMFÍ með því að fara inn á: www.hreyfivika.is UMFÍ hefur frá árinu 2012 tekið þátt í evrópsku lýðheilsu- herferðinni Now We Move sem hér á landi heitir Hreyfi- vika UMFÍ. Markmið verkefnisins er að fjölga þeim sem hreyfi sig reglulega í Evrópu um 100 milljónir á árunum 2012 til 2020. Ástæðan fyrir því er sú að rannsóknir sýna að einungis þriðjungur íbúa Evrópu hreyfir sig reglulega. UMFÍ hvetur alla til að finna uppáhaldshreyfingu sína í Hreyfivikunni og stunda hana reglulega eða að minnsta kosti í 30 mínútur á hverjum degi. Það er mjög einfalt að taka þátt í Hreyfiviku UMFÍ. Það er hægt með því að gerast boðberi hreyfingar. Hlutverk boðbera er að virkja fólkið í kringum sig, vekja athygli á því sem er í boði tengt lýðheilsu og íþróttum í nærsamfélaginu og standa fyrir viðburðum af ýmsum stærðum og gerðum. Viðburðir í Hreyfivikunni geta verið af ýmsum toga. Þeir geta falist í opinni æfingu fyrir alla, göngutúrum, ókeypis í sund eða harmonikkuballi. Bjarney Guðrún Jónsdóttir, íþróttafræðingur með diplómu í sérkennslufræðum og verkefnisstjóri fram- haldsdeildar Framhaldsskólans á Laugum. fólk sitt með því að bjóða upp á reglubundna hreyfingu og taka þátt í Hreyfivikunni með því að setja upp einhvern skemmtilegan við- burð í sveitarfélagi sínu.“ Hver er uppáhaldshreyfing þín og á fjölskylda þín sameiginleg áhugamál? „Uppáhaldshreyfing mín er útivera, blak og svo hef ég mjög gaman af lyftingum.“

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.